Vikan - 05.12.1940, Page 11
VIKAN, nr. 49, 1940
ri
)
Framhaldssaga eftir EDGAR WALLACE
,,Bray!‘‘ hrópaði hann.
,,Já, herra!“
„Launin — þúsund pund á ári — fimm ára
samningur — stíga um tvö hundruð og fimmtíu
á ári upp í tvö þúsund. Gerið þér yður ánægðan
með það?“
Gordon kinkaði kolli, hann gat ekki talað,
hann var svo utan við sig.
24. KAPÍTULI.
Maðurinn, sem teiknaði vél.
,,Það er undarlegt verkfæri, sem þú hefir
þarna, Zeberlieff."
Martin Hubbard stóð fyrir aftan vin sinn og
horfði yfir öxlina á honum. Hermann snéri sér
snöggt við og blótaði.
„Hvernig komst þú hingað inn?“ spurði hann
hranalega.
„1 gegnum dyrnar. Ég kom inn, þegar leyni-
lögreglumaðurinn þinn fór út til að halda vörð.“
Hermann stóð upp frá borðinu, sem hann
hafði setið við með tilraunir sínar.
„Komdu niður í borðstofu,“ sagði hann, ,,ég
hata fólk, sem læðist aftan að manni.“
Hubbard stóð og hallaði sér fram á stafinn
og horfði með hæðnisbrosi á hann í gegnum ein-
glirnið. Klæðaburður hans var óaðfinnanlegur, en
þó ekki laus við að vera spjátrungslegur. ,,Þú
ættir ekki að þurfa að dylja neitt fyrir mági
þínum,“ sagði hann.
„Tilvonandi mági, já," sagði Zeberlieff titrandi
af reiði.
„Hvaða vél er það, sem þú varst að eiga við?“
hélt Hubbard áfram. „Ég vissi ekki, að þú feng-
ist við slíkar tilraunir."
„Það er uppfinning, sem maður hefir sent
mér,“ sagði Hermann hirðuleysislega, „botnað-
irðu nokkuð í þvi, sem þú sást?“
Hubbard hristi höfuðið.
„Ég sá bara eitthvað, sem líktist vekjara-
klukku, gasbindi og eitthvað, sem minnti mig á
rúllufilmu."
„Það er ný tegund — hum — af kvikmynda-
Ijóskastara," sagði Hermann, „hann er sjálfvirk-
ur, vekur mann á morgnana með myndum í loft-
inu."
„Og til hvers voru eldspýturnar ? “
„Eldspýturnar! “
Zeberlieff horfði rannsakandi á hann. ,,Ég var
ekki með neinar eldspýtur."
„Þá hefir mér skjátlast." Hubbard fannst mál-
ið ekki þess virði, að ræða það frekar og hélt
áfram: „Ég geri ráð fyrir, að þú munir, að við
vorum þúnir að tala um, að ég kæmi hingað?"
„Hvern fjandann ætli ég muni það!“
„Þú baðst mig um að koma,“ sagði Hubbard
gramur, „til þess að hitta systur þina.“
„Jæja, gerði ég það?“ Hermann leit á hann
hugsandi. „Já, það er víst alveg rétt; það er leið-
inlegt okkar beggja vegna, því að hún vill ekki
sjá þig."
„Vill hún ekki sjá mig?“ Það var broslegt að
sjá, hvað þetta kom illa við hégómagirnd Hub-
bards.
„Hún vill ekki sjá þig — hún vill ekki sjá mig;
það er mergurinn málsins. Hérna er bréf, ef þig
langar til að sjá það.“
Hubbard opnaði grátt umslagið og' las;
„Ég get hvorki tekið á móti þér eða hinum
Það, sem skeð hefir hingað til í sögunni.
King Kerry er dularfullur, amerískur
milljónamæringur, sem dagblöð Lundúfla
segja að ætli að kaupa London. Á bak við
hann stendur auðhringur, sem kallar sig
,,L“. Kerry hefir þegar keypt verzlunina
Tack & Brighten, þar sem Elsie Marion
vinnur, og ráðið hana til sín sem einkarit-
ara. — L-hringurinn hefir feikna miklar
ráðagerðir á prjónunum í sambandi við
lóðakaupin í London. En hann á sina and-
stæðinga og á meðal þeirra eru Hermann
Zeberlieff og fyrverandi forstjóri Tack &
Brigthen, Leete. Bray, sem ætlar að verða
húsameistari, er vinur og nábúi Elsiear.
Kerry trúir Elsie fyrir því, að hann hati
Zeberlieff af þvi að hann hafi hagað sér
svívirðilega gagnvart konu. Vera, hálfsystir
Zeberlieffs, býr hjá honum, af því að faðir
þeirra setti það skilyrði í erfðaskránni, að
þau byggju saman í fimm ár og nú eru að-
eins nokkrir dagar eftir af þeim tíma. Vera
óttast bróður sinn. Bray kemur til að sækja
Veru, og aka þau til skólans, þar sem hún
úthlutar verðlaunum. Bray, sem er einn
nemendanna, fær verðlaun. Hjá Zeberlieff
eru fjórir menn til miðdegisverðar. Vera
vill ekki koma niður til þeirra, en Zeber-
lieff fer þá upp til hennar og ætlar að ráða
hana af dögum. Það tekst þó ekki. Vera
brýtur rúðu í búðarglugga Kings, til þess
að láta setja sig í fangelsi. Elsie hefir keypt
„Evening Herald“ fyrir King. Zeberlieff
vill gifta systur sína Hubbard ,,fagra“, til
þess að klófesta þannig auðæfi hennar.
Zeberlieff hittir Bray og ræðir við hann
um systur sína og gefur Bray svefnmeðul
í víni og lokar hann niðri í kjallara. —
Vera losnar úr fangelsinu, og þegar Her-
mann kom að heimsækja hana, ógnaði hún
honum með skammbyssu. Þegar Hermann
kemur heim til sin, er Leete þar fyrir og
segir honum, að lögreglan sé sennilega á
hælunum á honum. Þegar Hermann kemur
niður í kjallara, er Bray horfinn. Leete og
Hermann fara í kaupmannaklúbbinn, þar
sem kaupmennirnir bera saman ráð sín til
baráttu gegn Kerry. Allt í einu kemur
Kerry inn og gefur sig á tal við Modelson
gamla kaupmann. Bray hefir verið sagt
upp, en Kerry ræður hann til sín sem
húsameistara.
fallega vini þínum. Ef þú lætur sjá þig hér í
nánd, sendi ég eftir lögreglunni. V.“
„Hvað segirðu við þessu?“ spurði Hermann ró-
lega.
„Þetta er ósvífið!" hrópaði Hubbard. „Hvernig
dirfist hún-----“
Þeir stóðu og störðu hver á annan.
„Svo að við víkjum nú að öðru,“ sagði Hub-
bard, ,,ég kom líka til að biðja þig að lána mér
fimm hundruð pund.“
„Einmitt," svaraði Hermann. „Hefði ég haldið,
að nokkur möguleiki væri á að þú giftist systur
minni, þá — —“
„Það er svo að heyra, sem þú hafir ekki meira
not fyrir mig,“ sagði Hubbard reiðilega.
„En hvað þú ert skarpskyggn," sagði Zeber-
lieff með aðdáun. „Þú ert óvenju fljótur að átta
þig á hlutunum, það verð ég að segja.“
Martin Hubbard beit á vörina. „Ef ég færi nú
til systur þinnar og segði henni, hvað þú hefðir
boðið mér,“ sagði hann.
„Henni mundi dauðleiðast það,“ sagði Hermann
og brosti stríðnislega. „Ég er sem sé fyrir löngu
búinn að segja henni frá öllum ráðagerðum mín-
um viðvíkjandi þér. Það sem skapar öll vandræð-
in er það, að hún er ástfangin. Hann er af fátæk-
um en heiðarlegum foreldrum. Það er næstum
11
því eins og í skáldsögu. Ég er hræddur um, að
það endi með því að hún giftist honum. Ég fæ
ekki séð, að þú hafir nokkra möguleika. Það væri
þá helzt, ef þið lentuð einhvers staðar tvö ein á
eyðieyju. Eftir nokkur ár mundi- hún ef til vill
láta undan þér, að minnsta kosti væri sameign í
því tilfelli sjálfsögð. Ef þú gætir séð fyrir skip-
brotinu og tryggt það, að engir kæmust lífs af
nema þið tvö, þá skyldi ég velja handa ykkur
leiðina og eyjuna.“ Hermann var í essinu sinu, en
kæti hans hafði þveröfug áhrif á Hubbard.
„Þú ert nógu vel settur,“ sagði Hubbard hnugg-
inn, „þú ert ríkur, en ég á ekki bót fyrir rassinn
á mér.“
„Það á ég heldur ekki að viku liðinni,“ sagði
Hermann uppörfandi, „ef verzlunin gengur með
sama hætti I eina viku enn, þá fer Gouldings til
f jandans."
„Átt þú fé í Gouldings?" spurði Hubbard með
áhuga.
„Já, stórfé," sagði Hermann. „Leete fékk mig
til að leggja tvö hundruð þúsund í hana. Ault
þess hefi ég tapað tvö hundruð þúsundum á verð-
falli amerísku járnbrauta-hlutabréfanna."
„Hve lengi getur hann haldið áfram?“ spurði
Hubbard.
„Ég veit það ekki. Hann á miklar vörubirgðir.
Auk þess hefir hann mjög hagkvæma samninga
við ýmsa heildsala óg framleiðendur. Hann sélur
núna nákvæmlega sex sinnum meira én nokkur
verzlun í Oxford Street hefir selt í beztu söluviku
ársins — og hann tapar raunverulega engu. Gróð-
inn á vefnaðarvörum er nógu mikill til að jafna
hallann á hinu. Hann selur fyrir innkaupsverð og
með þvi setur hann allar hinar verzlanirnar á
hausinn."
„Hvað segirðu um fimm hundruð pundin?"
spurði Hubbard allt í einu.
„Nei, vinur minn,“ sagði Hermann, „þegar þú
ert kominn niður i fimmtíu pund, þá get ég farið
að hlusta á þig.“
Fimm mínútum síðar sat hann aftur einn á
skrifstofu sinni, og var að gera tilraunir með litlu
vélina sína.
1 þetta skipti lokaði hann hurðinni.
Það var liðinn einn mánuður frá því að útsalan
hjá Kerry byrjaði, og alltaf óx aðsóknin. Öll
London talaði um útsöluna hjá Kerry og allir
fóru þangað til að verzla. Svo tók Kerry við
verzlun Modelsons, gaf henni nafn sitt og rak
hana á sama hátt. Búðinni var gjörbreytt og nú
beindist að minnsta kosti hluti af straumnum til
Kerrys Magasin þangað.
„Sama verð, sama fyrirkomulag, sama nafn,“
stóð með logandi stöfum fyrir framan hjá Model-
son. Þetta losaði ögn um hjá Kgrry, en brátt varð
röðin jafn löng fyrir framan b'áðar verzlanirnar
og hún hafði áður verið fyrir framan hjá Kerry.
Á milli þeirra lá Gouldings auð og tóm eins og
afskekkt sveitaverzlun.
Kerry varð fyrir mörgum árásum í blöðunum.
Eitt af vikublöðunum réðist með mikilli heift á
hann. En blaðið var varla fyrr komið út á götuna,
en einkablað „kóngsins", Evening Herald, svar-
aði. Það var ekki kurteislegt svar, það var per-
sónulegt og ádeilukennt. Það gaf í skyn, að Leete
væri upphafsmaður að árásinni og birti nöfn á
nokkrum samsærismönnum hans, sendi ritstjór-
anum óþægilegar hnútur og lauk með þvi að lofa
almenningi því að upplýsa hver væri driffjöðurin
í samsæri þvi, sem unnið væri að í Park Lane
og framkvæmt væri i Whitechapel.
Hermann bannaði að birta svar við þessu, og
í næsta blaði af „Weekly Discovery" var ekkert
minnst á King Kerry eða verzlun hans.
En ekkert gat hjálpað Gouldings. Þegar lokk-
andi auglýsing um stórfelda verðlækkun var birt
í glugganum, varð það aðeins til þess, að í glugg-
anum við hliðina (sem var sýningargluggi Kerrys)
var fest upp svolátandi auglýsing:
„Allar vörur í þessari verzlun er hægt að fá
fyrir nákvæmlega helmingi lægra verð en hjá
keppinaut okkar hér við hliðina."
Framleiðendurnir voru á báðum áttum. Þeir