Vikan - 05.12.1940, Síða 2
2
VIKAN, nr. 49, 1940
Prestakosningin
í Reykjavík.
Eins og kunnugt er, á að fara fram
kosning á fjórum nýjum prestum
handa Reykvíkingum þann 15. des-
ember. Hefir bænum i því augna-
miði verið skipt í fjórar sóknir. Dóm-
kirkjusóknina, þar sem séra Bjarni
Jónsson og séra Friðrik Hallgríms-
son þjóna áfram, Hallgrímspresta-
kall, þar sem tveir prestar verða
kosnir, Laugarnesprestakall með einn
prest og Nesprestakall með einn.
Um Laugarnesprestakall sækir að-
eins einn prestur, séra Garðar
Svavars, enda hefir hann þjónað þar
að undanförnu. Um Hallgrímspresta-
kall sækja þeir séra Jakob Jónsson,
séra Jón Auðuns, séra Sigurbjörn
Einarsson, séra Sigurjón Árnason og
Stefán Snævarr cand. theol., séra
Þorsteinn L. Jónsson. — Um Nes-
prestakall sækja þeir séra Árelíus
Níelsson, Ástráður Sigursteindórsson
cand. theol., séra Gunnar Árnason,
séra Halldór Kolbeins, séra Jón
Skagan, séra Jón Thorarensen, séra
Magnús Guðmundsson, Pétur Ingj-
aldsson cand. theol og séra Ragnar
Benediktsson.
Vikan birtir á forsíðu myndir af
þessum fríða hóp og vill um leið
nota tækifærið til að óska þeim um-
sækjendum, sem kosnir verða, gæfu
og gengis í því vandasama brautryðj-
endastarfi, er bíður þeirra. Prestarnir
hafa mikið hlutverk að vinna og
margþætt og getur oltið á miklu, að
þeir séu köllun sinni vaxnir.
„Blandari.“
Dr. Robert S. Harris á matvæla-
rannsóknastofu Massachusettríkis,
hefir búið til fæðisblöndu, sem hann
segir að innihaldi öll fjörefni nema
,,C“. Fæðisblandan kostar kr. 12,15 á
mann á ári. Stjóm Banaríkjanna hef-
ir fengið formúluna fyrir blöndunni
og hefir hún þegar verið send til Eng-
lands.
„Líttu á mig! Það, sem ég er orð-
inn, það hefi ég orðið af eigin
ramleik."
„Heyrðu góði, ertu að monta, eða
ertu að afsaka þig?“
Efni bladsins m. a.:
Líf hennar að veði, smásaga.
Sérvitringurinn, Antoine.
Litli Kláus, kvæði eftir Huldu.
Þegar vinnumennirnir fengu of
mikinn afla,
eftir Gils Guðmundsson.
Alveg eins og tígrisdýr,
smásaga eftir W. W. Gibson.
Trúlofunin, stuttur sorgarleik-
ur úr daglega lífinu.
Rauðikjóllinn og tarfurinn,
Vippasaga.
Gissur og Rasmína. — Maggi
og Raggi. — Erla og unnust-
inn. — Heimilið. — Framhalds-
sagan. Ifrossgáta. — Skák.
Skrítlur. - Fréttamyndir. —
Vitið þér það, — o. m. m. fl.
Vitið pér það?
1. Eftir hvem er bókin „Ivar Hlú-
járn“?
2. Hvar eru Hveravellir?
3. Hvaðan er nafnið „John Bull“
(Jón Boli), sem notað er um
Englendinga, komið ?
4. Hvað þýðir orðið „Intermezzo" ?
5. Hver nam Flókadal?
6. Hvað er „Pegasus" ?
7. Hver er þingmaður Norður-Þing-
eyinga ?
8. Hvenær var fyrsta stýranlega
loftskipið reynt?
9. Hvað er Agnus Dei?
10. Eftir hvern er Orotoríið Messías ?
Sjá svör á bls. 15.
„Er hann pabbi þinn heima?“
„Nei, hann átti að mæta fyrir
rétti.“
„Það sagðirðu líka fyrir einum
mánuði.“
„Já, hann kom aldrei aftur.“
HEIMILISBLAÐ
Ritstjórn ogafgreiðsla: Kirkju-
stræti 4. Sími 5004. Pósthólf 365.
Verð: kr. 2,00 á mánuði,
0,50 í lausasölu.
Auglýsingum í Vikuna veitt
móttaka í skrifstofu Steindórs-
prents h.f„ Kirkjustræti 4.
Prentsm.: Steindórsprent h.f.
Varnings og starfsskrá
Nýja fornsalan, Aðalstræti 4, kaupir allskonar húsgögn og karlmannafatnað gegn staðgreiðslu. Æk
Skó- og gúnuníviðgerðir. Þúsundir manna vita að ævilöng gæfa fylgir trúlofunarhringunum frá SIGURÞÖR, Hafnarstræti 4.
Allar skóviðgerðir vandaðar og vel unnar. Júlíus Jónsson, Aðal- stræti 9.
Saumastofur.
Frímerki.
TAU OG TÖLUR Lækjarg’ötu 4. Sími 4557.
Ifaupi notuð íslenzk frímerki. Sigurður Kjartansson, Lauga- vegi 41. Sími 3830.
Saumum allskonar kjóla og kápur. Aðalbjörg Sigurbjöms- dóttir, Hverfisg. 35. Sími 5336.
Notuð íslenzk frímerki kaupi ég ávallt hæsta verði. Duglegir umboðsmenn óskast um land allt. Há ómakslaun. Sig. Helga- son, frím.kaupm. Pósthólf 121, Reykjavík.
Stimplar og signet.
Gúmmístimplar eru búnir til með litlum fyrirvara. Sömu- leiðis signet og dagsetningar- stimplar. Steindórsprent h.f. Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Bækur - Blöð - Tímarit
Vikan er heimilisblaðið yðar. Gerist áskrifandi og mun blað- ið þá verða sent yður heim á hverjum fimmtudegi. Afgreiðsl- an er í Kirkjustræti 4, Reykja- vík. Sími 5004. Pósthólf 365.
Signéta-gröft og ýmiskonar annan leturgröft annast Bjöm Halldórsson, Laufásveg 47, Reykjavík.
Bon-bækur fyrir hótel og veit-
ingastofur fást í Steindórs-
prenti h.f., Kirkjustræti 4. Sími
1174.
Vasa-orðabækur: Islenzk-ensk
og ensk-íslenzk fást i öllum
bókaverzlunum. Hver sá, sem
þessar bækur hefir um hönd,
getur gert sig skiljanlegan við
Englendinga, þótt hann kunni
ekki ensku. Verðkr. 3,00 og 4,00.
Verndið heilsu barnanna!
B ARNIÐ
bók handa móðurinni.
Verð: í bandi 3,00, heft 2,00.
Ýmislegt.
mtjfifo Borðkort
ýmis konar, svo
sem: Tvöföld,
A w skáskorin og
' ýmsar aðrar
tegundir fást í Steindórsprenti,
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
TAU & TÖLUR Lækjargötu 4.
Nýkomið úrval af tölum og hnöppum.
Komið á meðan nógu er úr að velja.
Félagið INGÓLFUR
Tilgangur félagsins er að
gefa út, eftir því sem
efni leyfa, rit, er heitir:
Landnám Ingólfs,
safn til sögu þess.
Félagið hefir þegar gef-
ið út III bindi í 10 heft-
um. Þessi rit fá meðlimir
ókeypis. Ennfremur hefir
félagið gefið út Þætti úr
sögu Reykjavíkur. Bók
þessi fæst hjá bóksölum.
Þeir, sem gerast vilja
meðlimir, snúi sér til af-
greiðslunnar: Steindórs-
prent h.f., Kirkjustræti4.
Reykjavík.
Kaupi og sel allskonar
verðbréf og fasteignir.
Garðar Þorsteinsson
Símar 4400 og 3442. Vonarstræti 10.
Almanök
fyrir árið
11941 selur
Öllsaii,
Steindórsprent
Kirkjustrœti 4.
HREINS
CREME
isr' Gerist áskrifendur
að VIKUNNI.
— Iíirkjustræti 4. Sími 5004. —
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.