Vikan - 05.12.1940, Side 7
VIKAN, nr. 49, 1940
7
Bússnesk prinsessa. Dagmar Vasi-
levna Saricheff prinsessa segist
heldur vilja vera amerískur ríkis-
borgari, en að bera rússneska
prinsessunafnbót. Hún var einu
sinni ein af ríkustu konum Kúss-
lands, en er nú saumakona í Holly-
wood.
Svifflugsmeistari Bandarikjanna
1940 er John Robinson frá San
Diego í Califomíu. Hann fékk
6.500 kr. í verðlaun og gullpening
eftir 290 milna svifflug á ellefta
ársmóti amerísku svifflugfélag-
anna.
Foringi hinna amersiku Araar-
flugsveita. Amerísk Arnarflug-
sveit með 34 flugmönnum hefir
verið stofnuð og er nú komin til
Englands til að berjast þar. For-
ingi hennar er William E. G. Tay-
lor, 35 ára gamall, og er hann liðs-
foringi í flota Bandaríkjanna.
Doftárásartízka. John Peter Ains-
worth, 18 mánaða gamall flótta-
maður, sést hér á myndinni í föt-
um, sem eru „handhæg til að vera
í í loftvarnabyrgi“. — „Félög til
hjálpar Bretum í striðinu“, sem
starfa víðsvegar í Bandaríkjunum,
hafa sent mikið af svona fatnaði
til Englands.
Roosevelt í eftirlitsferð. Myndin sýnir Roosevelt, forseta Banda-
ríkjanna, í eftirlitsferð til flugstöðva hersins í Wright Field, Day-
ton, Ohio, rétt áður en hann lýsti því yfir í útvarpi, vegna samtaka
öxulríkjanna, að engin aðkomandi öfl gætu stöðvað stuðning Ame-
riku við Breta. I baksýn eru flugmenn með fallhlífar.
Fréttamyndir.
í gúmmírannsóknum. Dr. T. D.
Mallery, grasafræðingur hjá Car-
negie-stofnuninni, sést hér á mynd-
inni með hluta af gúmmítré. Hann
er í þann veginn að leggja af stað
til Mið-Afríku til þess að rann-
saka þar skilyrði fyrir gúmmítrjá-
rækt. Bandaríkjaþing veitti þrjár
milljónir króna til rannsóknanna,
sem eiga a3f miða að því að gera
Vesturálfu sjálfa sér nóga í þess-
um efnurn, ef mögulegt væri.
Fljótbyggðar sltotfærageymslur úr steinsteypu. George R. Jackson, sem er með-uppfinnandi þessarra
skotfærageymsla, sést hér á myndinni standa uppi á einni þeirra, er hann byggði til þess að sýna hana
yfirmönnum Bandaríkjahers og þingmönnum. Steypan harðnar á fimm klukkustundum og er þá
strax hægt að taka þær í notkun. Uppgötvun þessi getur orðið mjög mikilvæg, ef til þess kemur að
Bandaríkin þurfa að koma upp neti af vígjum á landamærum sínum.