Vikan - 18.12.1993, Blaðsíða 30
SALRÆN SJONARMIÐ
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SKRIFAR UM SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
JÓLAHUGLEIÐING
f • •
JAKVÆÐ OFL OG
MANNKÆRLEIKUR
Þegar ég sit hérna og
skrifa þessa jólahug-
leiðingu vill svo til að
fyrstu snjókorn vetrarins eru
að falla eitt af öðru og jörðin
verður smám saman hvít.
Þetta veðurfar er einmitt það
sem minnir svo á jólin. Von-
andi fellur úr himinhvolfinu
jafnframt hvít kærleiksdrífa á
flest heimili landsins og inni-
heldur þau öfl jákvæðni og
mannkærleika sem hafa áhrif
á hugarþel okkar þessi jól
sem og aðra og ögn óhátíð-
legri daga, okkur til blessunar
og vonandi aukinnar ham-
ingju.
LAGDURI JÖTU OG
KLÆDDUR í REIFAR
Ef við hverfum tvö þúsund ár
aftur í tímann, aftur að fæð-
ingu frelsarans okkar sem
einmitt sá Ijós heimsins á jól-
unum, þá kemur okkur síst í
hug snjór og kuldi eins og er
hér norður á hjara veraldar-
innar, á þessu landi íss og
elda. Miklu frekar dettur okkur
í hug hiti, þurrkur og sól í
landi sem geymir í endur-
minningum sínum minningu
um lítinn dreng sem fæddist í
fjárhúsi af því að það var ekki
pláss fyri'r foreldra hans í gisti-
húsinu. Hann var lagður í jötu
og klæddur í reifar í borginni
Betlehem í landi rísandi sólar
af fátækum foreldrum. Mann-
gildi litla drengsins var mjög
sérstakt því hann var boðberi
nýrra strauma í sammannleg-
um samskiptum sem byggja
á kærleiksboðskap þeim sem
hann gaf okkur mönnunum til
að vinna úr og lifa eftir.
SAMVISKAN OG
MANNBÆTANDI
HANDLEIDSLA
Um þessi jól sem og önnur
minnumst við fæðingar þessa
Vinsamlegast handskrifið bréf til Jónu Rúnu
og látið fylgja fullt nafn og kennitölu, ásamt
dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri
og því miður er alls ekki
hægt að fá þau í
einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25
104 Reykjavík
stórkostlega guðssonar sem
gaf okkur þá huglægu hand-
leiðslu sem viturlegt og
mannbætandi er að fara eftir.
í dagsins amstri er gott að
minnast kenninga frelsara
okkar, Jesú Krists. Við vitum
öll að eins og málum er hátt-
að í lífi okkar flestra eigum við
flest til í upplagi okkar mikinn
góðleika. Við eigum líka til
eitthvað sem heitir samviska
og hana þurfum við að skoða
reglulega. Við megum ekki
vera svo upptekin að keppast
við að eignast sem mest á
sem stystum tíma að við lát-
um tækifærin til þroska fjúka
frá okkur. Viö fáum öll tæki-
færi til að takast á við okkur
sjálf, ekki síst í gegnum þá at-
burði og samskipti sem við
eigum hvert við annað, já-
kvæð sem neikvæð eftir at-
vikum.
TÍMABUNDIN
VONBRIGÐI OG KVÍDI
Á einni mannsævi getur ýmis-
legt gerst sem getur breytt
fólki. Það er vegna þess að
sú reynsla sem við förum í
gegnum er þess eðlis að hún
reynir á eðlisþætti okkar, ým-
ist á jákvæðan eða neikvæð-
an máta. Stundum erum við
þeirrar skoðunar að það sem
er mótdrægt í lífi okkar sé böl
og bregðumst við því með
þeim hætti að okkur þykir
sem forsjónin hafi lítið dálæti
á okkar ágætu persónu og
þess vegna hafi hún ekki hlíft
okkur við þeim árekstrum lífs-
ins sem valda okkur tíma-
bundnum vonbrigðum og
kvíða.
MISJÖFN OG
MARGSLUNGIN PRÓF
Það er ekki vegna þess að
Guð vilji ekki veg okkar sem
mestan að hann ætlast til að
við vinnum úr mótlæti af
æðruleysi og jákvæðni. Hann
veit sem er að ef prófin f
skóla lífsins eru ekki misjöfn
og margslungin reynir lítið
sem ekkert á námshæfni okk-
ar í þessum sérstaka en óum-
flýjanlega skóla okkar allra.
Hann saman stendur af
nokkrum bekkjum og hinum
ýmsu fögum og svo náttúr-
lega einhvers konar próftöku
sem gefur okkur í einkunn
aukinn lífþroska í stað talna
sem við flest eigum að venj-
ast í hefðbundna skólakerfinu
og metum stundum of mikils.
GUDLEG FORSJÁ
ER MIKILVÆG
Það er því viturlegt fyrir okkur
öll að lita þannig á lífið að það
gefi því gildi að þurfa að berj-
ast dálítið fyrir tilvist sinni og á
ólíkum forsendum. Velgengni
er eitthvað sem flestir kjósa
að grípi um sig í lífinu og til-
verunni. Vitanlega væri ósköp
gott ef allt gengi öllum stund-
um alveg eins og við kjósum
að það geri. Málið er samt að
við erum bara ófullkomnir
menn og eigum augljóslega
okkar rétt en við vitum bara
alls ekki alltaf hvað okkur er
fyrir bestu í hverju máli. Það
er því ákjósanlegt að yfir okk-
ur sé vakað af drottni þegar
mótlæti knýr á.
GÖNGULAGIÐ MIKIL-
VÆGARA EN GATAN
í þannig tilvikum er gott að
vita, eins og af öðrum og ögn
léttbærari ástæðum, að við
eigum okkur föður á himnum
sem er elskuríkur og alvitur
og getur sökum þess fundið
þann veg fyrir okkur sem er
ákjósanlegast fyrir okkur að
ganga eftir og á. Jafnvel þó
hann sé hvorki malbikaður
eða skrauti hlaðinn þarf hann
ekki að vera svo slæmur ef
við göngum hann hægt og
bítandi. Hraðinn, sem við
göngum á, þykir ekki skipta
öllu máli heldur hvernig
göngulagið er. Það skiptir
nefnilega meira máli en veg-
urinn sem síkur, þó vissulega
sé ákjósanlegt að hann sé
þægilegur yfirferðar og nokk-
uð beinn.
VERTÍÐ
SÖLUMENNSKUNNAR
í íslensku samfélagi hefur
undanfarin tvö ár verið í gangi
mikil kreppa og erfið heimilun-
um. Þessi jól, sem eru fram-
undan, mun þess örugglega
sjást merki að fjölskyldur
landsins eiga margar hverjar
um sárt að binda sökum
minnkandi tekna, vegna með-
al annars atvinnuleysis. Því
miður hafa jólin á umliðnum
árum litast mikið af peninga-
sjónarmiðum hvers konar.
Sumir segja jólahátíðina vera
eins og vertíð fyrir hvers kyns
sölumennsku sem gengur of
langt siðferðislega, því miður.
VERÐMÆTATENGDAR
RANGHUGMYNDIR
Málið er að ef jólahátíðin
verður eins og hver önnur
kauphátíð efnalegra verð-
mæta, sem gera lítið annað
en að skapa verðmætatengd-
ar ranghugmyndir hjá yngra
fólki, er hún augljóslega að
hverfa langt frá uppruna sín-
um. Vissulega eru hvers kyns
gjafir handa þeim sem okkur
þykir vænt um einn liður jóla-
haldsins. Það er þó mjög lítið
kristilegt við þá gjafastefnu
jólanna sem inniheldur óþarfa
hégóma og ótæpilegt aura-
bruðl.
Þær gjafir sem í upphafi
tengjast jólunum og Kristur
fékk frá vitringunum forðum
voru hófsamar. Reyndar fékk
hann einungis reykelsi, myrru
og gull og það þótti nóg.
VERIÐ ÓHRÆDDIR
Við ættum fyrst og fremst að
skapa hvert fyrir sig þá jóla-
stemmningu um þessa hátíð
heima og heiman sem er frið-
söm og elskuleg og lætur lítið
yfir sér annað en væntum-
þykju og auðmýkt til lífsins
sjálfs og annarra. Við vitum
að þegar fjárhirðarnir sáu
engla drottins birtast við fæð-
ingu frelsarans var þeim í
fyrstunni mjög brugðið og þá
sögðu englarnir við þá þar
sem þeir voru að gæta fjár á
víðavangi: „Verið óhræddir
því yður er í dag frelsari
fæddur í borg Davíðs." Svo
mörg voru þau orð englanna.
Þetta er áríðandi að hafa í því
í raun felst sjálfur jólaboð-
skapurinn í þessum orðum.
MIKILVÆGI
KÆRLEIKSHVETJANDI
LÍFSVIDHORFA
Við vitum líka að Jesús lagði
mikla áhersiu á að minna
lærisveina sína á að vera
óhrædda. Þess vegna má
segja að þessi setning sé
megininntak í boðskap jól-
anna. Við eigum að vera
óhrædd þótt á móti blási í lífi
okkar og tilveru um tíma,
vegna þess að það birtir upp
um síðir í okkar lífi sem ann-
arra. Jesús örvænti aldrei um
neinn vegna þess að honum
tókst giftusamlega að sjá
guðsneistann í öllum þeim
sem til hans leituðu. Alveg
sama hversu ófullkominn ein-
staklingur birtist honum, þá
tókst honum að kveikja með
viðkomandi tiltrú á mikilvægi
kærleikshvetjandi lífsviðhorfa
og leiða viðkomandi af mann-
úð og miidi til þess lífs sem
var göfugra og tengt því full-
komna í mannsálinni. Hans
styrkur var ekki efnislegur
heldur andlegur þannig að
það er fráleitt að tengja minn-
ingu hans óhófi, hégóma og
lúxus.
30 VIKAN 24. TBL, 1993