Vikan - 20.07.1995, Side 39
aö bæta upp vökvatapið, en
einnig aðrir tærir vökvar svo
sem eplasafi, seyði eða kjöt-
kraftur. Það er f lagi að neyta
gosdrykkja, en þó að því til-
skildu að allt gos sé úr þeim
segir, Vincent F. Garagusi,
prófessor í læknisfræði og
örverufræöi og forstöðumað-
ur deildar við sjúkrahús
Georgetown háskóla í
Washington D.C., þar sem
smitsjúkdómar eru til með-
ferðar. Að öðrum kosti getur
gosið ert magann enn frekar.
Kóka kóla, sem gosið er far-
ið úr, býr yfir eins konar
aukavinningi, þvf drykkurinn
stuðlar að því að róa mag-
ann. Ekki er enn vitað hvað
veldur þessu.
Garagusi læknir segir að
auðvelt sé að losna við gos-
ið í gosdrykkjum í snatri með
því að hella drykknum fram
og til baka á milli tveggja
glasa.
Drekktu rólega og litla
sopa í einu. Ef þú reynir að
svelgja of mikið í einum
sopa getur það haft í för
með sér aö þú verðir að
kasta upp, segir Garagusi.
Prófaðu flensublöndu.
Þegar þú kastar upp eða ert
með niðurgang er hætt við
aö skortur verði á málmjón-
um, svo sem kalíum- og
natríumjónum og glúkósa.
Þú getur bætt þau upp með
því að sötra salt- og sykur-
blöndu á borð við Gatorade
eða Semper, segir Lynne
Mofenson, aðstoðardeildar-
stjóri rannsóknasviðs hjá
Bandarísku heilbrigðisstofn-
uninni. Eða prófaðu þessa
uppskrift gegn uppþornun:
Blandaðu saman ávaxtasafa
til að fá kalíum, hálfri teskeið
af hunangi eða sírópi gerðu
úr maíssterkju til að fá glúk-
ósa og ögn af borðsalti
(natríumklóríði).
Sparaðu sýrubindandi
lyf fyrir brjóstsviðann.
Sýrubindandi lyf geta dregið
úr sýrunni í maganum og
dregið úr vörnum þínum
gegn sýklum. „Það er hugs-
anlegt," segir Mofenson, „að
bakteríum gæti fjölgað
margfalt og hraðar ef þú not-
ar sýrubindandi lyf.“
Láttu batann hafa sinn
gang. Líkami þinn er að
reyna að hreinsa út eitruð
efnasambönd, segir Daniel
Rodrigue læknir, faraldurs-
fræðingur við Miðstöð smit-
sjúkdómaeftirlitsins í Atlanta
í Georgíu. „í sumum tilvikum
getur inntaka lyfja gegn nið-
urgangi (s.s. Imodium eða
Lomotil) truflað getu líkam-
ans til að sigrast á smitinu."
Þess vegna skaltu ekki nota
þau en láta líkamann um
verkið. Ef þú telur nauðsyn-
legt að nota einhver lyf
skaltu bera það undir lækni
þinn.
Framkallaðu ekki upp-
köst. Láttu orðið eitrun ekki
hræða þig og hvetja þig til
að stinga fingri niður í kok,
segir Bonnie Dean, aðstoð-
ar- forstjóri Eiturefnaeftirlits
Barnaspítala Pittsburgh,
Pennsylvaníu. „Þess gerist
hreinlega engin þörf.“
Mjúkur undir tönn.
Venjulega líða nokkrar
klukkustundir frá því að
velgjan og niðurgangurinn
hefst þar til þú verður aftur
reiðubúin/n að neyta „góðs“
matar. En farðu þér hægt.
Maginn hefur orðið fyrir
„árás“; hann er veikburða og
ergilegur. „Byrjaðu á mat
sem er auðvelt að melta,“
segir Mofenson. Reyndu
kornmeti, búðinga, sódakex
eða seyði. Forðastu trefjarík-
an mat, mat sem er mikið
kryddaður, sem er sýru-
myndandi, með mikilli fitu,
sykraður eða mjólkurafurðir
sem geta ert magann enn
meira. Farðu eftir þessum
ráðum um mataræði í einn
eða tvo daga; þá verður
maginn að öllum líkindum
reiðubúinn til venjubundinn-
ar neyslu matar.
SÉRFRÆÐILEGIR
RÁÐUNAUTAR
Bonnie Dean, aðstoðar-
forstjóri Eiturefnaeftirlits
Barnaspítala Pittsburgh í
Pennsylvaníu.
Vincent F. Garagusi,
prófessor í læknisfræði og
örverufræði við smitsjúk-
dómadeild Georgetown há-
skólasjúkrahússins í Wash-
ington D.C.
Lynne Mofenson, læknir,
aðstoðarforstjóri rannsókn-
arsviðs National Insitute of
Health stofnunarinnar. Hún
var áður aðstoðaryfirmaður
Smitsjúkdóma- og eftirlits-
deildar hjá ríkislækni Mas-
sachusetts ríkis.
Daniel Rodrigue, læknir
faraldursfræöingur vi£
garnasjúkdómadeild Smit
sjúkdómamiðstöðvarinnar
og eftirlitsdeildar hennar
Atlanta í Georgíu. C
magnara.
TÓNAFLÓÐ
TEXTI: OLAFUR SIGURÐSSON
Það dettur stundum í
mann að grípa í eina
gamla, góða plötu til
að setja á fóninn, rifja upp
gamla stuðið og aðra
væmni. En þegar rispurnar
fara að yfirgnæfa gítarsólóin
verður þetta ekkert gaman
lengur og gamla stuðplatan
fer aftur á sinn stað. Kannski
kominn tími til að losna við
hana og aðrar álíka í Kola-
portið.
Það er þó til önnur og betri
lausn sem er vel þess virði
að skoða. Það má nefnilega
fá flesta gömlu gullmolana á
geisladiskum í betri útgáfu
og ódýrari en vinýlplatan
dostaði „i den“! Það var því
heilmikil upplifun að skoða
hvað fæst hjá honum Pétri
Kristjánssyni poppara í versl-
un hans Tónaflóð. Þar var að
finna gullaldardjass, perlur
frá vinsælum söngleikjum,
gamalt popp, kántrý og
ýmsa titla sem jafnan fást
ekki í stóru plötubúðunum.
Þetta er því einskonar jaðar-
efni sem fæst hjá Pétri á fínu
verði.
Söngleikir hafa notið mik-
illa vinsælda undanfarið. Því
var mælt með safndiski með
vinsælum sönglögum með
„Dudu“ Fisher, ísraelskum
söngvara sem er að gera
garðinn frægan í Evrópu og
víðar þessa dagana.
Það er ómögulegt fyrir
óvita í tónlist að ætla sér að
dæma sönginn eða tónlistar-
flutninginn en hitt er víst aö
þetta var þrælgóður diskur
með flottum lögum. Það,
sem kom helst á óvart, var
að upptakan er f Dolby Sur-
round. Lengi var búið að
leita að svona diski og þarna
var hann kominn.
Þónokkuð af tónlist er tek-
in upp þannig aö hún getur
hljómað vel í heimabíókerfi,
sem byggist upp á magnara
með „Dolby Pro-Logic“ hljóð-
kerfi og er notað ásamt 5 há-
tölurum þar sem bakgrunns-
hljóð, eins og klapp og berg-
mál úr sal, heyrist aftast en
mesti hluti söngsins fer í sér-
stakan miðjuhátalara. Þetta
þýðir einfaldlega að það er
eins og maður sé á staðnum
- í miðjum salnum að hlusta
á „Dudu“ Fisher. „Meiriháttar
sánd,“ sögðu krakkarnir
heima, „. . .hækkaðu“l!
Þeir eru orðnir þónokkrir,
sem eiga svona magnara,
en því miður er allt of lítið
gert af því að kynna tónlist
mpn
Í! | TIIELOMIOX SV.MPIIONVOIK’IIKSTHA
coikIiicIimIIiv m\ \\ KISS
I Jj'.l antl í |
Duvid'Oudu’ Fislier 1
nifludiiiy
jSj rir<>|ru tim«U- I
I »-.s4rs.«. vú-.kuw*. | D”*4*
'-f ý-.uir.«f>i Aflwawf iutiiie hp.\shm.i.i
fyrir svona hljóðkerfi og disk-
arnir eru ekki merktir „Dolby-
Surround“ eða „Dolby Ster-
eo“. Líklegast vegna þess
að þá þarf að borga Dolby
fyrirtækinu gjöld fyrir og þá
kosta diskarnir meira. Þetta
er því ennþá mest notað fyrir
myndböndin af leigunni.
Sumir segja að stór hluti
tónlistar verði f framtíðinni
tekinn upp á þennan hátt.
Þar með náist betur hinn
hreini hljómur, það er að
upptakan skilar sér í hljóm-
tækin eins nálægt uppruna-
legum hljóm og hægt er.
Á þessu lumaði hann Pét-
ur í Tónaflóði. Ætli hann hafi
nokkuð vitað af þessu?
Hvað um það, það verður
meira gramsað hjá honum á
næstunni. □
Sígild
sönglög í
nýrri út-
gáfu með
„Dudu“
Fisher. Á
góöu veröi
hjá Tóna-
flóói og í
„Dolby-
Surround"
fyrir þá
sem eiga
heimabió-
mmmmmm
OPERYNT.VRS
r V y/ '( )////«’'//
SIH(j®0flDWf1í
Uiwwntcs*np trom *'mc,*tthc »vrW*
tvtf knnlst:tfx sfums tnchtJmjt
WKST Sini: STORY, MY FAIR LADY,
I’ORGY&BESS.CATS
Rciuu XvHU' CMiHiilraurc
McIjiuc lk-llij.it Ruimi Y;iii;j>
TONLIST