Vikan


Vikan - 09.09.1943, Qupperneq 4

Vikan - 09.09.1943, Qupperneq 4
4 VTKAN, nr. 36, 1943 IPrinsinn í ævintýrinu að var um það leyti orðið full dimmt; en Elísabeth vildi ekki kveikja ljós hjá sér. Það var eins og þetta dularfúlla hálfrökkur, sem fyllti herbergi hennar, væri hluti af henni sjálfri; væri samstillt við hugarástand hennar. Þannig skyldi birtan í herberginu vera þær fáu mínútur, sem hún átti eftir að vera í því; þangað til hún kveddi. Hún átti erfitt með að finna þau orð, sem hún helzt vildi segja í bréfinu, en nú var hún samt búin, og hún las bréfið yfir, til þess að festa sér enn betur í minni efni þess: „Ástkæri unnusti minn! Ég sé það í dagblöðunum, að þú hefir opinberað trúlofun þína, og nú er sá tími kominn, að ég verð að senda þér þetta bréf. Þegar þú móttekur það, verð ég ekki leng- ur í lifandi manna tölu. Ég veit, að þér fellur þetta þungt, en ég get heldur ekki dulið það fyrir sjálfri mér, að ég vona líka að þú verðir sorgbitinn. Þú veizt, hversu mjög ég hefi elskað þig, og að ég hefi aðeins hugsað um þig einan, frá þeim degi, er við hittumst fyrst, núna fyrir tæpu ári. Lestu þetta bréf og hugsaðu um þetta, sem ég segi, og gleymdu mér svo. Þín Elísabeth." Hún braut bréfið saman og setti það í gult umslag, sem hún hafði skrifað nafn hans og heimilisfang utan á, nokkru áður. Þegar hún hafði lokið við að líma frímerki á bréfið, fann hún, að dauðastundin var að nálgast. Eftir stutta stund mundi hún verða liðið lík. Þetta mundu vera hennar síðustu orð. 1 litlum skáp á veggnum stóð flaskan með eitrinu, sem átti að losa hana úr þessari dutlungafullu veröld. Það mundi vera hægðarleikur fyrir hana að taka eitrið inn, fyrst hún á annað borð, var ákveðin í því að deyja. Það versta við þetta var að skrifa bréfið, en nú var því lokið, og þá var hún komin yfir erfiðasta hjallann. Þegar hún gekk niður tröppurnar, sagði hún við sjálfa sig, að nú væri bezt að hætta að hugsa um þetta. Hún ætlaði bara að skjótast með bréfið út í næsta póstkassa. Það mundi aðeins taka eina mínútu, síðan ætlaði hún strax aftur til svefnherbergisins — í hinsta sinni. Um leið og hún kom út í dyrnar, sem snéru út að götunni, kom smáatvik fyrir — en það var nóg til þess að tef ja hana, og láta hana breyta um stefnu þá, sem hún annars var búin að ákveða, að póst- kassanum. Neðan úr kjallaranum kom horaður, grár köttur. Hann strauk sig upp að fót- um hennar. Henni fannst hún ekki geta gengið fram hjá honum, hún stanzaði því og klappaði honum á hrygginn; það var auðséð á kvikindisanganum, að það var mjög svangt. Þetta litla mállausa dýr horfði bænar- augum á hana, og mjálmaði angistarlega. Hún beygði sig snarlega, og tók köttinn í fang sér, og fór með hann til baka inn í húsið. Henni varð hugsað til þess, að það væri mjólk í skál í eldhúsinu, og hún fór þangað og setti skálina á gólfið fyrir fram- an köttinn. Síðan flýttí hún sér út aftur. SMÁSAGA o eftir JÖROEN VIBE Það var blæjalogn, en þétt þoka var yfir bænum. Hún gat varla séð nema fá- ein skref fram fyrir sig. Póstkassinn var á næsta horni. Hún staðnæmdist augnablik við kassann með bréfið í hendinni. Það var ekki eins auð- velt og hún hafði búizt við að losa sig við bréfið. Allt í einu heyrði hún fótatak á bak við sig í myrkrinu. Götuljósið fyrir ofan hana var kveikt, það var eftirlits- maður Ijósanna, sem fór framhjá. Hún flýtti sér að setja bréfið í kassann. Hún heyrði þegar það féll niður á botninn, og það fór hrollur um hana um leið. „Góða kvöldið, fröken Elísabet." Það var kalmannsrödd, sem hún heyrði allt í einu, rétt við hlið sér, og Falk bók- sali sem átti húsið, sem hún bjó í, stóð hjá henni. Hún horfði á hann, án þess, að geta sagt eitt einasta orð. Fyrir stundu síðan hafði hún tekið ákvörðun sína, og nú mátti hún ekki verða fyrir töfum. „Eruð þér veikar?“ spurði hann, ,„þér eruð svo fölar.“ Hún hristi höfuðið, og gerði tilraun til [ VITIÐ ÞÉK ÞAS? I | 1. Eftir hvern er þetta erindi? I Sortnar þú, ský! I \ suðrinu í = | og síga brúnir lætur; 1 eitthvað að þér I S eins og að mér i | amar; ég sé, þú grætur. : 2. Hvað er langt frá Reykjavik, fyrir = Hvalfjörð, að Hagnánesvik í Fljótum? | | 3. Hvaða ár hófst kennsla i alþýðuskólan- = | um á Eiðum? i 1 4. Hvenær var biskupsstóllinn á Hólum | | lagður niður? = i 5. Hvenær var Danmörk hemumin af jj = Þjóðverjum ? f | 6. Hvaðan er silkiræktin upprunnin? | 7. Hvenær hófst síðasta styrjöld milli = Japana og Kinverja? i I 8. Hvað hét stjömufræðingurinn, sem \ fann reikistjömuna tJranus, og hverrar s = þjóðar var hann? = 9. Hverrar þjóðar var tónskáldið Karl = Maria von Wéber, og hvenær var hann | | uppi ? = 10. Hvaðan er tóbaksjurtin uppmnnin? i Sjá svör á bls. 14. = 'Miin 11111111111111111111« iii 11111111111 iii ii iim 111111111111 m ii iiiiiitiMMiiM,iMii<J*iMUUUii að brosa, en hún vissi sjálf, að bros henn- ar var hjárænulegt. „Ég ætlaði bara að fara í smá göngu- ferð,“ sagði hún að lokum, „en ég er á heimleið aftur til áð drekka teið.“ „Bíður móðir yðar eftir yður heima?“ „Nei, hún er ekki í bænum, og kemur ekki heim fyrr en á morgun.“ „Svo drekkið þér þá teið aleinar?“ Hvað átti hún að gera til þess að hann færi í burtu? Hana grunaði, að hann mundi vilja koma heim með sér. ,,Já, en ég ætla að ganga svolítinn spöl áður. Ég . . ..“ „Þá göngum við,“ sagði hann glaðlega, og tók undir arm hennar og leiddi hana af stað. Hún var neydd til að fylgja honum. Hann þagði og gekk áfram við hlið hennar. Hvert þau gengu, vissi hún ekki, þau fóru um margar götur, þær vóru gráar og eyðilegar, og þokan grúfði yfir þeim. Fólkið, sem fram hjá þeim gekk sáu þau bara rétt eins og það væri skuggar, er liðu áfram. Þetta var líkast því, sem þau væru komin í álfheima, hugsaði hún. Hún var búin að ákveða það að fyrirfara sér, og hún varð að sjá um að úr því yrði. Foreldrar Elisabeths voru bæði dáin, hún mundi ekkert eftir þeim. Banvænn sóttarfaraldur hafði tekið þau frá henni með eins dags millibili. Kona sú, sem hún kallaði móðuf sína, var uppeldismóðir hennar, hagsýn kona, sem jafnan hugsaði meira um peningana, sem hún fékk fýrir uppeldi hennar, heldur en um hana sjátfa. Elisabeth hafði alla tíð þurft að vinna. Nú var hún bráðum tvítug, og siðustu fjögur árin hafði hún unnið á skrifstofu. Uppeldismóðir hennar hafði líka starfs að gæta, og þær töluðu sjaldan saman. Elisa- beth vissi að mesta áhugamáT uppeldis- móður sinnar var það, að hún giftist, svo að hún losnaði við hana, en unga stúlkan reyndi alltaf að komast hjá því umtals- efni. Hún vildi aftur á móti helzt tala Um bækumar, sem hún um mörg ár hafði ver- ið kaupandi að í bókabúðinni hjá Falk, og þar hafði hún fengið marga góða og hríf- andi ástarsögu. Hún hafði lifað í sínum draumaheimi, og átt sínar vonir, en nú var John trúlof- aður, og þá var lífið henni óbærileg kvöl, það hafði sýnt henni grákaldan vemleik- ann, og hún gat ekki vænst neinnar gleði framar. Þau gengu gegnum skemmtigarðinn, ilm frá nýútspmngnum blómum lagði á móti þeim. Hún dró andann þungt, og gat ekki lengur staðið á móti támnum, sem streymdu fram í augu hennar. Falk leiddi hana að bekk. „Setjizt hér niður augnablik," sagði hann. „Þegar þér stóðuð undir götuljósinu áðan hjá póstkassanum, sá ég strax að eitthvað var að yður. Þér þurfið fyrst og fremst að fá ró og dreifa áhyggjum yðar, reynið þér nú að tala yið mig, eins og ég Framh. á bla. 7.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.