Vikan - 27.06.1940, Side 3
VIKAN, nr. 26, 1940
3
L/YRA liggur í Bergen,
Laxfoss við Sprengisand,
Sindri á Siglufirði,
Súðin austan við land.
Sæbjörg hjá Suðurnesjum,
Selfoss í Liverpool,
Katla er komin af hafi,
Kári selur í Hull.
Um allt eru fley vor í förum
með farþrá vora um borð.
Þau leggja á votar leiðir
í leit að ókunnri storð.
Þau beygja í suður, þau beygja í norður,
þau bruna frá póli að pól,
plægja erlend höf til erlendra hafna
undir erlendum himni og sól.
Þvi eyru vor ætíð heilla
hin erlendu borganöfn:
Singapore, Bombay, Boston,
Berlín, Kaupmannahöfn.
París, Lissabon, London,
Leningrad, Don Carlo,
Messina, Versalir, Verdun,
Wiesbaden, Milano.
Eftir KARL ÍSFELD
Við þrumunið þúsund vatna
og þytinn úr laufguðum skóg
gengur framgjami, finnski bóndinn
í farinu eftir sinn plóg.
— Svo bera oss bláar öldur.
Til botns var drekkt hverri sorg
í ylmjúkum örmum kvenna
einn aftan í Gautaborg.
Tahiti! Sígræna sylgjan
í Suðurhafs blámöttul fest,
þar sem yndisbros ungra meyja
hafa ornað hjartanu bezt.
Undir sólfáðum, svimháum pálmum
þær svífa með léttum dyn
með sólskin í hrafnsvörtu hári,
undan hvörmunum — mánaskin.
Kampavín freyðir á könnum
í Casino de Paris
— whisky og viarengo,
vino bianca, shablis.
Tokayer, sénever, southern,
sherry, klaret, pernod,
ourem, isola bella,
aqua vitae, bordeaux.
1 húminu hljóðfærasláttur
heyrist frá Café Sunset,
— gjallandi gongong-kliður,
gítar og klarinet.
Trompet, saxófónn, sítar,
celló og tambúrín,
píanó, fagott og fiðlur,
flautur og mandólín.
Ofan af anganfjöllum
ber andvarinn straumaklið:
Zambesi, Signa, Ganges,
Schelde, Indus og Nið.
Tíber, Missouri, Moldau,
Mosel og Amazon,
Thames, Weichsel og Volga,
Warthe, Rín og Don.
Um Broadway bílarnir renna:
Buick, Rolle Royce og Ford.
Glymur frá gildaskála:
gítar og harpsicord.
Svo kveðjum við stórborgar-styrinn
og strætanna glaum og hark.
Nú drynur Niagara,
það er náttfall í Yellow Stone Park.
I bjarma hins bleika morguns
við búumst til ferða á ný.
Yfir grábláum Grænlandsjöklum
sveima gullin, sólroðin ský.
Um hrímgaðar Lapplands hæðir
berst hjáróma blýstur hvelt.
Og hreindýrahjarðirnar renna
yfir hjarnið við rakkans gelt.
Við kveðjum í skyndi þær konur,
er við kysstum og gleymdum svo s
og kælum bjórþyrstar kverkar
í kjallara Auerbachs.
Þá ilma að nýju þær ástir,
sem árin vörpuðu á glæ.
... Svo raulum við róðrarvísur
í rökkrinu á Feneyjasæ.
Ó, Bagdad! Borg vorra drauma
oss birtist frá horfinni öld.
1 höllu Harun al Raschíds
er háreysti og glaumur í kvöld.
Því blóðríkar, brosmildar varir
bergja á skálum víns
undir leiftrandi Ijósakrónu.
... Það er lampinn hann Aladíns.
Og undir austrænum stjörnum
við unum í kvöldsins ró,
við blómailm, mánaskin, músik
og meyjar i Tokio.
Unz röðull úr djúpinu rennur
yfir ríki Kuomintang.
Af sólgylltum hæðum hníga:
Hoangho, Janktsekíang.
Um hrannir dimmblárra hafa
, og hylgrænan perlusæ,
akandi öllum seglum
í aftansins mjúka blæ,
í bjarma hins bleika mána
við blikandi stjörnulog,
heim snýr vor hraðsiglda snekkja
á hugarins djúpavog.
Við vöknum af djúpum dvala,
af draumsins hverfulu náð
og fálmum titrandi fingrum
um fréttablað gulnað og máð.
Því hitt, sem oss heiman seiddi,
svo hugurinn þeysti á sprett
út undir erlenda himna,
var einungis — skipafrétt.
Katla er komin af hafi,
Kári selur í Hull,
Sæbjörg hjá Suðurnesjum,
Selfoss í Liverpool.
Sindri á Siglufirði,
Súðin austan við land,
Lyra liggur í Bergen,
Laxfoss við Sprengisand.