Vikan - 09.04.1941, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 15, 1941
9
Hinn heimsfrægi hnefaieikameist-
ari Gene Tunney, sést hér á. mynd-
inni, þar sem hann er að sverja
ameriska flotanum holiustueið, en
hann var nýlega tekinn í varalið
flotans. Eiðtaki var flotamálaráð-
herrann, Frank Knox.
Styrjöldin er komin til Lands-
ins helga. Kolsvartur reykjar-
mökkur breiðist yfir Gyðinga-
musteri og kirkjugarð í Haifa
í Palestínu eftir loftárás Itala
á oliubirgðir Breta þar. Sagt
var, að 39 Gyðingar hefðu far-
izt en 58 særzt í árásinni.
Síðastliðið sumar var þetta landsvæði frjósamar tóbaks- og hveitiekrur, en innan skamms verður
þetta stærsta púðurverksmiðja Bandaríkjanna — amerískur hraði!
Kanadameim æfa sig undir að taka á móti þýzkri innrás. Brezka varðliðið við Ermarsund var ný-
lega tvöfaldað til þess að vera betur búið gegn innrás. Hér á myndinni sést kanadisk liðsveit, sem
nýlega er komin til Englands. Þeir eru að æfa sig i að flytja skriðdreka og önnur þung hertæki yfir
fljót, og er það einn liðurinn í æfingu heimavamarliðsins.
A leið til Hoilywood. Þessi stúlka
heitir Katherine Rohrer. — Hún
vakti athygli „stjömuveiðara“ frá
Hollywood á dansleik, sem hún
var á í New York, með fegurð
sinni og glæsilegri framkomu.
Hann bauð henni að taka af henni
kvikmynd til reynslu og sú mynd
tókst svo vel, að hún á nú vísan
frama i Hollywood.
Þessi mynd er tekin af Marcia
Pate, seytján ára gamalli stúlku
frá Brookline í Bandaríkjunum,
um borð í skipinu Evangeline á
leið til Nova Scotia. Hún ætlar sér
að verða bílstjóri á sjúkrabíl og
fara til Englands, og er það gert
með samþykki föður hennar.