Vikan - 09.04.1941, Síða 15
15
VIKAN, nr. 15, 1941
voru játninganna börn þá, og söm eru þau
enn í dag.
Nútímamaðurinn heldur sig ekki tilbiðja
afguði, líkt og fáfróðir fornaldarmenn
gerðu, en gleymir því, að nú er það skoð-
un hans eða stefna, sem er eftirlætis-
hjáguð hans, eða jafnvel einasti guð. Og
sannarlega veit hann hið eina rétta, hans
skoðun er hin eina sáluhjálplega trú, hans
stefna á að sigra og stjórna heiminum.
Annara manna skoðun er villutrú hjá sjálf-
um fjandanum upprunnin. Hana skal berja
niður með báli og brandi. — Sami „rétt-
trúnaðurinn" og fyrr á öldum, sömu of-
sóknirnar, sama ofstækið og umburðar-
leysið. Ekkert undur að slíkum mönnum
geðjast illa að kenningunni um hinn
,,óháða“ mann.
Ég var einnig að ljúka við lestur bókar
eftir Julian Huxley, og er hún líffræðileg
erindi. Síðasta erindið fjallar um líffræði
og guðshugmyndina, og er þar fræðimann-
lega á málum haldið, en sennilega færi
„hrollur“ um einhvern rétttrúaðan guðs-
mann við slíkan lestur, og er það lán
fyrir slíkan mann á landi voru, að enginn
xnun ráðast í að þýða þessa bók.
Pétur Sigurðsson.
Framh. af bls. 7
fegurð og dásemdir heimsins að nýju, og
gegnum spurningar þeirra lifað upp aftur
löngu horfna bernsku.
Eftir að ég kynntist gamla manninum
fór ég að taka til í rykföllnum hillum hug-
ans. Ég sá, að ég varð að losa mig við
varfærni ellinnar, eitur óttans og undan-
látsseminnar. Áður hafði mér hrosið hug-
ur við að þurfa að fara í ferðalag. Mér
fannst ég vera of gamall til að hætta mér
út úr öryggi stofukróksins. Ég hafði lokað
mig úti frá umgengni við ungt fólk. Ég
hafði skolfið við tilhugsunina um að mæta
einhverju ókunnugu — fólki, atburðum og
hugmyndum.
Nú tek ég þessu öllu opnum örmum, vit-
andi það, að aðeins með því móti get ég
lifað. Ég reyni að njóta lífsins með öllum
skynfærum mínum, eins og blindi maður-
inn býr til myndir í huga sínum af því,
sem hann þreifar á.
Þegar við hlustum í dag á hamfarir ver-
aldarsögunnar, sem er að skapast allt í
kringum okkur, getur það virzt næstum
því ómögulegt að varðveita trúna á lífið.
En lífsgleðin getur hlotið fullnægingu og
endurnýjun í hlutum, sem liggja svo hendi
nærri, að við komum naumast auga á þá.
jGróður akra og trjáa, litauðgi sólarupp-
'rásarinnar og kvöldsetursins, barnið, sem
leikur sér í hlaðvarpanum, vingjarnleg
sambúð okkar við meðbræðurna. Allt skap-
. ar þetta lífsgleði, gefur lífinu gildi og glæð-
1 ir trúna á það. Og trúin á lífi'ð er máttur
æskunnar.
,y*i*»miiiniiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin*i*ni»»ii*ii*»i**»i»»»***»*»»»»»*»»**»»********i********»*»*»*»****»»*»******* ^
Barnaskór|
| í stóru og fjölbreyttu úrvali ft
Rafmagnsperur, veniulegar,
15—100 watta.
Kertaperur, glærar og litaðar.
Vasaljós.
Battarí í vasaljós.
Skrifborðslampar.
Eldhúsvogir o. fl.
Raftœkjaverzl. Ljósafoss
Laugavegi 26.
Það er alveg áreiðanlegt!
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að það eru fimm ilm-
tegundir, sem njóta almennastrar hylli hjá mönnum.
Það er: ilmur af rósum, furutrjám, fjólum, hyacint-
um og liljum. Sams konar rannsókn leiddi í ljós, að
þær lyktartegundir, sem mönnum þóttu verstar, voru:
lykt af hvítlauk, brenndu gúmmíi, olíu, spiki og hrá-
um fiski. Hvað hvítlauknum viðvíkur, mun það þó
tæplega eiga við um latnesku þjóðirnar og sennilega
munum við Islendingar heldur ekki viðurkenna ólykt-
ina af hráum fiski.
Meðferð ungbarna.
Framhald af bls. 10.
og göngulagsins, og væri, sannast að
segja, hreinasta forsmán, svo að
kveðið sé að þessu á góðri og gildri
íslenzku, ef nú væri hér tekið upp
sama skólagið fyrir ungbörn sem nú
tíðkast á fullorðnum, totuskórnir ill-
ræmdu! Hann er þó sannarlega lysti-
legur, barnsfóturinn, og yndi á að
horfa, meðan hann fær að vera eins
og hann var skapaður, en hverjum
lifandi manni gæti nokkurn tíma
.dottið i hug að segja það sama um
fót á fullorðnu fólki, sem er allur úr
- lagi genginn, skakkur og skældur af
* frammjóum skóm, og ofan í kaupið
háhæluðum eins og kvenfólkið notar.
Utan af hlaðinu
eða götunni
I geta margskonar óþrif — og þau
mjög stór háskaleg — borizt inn í
híbýlin og valdið þar óbætanlegu
tjóni, með svo mörgum hætti að
varla verður tölu á komið. Börnin
vaða venjulega inn í stofur eins og
þau eru til fara, beint úr forinni úti
fyrir, og bera með sér margs konar
óþverra á fótunum. Þessi óþverri
peðrast svo út um öll gólf; þar eru
fyrir önnur yngri börn að ýmsum
leikjum, sum skríðandi og alla vega,
eins og gengur, og ata sig út í þess-
um óþokka, bæði um hendur og föt
sín; svo fara þau máske að borða
rétt á eftir án þess að þvo sér um
hendur, og þarf þá ekki að sökum
að spyrja: þau geta á þennan hátt
fengið ofan í sig allskonar óþrif,
kannske bráðsmitandi sum, t. d.
berklasýkla eða þvilíkt. Það þykir
meira að segja sannað, að berklaveiki
ungbarna sé að minnsta kosti stund-
um svona til komin. Allt ber því að
sama brunni: hreinlæti og þrifnaður
ei-u lífsspursmál fyrir alla, ekki sízt
ungviðið.
Þið mæður! Kennið því börnunum
ykkar allskonar þrifnað og hreinlæti
frá fyrstu byrjun, hafið það fyrir
börnunum í öllu dagfari ykkar, og
þið skuluð sanna að þau taka það
eftir smátt og smátt!
Venjið börn ykkar á að taka af
sér óþrifa-skóna áður en þau koma
inn i stofur eða bæinn og setja upp
aðra inniskó; venjið börnin á að
þvo sér rækilega um hendur áður en
þau fara að borða, og það það jafn-
vel þó ekki séu sjáanleg óhreinindi
á þeim!
Ástæðan til þess, að gamlar Beduinakonur bæði í
Afríku og Arabíu ganga í svo síðum skikkjum, að
þær draga hana við jörð, er sögð vera sú, að með
því voni þær að geta þurrkað út fótspor sín, svo að
illir andar eða freistarar geti ekki veitt þeim eftir-
för. Hvers vegna yngri og laglegri kynsystur þeirra
fylgja ekki þessum gamla sið, segir sagan ekki.
Frá þvi 1804, að Haiti lýsti yfir sjálfstæði sínu og
þar til 1915, að Bandaríkjamenn tóku við stjórn eyj-
arinnar, höfðu verið tuttugu og fjórir forsetar við
stjórn þar, og af þeim höfðu 14 horfið á dularfullan
hátt — og tekið með sér ríkissjóðinn.
Svör við spurningum
á bls. 4:
1. 1412, í Domremy í Frakklandi.
2. 1. október 1938.
3. Sovjet-Rússland, Þýzkaland og
Stóra-Bretland.
4. Santiago.
5. Sigurjón Á. Ólafsson.
6. Skröltormurinn.
7. Volga.
8. Korsíka.
9. 930—-1030.
10. Ein: Kairo, með 1,104,000 íbúum.