Vikan - 20.07.1995, Blaðsíða 53
landi kaupir fólk ristuö sól-
blómafræ eins og við gotterí.
Sólblómafraein eru ekki að-
eins mannamatur. Þau eru
vinsælt búrfuglafóður og úr
sólbómunum eru meðal ann-
ars búnar til sólblómakökur
sem gripafóður. Úr sól-
blómafræjunum er unnin sól-
blómaolía sem notuð er
bæði til matar og til dæmis í
smjörlíkisgerð. Það er því
sitthvað sem sólblómin hafa
sér til ágætis og fleira en að
vera aðeins augnayndi.
KEPPT UM STÆRSTA
SÓLBÓMIÐ
Sólblóm eru af körfu-
blómaætt og til eru yfir 60 af-
brigði. Plöntunar geta orðið
jafnvel fjögurra metra háar
og blómkrónan frá 15 upp í
50 sentímetrar í þvermál. Al-
gengast er þó að þvermál
blómkrónanna sé 20 til 30
sentímetrar. Á hverju sumri
keppa sólblómaáhugamenn
í vissum héruðum í Englandi
um það hverjum tekst að
rækta hæsta sólblómið.
Fylgir þessu mikil spenna
eins og öllu því sem fólk
ákveður að keppa i. Líklega
væri einnig hægt að keppa í
því hversu mörg fræ fást úr
hverju blómi því þau geta
orðið allt að 2000 talsins
þegar best lætur.
Heimildir:
Menningarstofnun Bandaríkjanna
Bergís
Belís
Heilsuhúsið
Sól hf.
og ýmsir fleiri.
SÓLBLÓMABRAUÐ
í bandarísku tímariti birtist
nýlega uppskrift að sól-
blómabrauði undir fyrirsögn-
inni Brauðbakstur fyrir „bu-
sy-bodies“. Líklega er þarna
verið að höfða til þeirra sem
hafa mikið að gera, því
brauðið er bakað í brauð-
bakstursvél. Annars getur
busybody, þá reyndar í einu
orði, þýtt „forvitnisskjóða".
Það hæfir ekki síður í þessu
tilviki, því að þeir, sem láta
fátt áhugavert fram hjá sér
fara, hljóta að hafa gaman af
að baka brauð sem þetta,
fullt af óvenjulegum kornteg-
undum og kryddum. Við er-
um viss um að „forvitnis-
skjóður" eru hér margar
meðal bakstursáhugafólks
og birtum því uppskriftina.
í hverri sólblómabrauð-
sneið er 271 hitaeining, 7,4
grömm af fitu (24% hitaein-
inganna), 5 grömm af trefj-
um, 8,7 grömm af eggja-
hvítu, 45,6 grömm af kol-
vetnum og ekkert kólestról.
Úr brauðinu fást tíu sneiðar.
1 pakki þurrger
1 ’A bolli hveiti
1 'A bolli heilhveiti
2A bolli haframjöl
'A bolli maísenamjöl
'A bolli hveitiklíð
1 tks. salt
'A bolli sólblómafræ
2 msk. saxaðar valhnetur
2 msk. valmúafræ
2 msk. kúmen (ef vill)
1 bolli volgt vatn
1A bolli volg mjólk
1 '/2 msk. sólblómaolía
4 msk. hunang
1/4 bolli eggjaduft
Setjið öll þurrefnin í bökun-
arvélina í þeirri röð sem þau
koma fyrir. Hellið vökvanum
út í. Rétt er að mæla olíuna
áður en hunangið er sett í
mæliskeiðina því þá rennur
það auðveldlega af henni.
Stillið vélina á grunnbakst-
ursstillingu og setjið í gang.
Við treystum því að ykkur
verði gott af þessu brauði
sem er áreiðanlega mjög
heilsusamlegt ef marka má
efnin sem í það fara. Það
ætti ekkert að mæla gegn
því að baka brauðið á annan
hátt en í vél en þá verður
auðvitað að muna eftir því
að láta deigið hefast eins og
gert er í gerbakstri. Brauð-
bakstursvélin sér nefnilega Só|b|óm
um þann hluta bakstursins
sjálf og er því mikill léttir fyrir tjaida-
þá sem baka brauð. efni.
Panasonic örbylgjuofnarnir eru fáanlegir í miklu úrvali með fjölmörgum
möguleikum s.s. grilli og blæstri. Panasonic NNK 653 er 900W fullkominn
tölvustýrður ofn með 1300W Quartsgrilli sem nú býðst á frábæru verði.
Það er unaðsleg
tilfinning að vakna á
morgnana við ilminn
afnýbökuðu brauði úr
Panasonic
brauðgerðarvélinni.
Irr. 27.950,-
stgr.
unni sími 562 5200
BLÓM