Vikan


Vikan - 09.09.1943, Blaðsíða 11

Vikan - 09.09.1943, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 36, 1943 11 Höfundurinn: Agatha Christie Framhaldssaga „Nú?“ spurði Poirot. „Hvemig þá?“ „Hann mun véra að dást að yfirskegginu yðar,“ sagði ég. „Já, fer það mér ekki prýðilega,“ sagði Poirot, og strauk það, ánægjulegur á svipinn. Jepp rak upp skellihlátur. „Jæja," sagði hann svo, þegar hann var búinn að jafna sig, ,,ég er búinn að gera þetta, sem þér báðuð mig um. Þessar fingurgóma-myndir, sem þér senduð mér —“ „Niðurstaðan ? “ „Engin. Hver svo sem þessi heiðursmaður kann að vera, hefir hann aldrei farið um okkar hend- ur. Hinsvegar símaði ég til Melbourne, en þar þekkist ekki heldur nokkur maður með þessu nafni, sem lýsingin getur átt við.“ „Hum!“ „Svo að hér getur legið fiskur undir steini, þrátt fyrir allt. En hann er ekki í þeim hóp, sem Við þekkjum." „En að þvi er snertir hitt atriðið —“, hélt Jepp áfram. „Já, hvað er um það?“ „Lazarus og sonur eru vel látnir. Hreinir og beinir og heiðarlegir í viðskiftum. Þeir vilja hafa sitt, að vísu, en það er út af fyrir sig, og ekkert við það að athuga. Menn verða að fara eins langt og þeir komast, í viðskiftum. En þeir eru «kkert athugaverðir. Þeir eru þó illa staddir, — fjárhagslega." „Jæja, — er það svo?“ „Verðfallið á myndum hefir valdið þeim miklu tapi. Og eins verðfall á gömlum húsgögnum. Nú berst svo mikið af allskonar nýju dóti frá megin- landinu, og það er að komast í móð. Þeir byggðu nýjar verzlunarbyggingar í fyrra, — en satt að segja munar víst mjóu um það, að þeir verði gjaldþrota." „Eg er yður mjög þakklátur fyrir yðar að- gerðir." „Það er ekkert að þakka. Þetta er að vísu ekki í mínu „fagi“, eins og þér vitið. En ég gerði mér þó far um að kynna mér þetta sem bezt, af því að ég vissi að yður var það áhuga- Forsaga : P°irot °S Haatings vinur ° hans eru nýkommr til St. Loo í sumarleyfi. Nick Buckley býr á Byggðarenda. Hún hefir fjórum sinnum á skömmum tima lent í lifsháska og vekur þetta forvitni Poirots. Hann lætur hana nú segja nákvæmlega frá atburðum síðustu daga og hverjir séu vinir hennar. Nick er þeirrar skoðunar, að þetta séu allt tilvilj- anir, er fyrir hana hafa komið. Poirot grunar, að Nick leyni þá einhverju. Poirot og Hastings fara á laun að Byggðarenda og hitta þar ókunnan mann, Croft, nábúa Nick, og fara heim með honum. Kona hans er veik, en lætur sér mjög annt um allt, er snertir Nick. Litlu síðar heimsækja þeir Vyse lögfræðing og þar beinir Poirot talinu að Nick og Byggðarenda. Nick hafði boðið þeim heim um kvöldið til þess að horfa á flugeldasýningu, og þar kynnast þeir Maggie, sem Nick hefir fengið til að vera hjá sér. Þetta sama kvöld er hún myrt í garðinum á Byggðarenda. Nick verður ör- vingluð og áfellir sjálfa sig fyrir að hafa fengið hana til að koma. Það verður úr að Nick er flutt þá þegar um kvöldið í hress- ingarhæli. Poirot og Hastings ræða um, hver sé morðinginn. Þeir álíta, að Nick leyni þá einhverju. Þegar þeir heimsækja hana í hressingarhælið, fá þeir að vita, að hún hefir verið trúlofuð Michael Seton flugmanni, sem er nýdáinn, en hann hafði beðið hana að leyna trúlofun þeirra, af ótta við frænda sinn Sir Matthew Seton mill- jónamæring. Af öllu þessu dregur Poirot ýmsar ályktanir, og fær leyfi Nick til að fara að Byggðarenda og leita að erfða- skránni, sem hún veit ekkert, hvar er niður- komin. Þar hitta þeir Ellen og ræða við hana um atburðinn, og af hverju hún hafi ekki verið úti kvöldið áður til að horfa á flugeldana. Þeir leita nú víða í húsinu og finna þar loks mörg bréf frá unnusta Nick. 1 þeim finna þeir sönnun þess, að Michael hafi arfleitt hana, og þykir Poirot það vera góðar upplýsingar fyrir þá. Þeir fara nú til Nick og tjá henni, að þeir hafi ekki fundið erfðaskrána. Þá man hún allt í einu eftir því, að hún hafði sent hana til Charles Vyse lögfræöings, en hann neitar að hafa fengið hana. Croft, sem gerði erfðaskrána með Nick, staðhæfir að hann hafi sent hana til Vyse. Weston yfirlögregluþjónn kemur og ræðir við Poirot. Nokkru síðar fara þeir til London og hitta lögfræðing Setons-ætt- mál, og okkur er jafnan auðvelt að fá upplýs- ingar." „Minn góði Jepp, -— hvernig' færi ég að, ef ég ætti yður ekki að?“ „Við skulun nú ekki vera að tala um það. Það er alltaf gaman að geta gert gömlum vini greiða. Og ég lét það stundum eftir yður, að hnýsast í ærið skemmtileg mál hjá mér, í gamla daga, gerði ég það ekki?“ Eg kannaðist við þetta -— svona snéri Jepp því, þegar hann var að kannast við að hann væri í þakklætisskuld við Poirot, sem greitt hafði úr úr margri flækjunni, sem fulltrúinn hafði ekkert ráðið við. „Já, það var nú í þá góðu, gömlu daga.“ „Og ekki myndi ég hafa neitt á móti því, að geta skrafað við yður öðru hvoru, jafnvel nú. Það getur verið að yðar aðferðir séu orðnar á eftir tímanum, en hausinn á yður hefir upphaf- lega verið skrúfaður rétt á svírann." „En hvað er um hitt atriðið, — viðvíkjandi Mac Allister?" „Æ, sá skarfur. Hann er kvenlæknir, — þó ekki kynsjúkdómalæknir. Hann er einhverskonar taugalæknir, — segir kvenfólkinu að sofa í purp- urarauðum svefnherbergjum með gulmáluðum loftum, — talar við þær á latínu, sem þær skilja ekki, og þar fram eftir götunum. Hann er eins- konar gerfilæknir, en kvenfólkið streymir til hans. Fer oft til útlanda, — starfar eitthvað að lækn- ingum í París, að því er ég frekast veit.“ „Hver er þessi Mac Allister læknir?" spurði ég, ruglaður. Ég hafði aldrei heyrt hann nefndan. „Hvar á hann heima i þessu máli?“ „Mac Allister er frændi Callengers," svaraði Poirot. „Þú manst það víst, að hann mintist á frænda sinn, sem væri læknir?" „Hvað þú ert alltaf nákvæmur," varð mér að orði. „Datt þér í hug, að hann hefði gert upp- skurð á Sir Matthew?" „Hann er ekki skurðlæknir," svaraði Jepp. „Vinur minn,“ sagði Poirot, „ég hefi gaman að hnýsast í alla smámuni. Hercule Poirot er góður. Hundurinn þefar sig áfram eftir sporun- um, og ef svo vill illa til, að hann finnur engan mildu sápunnar | Minnslu ávallt I Ozolo Desinfector er ómissandi í vaska, ' sal- erni og í upp- þvottarvatnið. Ilmurinn gjör- breytir híbýl- um yðar. Heildsölubirgðir: Agnar Norðf jörð & Co. h.f. Sími 3183. Avallt fyrirliggjandl. Einkaumboð: Jóh. Karisson & Co. Sími 1707 (2 línur;. Laitozone baðmjólk mýkir vatnið og gefur yður mjúka og sterka húð. Heildsölubirgðir: Agnar Norðf jörð & Co. h.f. Simi 3183.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.