Vikan - 27.06.1940, Qupperneq 2
2
VIKAN, nr. 26, 1940
ES£^f' TESSKæSI
ZOl (AtmíoLcJ^jex^jjun
Forsíðll- Á flótta undan stríði, fátækt og eymd,
myndin.
ætti textinn undir forsíðumyndinni
raunverulega að vera. En þessar litlu
telpur úr fátækrahverfum Lundúnaborgar virðast
vera á allt annarri skoðun. Þær vita að vísu, að það
er verið að senda þær að heiman — upp í sveit vegna
stríðsins, og að í pakkanum, sem þær halda á í litlu
höndunum eru gasgrímur, en stríðið er fyrir þeim
eitthvað f jarlægt og óskiljanlegt, sem fullorðna fólk-
ið talar alvarlega um. Hið áþreifanlega eru nýju,
fallegu fötin, sem þær fá, ferðalagið, dýrin og gróð-
urinn, sem þær kynnast úti í ríki náttúrunnar.
Lambeth Flestir munu hafa heyrt nefndan dans-
Walk inn Lambeth Walk, en færri munu vita,
að hann dregur nafn sitt af einu fá-
tækrahverfi Lundúnaborgar, á syðri bakka Thames-
ár. En það er fátt, sem minnir á glaum og dans í
þessu hverfi. Húsin eru hrörleg og rök, oft morandi
í veggjalús og sníglum, göturnar þröngar og óhrein-
ar, en dyraþrepin jafnvel á aumustu hreysunum eru
alltaf hrein og hvítkölkuð. Það er auðvirðilegasta
táknið um eymd og vesaldóm húsmóðurinnar, ef hún
heldur ekki dyraþrepunum sínum hreinum og hvít-
um. En jafnvel Lambeth hefir líka sína sólskinsbletti.
Victoria Tower Gardens er einn af þeim. Það er
garður, sem liggur á bak við hið veglega þinghús
Bretlands, norðan megin fljótsins. Þangað er böm-
unum úr Lambeth heimilt að koma til að njóta sól-
ar °g svigrúms. Framhald á bis. 13.
Fylgist með
framhaldssögunni!
í þessu blaði hefst, eins og lofað hafði
verið, spennandi framlialdssaga, eftir
Edgar Wallace, einn mesta afbrotasögu-
höfund, sem uppi hefir verið. Þér ættuð að
fylgjast með henni frá upphafi og sleppa
engu blaði úr, því að sagan er prýðilegur
skemmtilestur.
V i k a n
HEIMILISBLAS
Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365.
Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 17.
Sími 5004. Pósthólf 166.
Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu.
Steindórsprent h.f.
| Efni blaðsins, m. a.:
[ Úr fátækrahverfum Lundúnaborgar.
1 Skipafréttir, kvæði.
Eftir Karl ísfeld.
! Á skilnaðarstund, smásaga.
Eftir Stefán Jónsson.
Jack kvongast, en ekki konunni, sem
hann elskar.
Eftir Irving Stone.
Maðurinn, sem keypti London,
\ framhaldssaga.
Eftir Edgar Wallace.
i Taminn silungur.
Eftir Svövu Jónsdóttur.
Sigga litla og ÓIi og Addi í Afríku. [
Skrítlusíða. — Heimilið. — Kross- [
gáta. — Skák.
Vifid þér þad?
1. Hvað er álitið að landnám Is-
lands hafi tekið langan tíma?
2. Hvaða málmur er þyngstur?
3. Hvað er ,,jámsíðurnar“?
4. Hvað hét þrællinn, sem strauk
frá Garðari Svavarssyni?
5. Hvaða fræg dómkirkja var eyði-
lögð svo í stríðinu 1914—18, að
ekki var fyrr búið að endur-
byggja hana en á síðasta ári?
6. Hver er höfundur að „Andvök-
. um“, hvar fæddist hann og hve-
nær?
7. Hvað kalla Finnar landið sitt?
8. Hvaða nýlenduríki á Java?
9. Hvenær lét Haraldur hárfagri
skera hár sitt?
10. Hvað kölluðu Rómverjar torgin
í borgum sínum?
Sjá svör á bls. 15.
ÚTGEFANDI: VIKAN H.F., REYKJAVlK. — Rítstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. ~r- Ábyrgðarmaður:
Steindór Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Engilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.