Vikan - 21.10.1993, Blaðsíða 62
PARFUM
iLMV/
t
4H#I#
OSMOSE
CUTI
INSTANT
ÍIOHEAL I
rECHMIQUfc ,)
W< OF r 5 ö ION H f *-.L
L'ORÉAL
Osmose heitir
nýja froðu-
næringin frá
hentar vel hvort
sem er þurru hári
lituðu eða með
permanenti.
Á dögunum fór
fram kynning á
vegum Klassik á
nýjasta ilmvatninu
frá Yves Saint
Laurent. Margt
prúðbúið fólk var
viðstatt þennan g
atburð - það þyk- <
ir ævinlega tíðind- 1
um sæta þegar
nýr og spennandi j £
ilmur kemur á
markaðinn, sem
jafnvel á eftir að
marka tímamót á
þessu sviði.
JNTÁÖMMU LÚ:
»AGNE
Sigrún Sævarsdóttir annaðist
kynninguna og var henni vandi á
höndum því að ekki er einfalt mál
að lýsa eðli og kostum fram-
leiðsluvöru af þessu tagi. Henni
tókst engu að síður vel upp og
verður hér vitnað í orð hennar.
„Yves Saint Laurent hefur ver-
ið brautryðjandi í heimi tísku og
ilmvatna í meira en þrjátíu ár. í
lok sjöunda áratugarins kynnti
YSL ilmvatnið opium. Það hristi
upp í ilmvatnsheiminum svo um
munaði og margir urðu hneyksl-
aðir og reiðir en hér var komið
ögrandi og lostafullt ilmvatn. Sagt
hefur verið að opium hafi valdið
byltingu og varð það söluhæsta
ilmvatnið í lok sjöunda áratugar-
ins og í byrjun þess áttunda í
flestum heimsálfum.
Nú hefur champagne bæst í
hóp ilmvatnanna frá YSL. -P
Hvaða tilfinningar vekur nafnið
upp hjá ykkur, góðir gestir? Fyrir
YSL er orðið champagne merkip
um ástríðuþrungnar tilfinningar, ]0
um sannan munað eða lúxus og
er merki um þor og djörfung.
Yves Saint Laurent þekkir
sjálfur vel dýrmætar stundir á-
stríðuþrunginna tilfinninga. í yfir
þrjátíu ár hefur hann verið kallað-
ur fram á sviðið eftir töfrandi
tískusýningar sínar. Áhorfendur
hafa verið undrandi, hrærðir og
fullir lotningar eftir að hafa horft á
hina ódauðlegu sköpun meistar-
ans líða um sviðið. Hann hefur
ætíð náð að hreyfa við tilfinning-
um fólks og vakið gleði sem
meðal annars er tjáð með dynj-
andi lófataki í lok sýningar. - Og
svo er skálað í kampavíni.
champagne er eitthvað sem er
hefð, eitthvað sem er fágað, eitt-
hvað sem táknar einstök gæði,
eitthvað sem alltaf stendur upp
úr og tekið er eftir.
Yves Saint Laurent blandar
saman einfaldleika og mikilleika,
hönnun hans er aldurslaus,
ögrandi munaður." □
M
,
/* rs
YVES SAINT LAURENT
„Haust- og vetrarlína Yves Saint Laurent flytur okkur á vit ævintýra, þar
sem álfar og huldufólk búa. Við heyrum skrjáfur í glansandi silki, sjáum
pífur og borða þyrlast um allt og skó úr satíni dansa eftir gólfinu. Það er
sem kjólarnir samlitist sólinni, tunglinu og stjörnunum.
Litir eru Ijósir og þokukenndir, eins og klipptir af skýjahulu - með
gylltu ívafi til að lýsa upp nóttina og bleikri slæðu eins og til að róa niður
daginn."
Línan heitir Fantasie.