Vikan - 29.10.1992, Qupperneq 24
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON
MEWCASTLE
IWIKASTALI ER
Oiemw OAMALL
▼ Tveggja
hæða
strætis-
vagn í
Beamish
safninu.
Með
honum
geta
gestir
feröast.
Ættmóðir Ölfusárbrúar
og járnbrautanna er
ein helsta verslunar-
borg Englands um þessar
mundir. Hún stendur við ána
Tyne og var eitt sinn miðstöð
kola- og járnflutninga. Nú til
dags skartar áin Tyne hins
vegar öðru og meiru en kola-
bingjum og stálhrúgum á
prömmum en á henni er meðal
annars að finna fljótandi næt-
urklúbb sem þónokkur hópur
íslendinga hefur heimsótt.
Hún heitir Newcastle og
samnefnt knattspyrnulið hefur
( haust unnið hvern leikinn á
fætur öðrum. Nú er svo komið
að áhangendur liðsins þurfa
margir hverjir frá að hverfa
þegar liðið á heimaleiki og ef
svo heldur fram sem horfir er
þar á ferðinni nýtt stórveldi í
enskri knattspyrnu. Það er
enginn annar en gamli snill-
ingurinn Kevin Keegan sem
meðal annarra hefur fengið
þessu áorkað. Ekki meira um
fótbolta.
RISAVERSLUNAR-
MIÐSTÖÐ
í borginni búa tvö hundruð og
áttatíu þúsund manns eða
rétt rúmlega eitt stykki íslensk
þjóð. Áin Tyne var um aldir
helsta lífæð Newcastle en nú
hefur malbikið tekið við því
hlutverki og þangað streyma
Englendingar úr nærliggjandi
borgum í verslunarerindum.
Til dæmis má finna í borginni
stærstu verslunarmiðstöð
Evrópu, Metro Center, geysi-
legt flæmi að gólffleti. Mönn-
um hefur reiknast til að sá
sem gengur allar götur mið-
stöðvarinnar gangi alls fimm
kílómetra leið. Þá eru undan-
skilin þau tilvik þar sem farið
er inn í verslanir, veitinga-
staði, sem eru um fimmtíu
talsins, skemmtigarð, kvik-
myndahús eða í keilu. Allt
undir þessu sama, risastóra
þaki.
Verslunarmiðstöðin stóra er
rétt utan við miðborgina en
þangað ganga bæði járn-
brautarlestir og almennings-
vagnar auk þess sem tólf þús-
und bílastæði eru til taks. Inni
í miðborginni er að finna aðra
stóra verslunarmiðstöð, Eldon
Square, en úr henni er gengið
út á helstu verslunargötuna,
Northumberland Street. Gat-
an sú heitir svo í höfuðið á
Norðymbrum sem þarna réðu
ríkjum fyrr á öldum. Þá áttu
þeir í átökum við forvera okk-
ar, víkingana, og voru „strák-
arnir okkar" síður en svo vel-
komnir á þessar slóðir. Nú eru
breyttir tímar og íslendingum,
sem og öðrum norrænum
mönnum, tekið fagnandi þar
sem þeir koma að þessum
fyrrum endimörkum Róma-
veldis.
Fyrir þá sem ekki eru ein-
göngu í þeim hugleiðingum
að skylmast við sölumenn
með kreditkortum er margt að
sjá og skoða. Rómverjar
reistu vegg til forna þarna í
Norðymbralandinu og það
mannvirki má sjá enn þann
dag í dag rétt norðan við
Newcastle. Veggurinn mark-
aði endimörk rómverska
heimsveldisins að norðaust-
anverðunni. Fleiri merkar
byggingar má nefna, eins og
til að mynda kastalann sem
borgin dregur nafn sitt af.
Hann er reyndar ekki nýr,
reistur fyrir níu hundruð árum
og þá var hann kallaður
Nýikastali, New-castle.
BAKKGÍR TÍMAVÉLAR
Dómkirkjan er líka fræg. Hún
skartar meðal annars turn-
spíru sem stendur enn þann
dag í dag vegna þess að þar
voru geymdir stríðsfangar
þegar skoskir fjendur Eng-
lendinga ætluðu að sprengja
hana í loft upp. Þetta var árið
1644 en spírunni var bætt
ofan á kirkjuna árið 1470 og
þá var kirkjan um það bil aldar
gömul. Og skammt fyrir utan
borgina er gömlum hefðum
haldið á lofti á annan hátt, í
Beamish-safninu. Þegar mað-
ur kemur inn (þetta safn skipt-
ir maður um gír í tímavélinni,
fer í bakkgírinn og aftur um
hundrað ár eða svo. Karlar
með göngustafi og pípusterta,
sterkan hreim og uppfullir af
enskri kímni fylgja gestum og
gangandi niður í fornar námur.
Prúðbúnar hefðarfrúr inni á
fínum heimilum heilsa kurteis-
lega, umkringdar öllum tilheyr-
andi pífum og blúndum (
stássstofum að hætti gömlu,
góðu daganna.
Hér hefur aðeins fátt eitt
verið nefnt af því sem
Newcastle býður upp á. (s-
lendingar hafa í síauknum
mæli flogið til borgarinnar,
sótt þangað hressingu, and-
lega sem líkamlega og jafnvel
eitthvað fatakyns og fleira. í
vetur býður ferðaskrifstofan
Alís ferðir til Nýjakastala sem
áður og víst er að marga fýsir
að kynnast þessari forvitni-
legu borg betur. □
24 FERÐAVIKAN 1992