Vikan


Vikan - 23.06.1949, Page 4

Vikan - 23.06.1949, Page 4
4 VIKAN, nr. 25, 1949 Masuccio Salernitano: IUariotto og Giannozza. Skáldjöfurinn Shakespeare fékk efnið í hið fræga leikrit sitt, Romeo og Júlía, úr þessari smásögu. Höfundur sögunnar er fæddur um 1420 í Salemo á Italíu. Hann var um skeið ritari við hirðina í Neapel, og var í miklu áliti sem rithöf- undur. Salernitano andaðist árið 1474. En 1476 var prentuð bók hans: II novell- ino. Eru sögurnar fimmtíu og tileinkaðar furstafrúnni í Neapel. Masuceio er ekki myrkur í máli, er hann ræðir ástamálin, og lýsir oft hræsni munka og skinhelgi í sögum sínum. Hann er álitinn bezti rithöfundur síns tíma. Bókmenntafræðingar eru sammála um það, að þessi saga sé uppistaðan í leikrit- inu Romeo og Júlía sem fyrr er sagt, þó að nöfn elskendanna, og staðurinn, sem sagan gerist á, séu önnur en hjá Shakespeare. Og hefst hér sagan: Einhvem tíma fyrir skömmu bar það á góma þar sem margar konur voru saman komnar, að ungur fallegur vel búinn maður að nafni Mariotto, af góðu fólki kominn, væri ástfanginn í fagurri ungri stúlku, er hét Giannozza. Hún var dóttir alþekkts og mjög mikilsmetins manns, ég má segja af Saraceniætt- inni. Og það fylgdi sögunni að ung- mærin hefði fellt mjög heita ást til Mariottos. Er þau höfðu um tíma látið augun tala sínu ástamáli, þráðu þau að njóta sælu ástarinnar. Þau hugsuðu ráð sitt. Það var Giannozza sem fann lausnina. Þau yrðu að ganga í hjónaband, bak við tjöldin. Á þann hátt gætu þau notið hvort annars um tíma, hvað sem framtíðin bæri í skauti sínu. Þau báru' fé á munk nokkurn, og gaf hann þau saman, án vit- undar annara. Nutu þau svo ástarsæl- unnar um skeið, og teygðu bikar nautn- anna í botn. En svo gerðust örlögin þeim ómild. Dag nokkurn komst Mariotto í deilur við annan borgara bæjahins. Létu þeir hendur skifta, barði Mariotto andstæðing sinn í höfuðið með einhverju barefli. Varð af sár mikið, er dró manninn til dauða að fám dögum liðnum. Mariotto fór huldu höfði. Var hans leitað gaumgæfilega af þjónum réttvís- innar. Mariotto var útlægur ger ævilangt og bannfærður til frekari áréttingar. Þeir einir, sem orðið hafa fyrir sárum harmi og ástvinamissi, geta gert sér grein fyrir ógæfu ungu elskendanna, eða hjónanna. Þau bjuggust við ævilöngum skilnaði, og grétu sárt er þau kvöddust. Þó álitu þau það ekki með öllu útilokað, að Mariotto yrði að mörgum árum liðnum leyft að hverfa heim og gefnar upp sakir. Þau urðu ásátt um það, að Mariotto skyldi ekki einungis fara frá Toskana, heldur af Italíu, og halda til Alexandríu. Þar átti föðurbróðir hans heima, og hét Nikolaus Mignanelli. Var hann ríkur kaupmaður og víðkunnur. Ungu elskendurnir lofuðu hvort öðru því að skrifa svo oft sem tækifæri byðist. Ætluðu þau aldrei að geta slitið sig hvort úr annars faðmi. Endurtóku þau aftur og aftur heit sín um órofa tryggð og eilífa ást. Mariotto hafði sagt einum bræðra sinna frá öllu saman, og fengið loforð hans viðvíkjandi því, að honum bærust sífellt fregnir af líðan Giannozzu. Svo 'fór hann til Alexandríu. Ferðin gekk slysalaust. Föðurbróðir hans tók mjög vel við honum. Mariotto sagði frænda sínum frá öll- um málavöxtum. Föðurbróðir hans gerði lítið veður út af því þó bróðursonur hans hefði orðið mannsbani. En að hann hefði sett blett á ættina taldi hann meiru skifta. En þar sem frændi Mariottos var vitur maður, vissi hann, að ekkert ávannst með mælgi né harmatölum. Hann ákvað í þess stað að leita um sættir og reyna að lina sorg frænda síns. Hann lét Mariotto vinna við verzlun sína og sýndi honum mikinn kærleika. En ungi maðurinn var svo harmi lostinn, að hann grét oft yfir örlögum sínum. En ekki leið svo nokkur • mánuður, að hann fengi ekki mörg bréf frá sinni heittelskuðu Giannozzu, og bróð- ur sínum. Voru bréfin elskendunum all mikill harmaléttir, eða líkn með neyð. Er tímar liðu, fór faðir Ginnozzu að koma að máli við dóttur sína um giftingu. Hún fór undan í flæmingi. Kvaðst hún ,>%«iiaiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiliiitiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiMiiiiimiiiiiiiiii u, I VEIZTU -? I 1 1. Hve mörg eru stig hershöfðingjatignar : í her Bandaríkjamanna, og hvert er 1 hæsta stigið? I | 2. Hvenær var óperan „La Traviata = fyrst leikin og hvar? = 3. Eftir hvern er óperan „Lohengrin" ? = I 4. Hvað er langt til Skotlands? 1 5. Hvar er Hrólfssker? \ \ 6. Hvað er „skapþing" ? 1 7. Hver boðaði fyrstur kristna trú á | Islandi ? | I 8. Hver er eðlisþyngd gimsteina ? | 9. Hver er harka þeirra? = 10. Eftir hvern er ljóðabókin „Kurl“? Sjá svör á bls. 14. ekki hafa augastað á mannsefni að svo komnu. En er faðir hennar hafði oft rætt þetta mál, varð hún að láta undan. Hann hafði mannsefni á boðstólum er ekki tjó- aði á móti að mæla. En hún ætlaði aði kjósa dauðann heldur en ganga að eiga. nokkum mann. Hún áleit nú orðið von- laust, að hennar heittelskaði eiginmaður,. er hún hafði gengið að eiga með launung, mundi eiga aftur kvæmt. Giannozza áleit það enga bót að segja föður sínum frá. þessu. Svo lét hún undan að nafninu til. Þótt- ist hún ætla að fara að ráðum föður síns, og samþykkti tillögur hans. Lét hún senda eftir presti þeim, er hafði gift hana og trúði honum fyrir öllu. Bað hún prest- inn hjálpar með mörgum fögrum orðum. Presturinn var á báðum áttum. En gull það, er hún bauð honum, reið baggamun- inn. Munkur þessi, eða prestur, gat búið til undradrykk úr margskonar dufti. Ef þessa drykkjar var neytt féll sá, er hann hafði drukkið, í svefn, er stóð yfir þrjá daga, og sýndist dáinn. Þvílíkan drykk fékk munkurinn henni. Að því búnu neytti hún drykkjarins, og féll til jarðar eins og örend. Þjónustu- meyjar hennar hófu upp harmakvein mikil. Kom faðir Giannozzu þegar og margt manna með honum til þess að sjá hverju þetta sætti. Er hann sá sína heitt- elskuðu einkadóttur þannig, lét hann sækja marga lækna, til þess að gera allt, sem í mannlegu valdi stóð henni til bjarg- ar. En engum tókst að vekja Giannozzu. Var það álit allra viðstaddra að hún hefði orðið bráðkvödd. Heilan sólarhring var hún höfð í húsinu og yfir henni vakað, ef ske kynni að hún raknaði við. En að þessum tíma liðnum var hún jarðsett og látin í grafhvelfingu ættarinnar í kirkju hins heilaga Ágústusar. Var sorg föðurins átakanleg. Við jarðar- förina mættu allir íbúar bæjarins sem vettlingi gátu valdið. Samkvæmt samningi var Giannozza sótt um miðnætti af hjálparmönnum munks- ins, og flutt heim til hans. Þar hófst hann handa við það að vekja hana til lífsins. Var það ekki áhlaupaverk. Notaði hann til þess eld og önnur hjálparmeðöl, sem hér verður ekki greint frá. Er Giannozza reis á fætur klæddist hún sem munkur. Svo liðu nokkrir dag- ar. Að þeim liðnum fylgdi munkurinn henni til hafnarinnar í Pisa, þar lágu gal- eiður, er fara áttu til Alexandríu. Voru þær frá Aiguesmortes. Sá staður var í Suður-Frakklandi í nánd við Marseille. Þau fóru fram í eina galeiðuna, sem ferðbúin var. Af ýmsum ástæðum voru galeiður þessar oft svo mánuðum skipti á ferð sinni, þar til þær komu til ákvörð- unarstaðanna. Gargano, bróðir Mariottos, hafði skrif- að bróður sínum um hinn sorglega dauða Giánnozzu, og sagt honum frá jarðarför hennar mjög greinilega. Ennfremur sagði Framhald á bls 7.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.