Vikan - 09.09.1943, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 36, 1943
9
51 dag- matarlaus í björgunarbát var hún, þessi
kona, frú Margrét Gordon. 16 bátsverjar, sem upp-
naflega höfðu komizt í bátinn, eftir að skipi þeirra
hafði verið sökkt, dóu af sulti og vosbúð. En
þriðja stýrimanni og þessari konu var einum
bjargað.
Fljúgandi virlti, sem ekki var flughæft. í>etta virki kom þannig til bækistöðva sinna eftir viður-
eign við þýzkar flugvélar, að afturhluti þess var allur sundurtættur, en það lenti þó heilu og
höldnu. En þegar dyrnar á þvi voru opnaðar, brotnaði það um þvert í miðju, — var m. ö. o. óhæft
til flugs, þó það kæmist heim.
Nýjar bækistöðvar fyrir brezka flugherinn eru höggnar í kletta á
eyjunni Malta.
Flugvél flýgur 2000 mílur mannlaus. Hún rakst á fjall í Mexíkó, eftir
2000 mílna flug, mannlaus. Flugmennimir, — sem hér sjást á myndinni,
höfðu fleygt sér út úr henni yfir Florida, er þeir höfðu misst stjórn á henni.
Nægilega stór einkennisbúningur er eltki til handa þessum náunga,
hjá klæðskerum Bandaríkjahersins. Hann varð þvi að byrja her-
æfingar í sínum eigin fötum. En einkennisbúningurinn var saum-
aður á hann eftir máli, sem vera mun einsdæmi.
Hundraö og fimm ára afmæli átti
þessi kona nýlega. Hún heitir
Anna María Oswald Huber og á
heima í Harrison N. Y.
„Ike“ á vígstöðvunum. Eisenhover
hershöfðingi (,,Ike“) sést hér á
myndinni, hýr á svipinn, með
hlýja prjónahúfu á höfðinu.