Vikan


Vikan - 29.10.1992, Side 14

Vikan - 29.10.1992, Side 14
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR UÓSM.: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR OG FLEIRI DLISIJIV fá handsaumaöa skó eftir máli hjá Tutty’s Handmade Shoes. Á veggjum hanga skinn sem hver og einn get- ur valið í skóna sína eöa stígvélin. Við tölum oft um versl- unarhallir, glæstar byggingar sem reistar hafa verið yfir alls konar versl- anir og fyrirtæki. Hins vegar eigum við því alla jafnan ekki að venjast að verslanir séu til húsa í raunverulegum höllum enda fyrirfinnast ekki hallir hér á landi. íbúar Dublinar á ír- landi geta státað af raunveru- legri verslunar„höll“. Þar eru hvorki fleiri né færri en sjötíu verslanir og ein níu veitinga- hús undir einu og sama þak- inu í höll sem reist var á átj- ándu öld og gengur nú undir nafninu Powerscourt Town- house Centre. Það var Powerscourt lá- varður, þingmaður fyrir Wicklow-hérað, sem lét reisa sér höll eða borgarhús í Dublin. Hann átti sveitasetur nokkuð sunnan við Dublin og þaðan kom granítið sem hús- ið var byggt úr. Húsbyggingin hófst árið 1771 og tók þrjú ár. Dublinarhöll Powerscourts er í georgískum stíl sem vfða má sjá í borginni. Innan dyra er mikið af óvenju fallegum gifs- skreytingum á veggjum og loftum, sem hægt er að dást að milli þess sem menn skoða vöruúrval búðanna. ÚR HÖLL Í TOLLHÚS ; Árið 1807 keypti hið opinbera, það er að segja stjórnvöld í j London, þessa borgarhöll og ; þegar var hafist handa um að ' byggja hús út frá höllinni og ■ umhverfis hallargarðinn. Fjór- um árum síðar fluttu starfs- menn tollastjóra inn og voru «u« s e ■ v.''f • £ 1 - ^ p Jfii > la A Miöhluti verslunar „hallar- innar“- hallar- garóurinn þar sem nú er veit- ingahús undir gler- þaki. þar fram til ársins 1832 að þeir fluttust í Tollstöðina í Dublin. Þá komst höllin i eigu Ferrier Pollock vefnaðarvöru- heildsala sem keypti húsið fyrir 7500 pund. Hagnaður hins opinbera var því heldur Iftill, svo ekki sé meira sagt, því að viðbættu upprunalega kaupverðinu, 15.000 pundum, kostuðu framkvæmdir við það önnur fimmtán þúsund pund. Ekki hafði Pollock átt húsið nema í þrjár vikur þegar í því kviknaði og mikil mildi að ekki varð alvarlegt tjón. Höllin var í eigu Pollock-ættarinnar fram á áttunda áratug þessarar aldar en þá var hún seld enn einu sinni og nú var ákveðið að breyta henni í verslunar- höll sem opnuð var almenn- ingi árið 1981. SIÖTÍU VERSLANIR OG NÍU VEITINGAHÚS Powerscourt Townhouse Centre er aðeins steinsnar frá göngu- og verslunargötunni Grafton-stræti. Húsið var orð- ið vægast sagt niðurnýtt þeg- ar það skipti um eigendur fyrir rúmum áratug og margt þurfti að gera til þess að gæða það því lífi sem það nú hefur öðl- ast. í verslunarhöllinni eru nú sjötíu verslanir og níu veit- ingahús auk tveggja sýningar- sala, þar sem haldnar eru listasýningar og fleira, en írska listiðnaráðið ræður yfir öðrum þessara sala. Húsagarðurinn hefur verið hellulagður og byggt yfir hann glerþak. í honum miðjum er eitt veitingahúsanna og upp- hækkaður pallur þar sem haldnar eru sýningar og Jiisiiil* .............; 14 FERÐAVIKAN 1992

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.