Vikan - 09.04.1941, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 15, 1.941
3
Eftir Qeorg W. Qray
Hver er orsök ellinnar?
Skipulagðar rannsóknir eru nú
hafnar til að leita svars við þess-
ari spurningu og ýmislegt athygl-
isvert er þegar komið í ljós, eins
og sjá má á þessari grein.
Fyrir hundrað áxum var dr. Oliver
Vendell Holmes spurður að þvi, hvað
væri öruggasta ráðið til að ná hárri
elli. Ráðleggingar hans voru þessar. „Aug-
lýsið, nokkrum árum áður en þér fæðist,
eftir foreldrum, sem bæði eru afkomendur
langlífra foreldra.“
Dr. Holmes hafði ekki neinar vísindaleg-
ar staðreyndir að byggja á. Ráðleggingar
hans voru aðeins byggðar á athugunum.
En margar nútíma rannsóknir styðja þessa
niðurstöðu hans. Prófessor Raymond
Pearl og aðstoðarmenn hans við John
Hopkins háskólann í Bandaríkjunum leit-
uðu sér upplýsinga um ættir 365 manna,
sem náð höfðu níutíu ára aldri eða meira,
og komust að þeirri niðurstöðu, að for-
eldrar þeirra urðu frá 12 og upp í 17 ár-
um eldri en meðalaldur þeirrar kynslóð-
ar, sem þeir tilheyrðu. Einn tíræður öld-
ungur var afsprengi foreldra, sem náð
höfðu 97 og 101 árs aldri, og afar hans
og ömmur urðu 104, 98, 106 og 93 ára.
Prófessor Pearl setti fram þá skoðun sína,
að menn þeir, sem næðu 90 ára aldri eða
meir, væru einstaklingar, sem náttúran
hefði valið samkvæmt reglunni um úrval
tegundanna. Þeir lifa lengur af því að þeir
hafi ,,að öllu leyti sterkari líkamsbyggingu
og eru búnir sterku mótstöðuafli gegn
hvers konar sjúkdómum.“
Læknavísindunum hefir orðið mikið
ágengt í því að lengja meðalaldur mann-
anna. Við lifum að meðaltali mikið leng-
ur en forfeður okkar, en eftir því sem
árin færast yfir hrörnar líkaminn. Jafn-
vel þó að einhver gæti algerlega komizt
hjá öllum sjúkdómum, mundi hann um síð-
ir deyja úr elli.
Sumir vísindamenn efast þó um, að
nokkur maður deyi úr elli. Dr. Howard við
Western Reserve háskólann hefir fram-
kvæmt 19000 líkskoðanir og ekki fundið
neina slíka dauðaorsök. Og úr því að all-
margt ungt fólk og jafnvel börn fá krabba-
mein, æðakölkun, hjartasjúkdóma og aðra
svo nefnda hrörnunarsjúkdóma, má til
sanns vegar færa, að ellin sé ekki orsök
þessa sjúkdóma — hún eykur aðeins mögu-
leikana fyrir þá. Eftir því sem æfin lengist,
verður svigrúmið meira fyrir bakteríur eða
annað, sem verður að vera fyrir hendi til
þess að dauðann geti borið að. Við deyjum
ekki — við erum drepin.
Ellin er ef til vill aðeins afleiðing af æfi-
langri baráttu við bakteríur, eitrun, fæðu-
skort, ofþreytu og annað þess konar. Sam-
kvæmt þessari kenningu er ellin ekki nein
líffræðileg nauðsyn, og möguleikarnir til
að lengja drjúgum blóma lífsins því fyrir
hendi.
Má teljasf ánægjulegt, að rannsóknir á
orsökum ellinnar er nú orðin að sérgrein
innan læknavísindanna. Árið 1939 kom út
mikil bók, „Læknisfræðilegar rannsóknir á
eðli ellinnar“, sem 26 mikilsmetnir læknar
stóðu að, og má telja að hún marki tíma-
mót í kerfisbundinni rannsókn á þessu
vandamáli. I fyrra stofnuðu 20 læknar, líf-
eðlisfræðingar og efnafræðingar í Ameríku
„félag til rannsókna á eðli ellinnar“. Þeir
halda fundi öðru hvoru til þess að kynna
hverjir öðrum niðurstöðumar af rannsókn-
um sínum og skipuleggja nýjar rannsókn-
ir. Um sömu mundir hóf heilbrigðismála-
ráðuneyti Bandaríkjanna einnig rannsókn-
ir á þessu sviði og ýmsar stofnanir veita
þeim f járhagslegan stuðning.
Takmarkið er ekki aðeins að f jölga æfi-
árunum, heldur að auka hreysti og heil-
brigði í ellinni. Margir óttast ellina vegna
þess hramleika, sem oftast fylgir henni
— sljóvgun, þverrandi valdi yfir vöðvum
og hreyfingum og stirðnun í liðamótum.
Eru þessi ellimörk óumflýjanleg ?
Þegar læknavísindin leita svars við
spumingu eins og þessari, leita þau oft-
ast á náðir tilraunadýranna. Á Rockefell-
erstofnuninni í New York var hundur, sem
bar öll einkenni ellihrumleikans. Hann var
svo máttfarinn, að hann gat naumast stað-
ið eða étið. Dr. Alexis Carrel ákvað að sjá,
hvað skeði, ef hann dældi í hann nýju blóði.
Með nokkrum aðgerðum tók hann um tvo
þriðju af öllu blóði hundsins, skildi rauðu
blóðkornin frá blóðvatninu, blandaði þeim
saman við upplausn, sem innihélt þau sölt,
sem eru í venjulegu blóði, og dældi svo
þessu nýja blóði í hundinn. Þegar hundur-
inn var búinn að ná sér eftir þessar að-
gerðir, hljóp hann um og gelti, en það
hafði hann ekki gert í mörg ár. Augun urðu
skær, augnalokin eðlileg og hárafarið
fallegra; og það sem var merkilegast af
öllu: kynhvatir hans vöknuðu að nýju.
Hann hafði yngst Xipp.
Dr. Carrel rannsakaði þetta frekar með
vefjaræktaraðferð sinni, en þær eru í því
fólgnar, að hann hefir haldið lifandi hluta
af hjarta úr hænuunga í 25 ár, með því að
geyma það í næringarvökva. Hann tók
eftir, að ef hann bætti blóði úr ungum
hænuungum út í upplausnina, kom fram
breyting í vexti hjartavefjanna. En ef
hann setti blóð úr gamalli hænu út í þá
varð útlit vefjanna í samræmi við aldur
hænunnar.
Dr. Carrel álítur, að orsök þess að endur-
nýjun vefjanna verður meira hægfara með
aldrinum, sé sú, að blóðið sé orðið gamalt.
En að setja nýtt blóð í staðinn fyrir gam-
alt er út af fyrir sig ekki nóg. Hinir öldr-
uðu vefir gefa stöðugt frá sér út í blóðið
hormóna og önnur efnasamþönd. í hund-
inum, sem getið er um hér að framan, mátti
greinilega sjá áhrif þessara efnasambanda
hálfum mánuði eftir að aðgerðin hafði far-
ið fram, og þó að blóðið væri endurnýjað
aftur, hafði það aðeins skammvinn áhrif,
ellimörkin komu fljótlega í ljós á ný.
Hrörnun blóðsins með aldrinum er að
því er virðist aðeins afleiðing af hrörnun
vefjanna, sem gefa frá sér hin óteljandi
efnasambönd, og síðan berast með hring-
rás blóðsins út um allan líkamann. Jafnvel
meltingarvökvar öldungsins virðast vera
öðruvísi en ungliugsins. Til dæmis er ptyal-
ínið í munnvatni áttræðs manns aðeins
einn þrítugasti og fjórði partur af því,
sem er í munnvatni 25 ára manns (ptyalín-
„Ódauðlega baruið“.
Þessi mynd er af Jean Gauntt
— baminu, sem átti að lifa að
eilífu. Honum var komið fyrir
í bamagarði „hins konunglega
bræðralags hugspekinga" í
Oakdale í Bandaríkjunum. —
Sérstakt mataræði, hjúkmn og
hreinar hugsanir áttu að gera
Jean ódauðlegan, en móður
hans snerist hugur og heimtaði
að fá hann heim aftur, svo að
ekkert gat orðið úr þessum
merkilegu(?) tilraunum.