Vikan - 11.06.1998, Qupperneq 16
önn sakamál
Frú Helen Fleming var ánœgð með að geta hjálpað Bret-
anum sem gekk að henni á ströndinni í Miami á Flórída í
nóvember 1973. Frú Fleming, sem var 65 ára og rak hótel-
ið Fontainbleau, hafði nokkrum dögum áður talað við
sama mann. Hann hafði sagt henni að hann vœri á Flór-
ída í viðskiptaerindum og að í fyrriferð hans þangað hefði
öllum eigum hans verið stolið á ströndinni meðan hann
fékk sér sundsprett. Þess vegna þœtti honum vœnt um effrú
Fleming myndi fylgjast með fötunum hans meðan hann
synti í sjónum. Frúin var fegin að geta verið svona kurteis-
um og elskulegum herramanni að liði.
'Se/ri
Bretinn sagöi frú
Fleming líka hvað
hann héti. Hann
sagði henni það reyndar
nokkrum sinnum, svo hún
átti ekki í neinum erfiðleik-
um með að muna nafn hans
síðar. Maðurinn hét John
Stonehouse.
John Stonehouse var 48 ára
þingmaður frá Bretlandi.
Hann gekk niður að sjónum
- og hvarf. Hann skildi eftir
sig eiginkonu, tvö börn, hjá-
konu, nokkur illa stödd fyrir-
tæki og skuldir upp á 800
þúsund sterlingspund.
Morguninn eftir tilkynnti
James Charlton, forstjóri
eins af fyrirtækjum Sto-
nehouse sem hafði komið
með honum til Flórída, að
félagi hans hefði ekki sést
alla nóttina. Leit var skipu-
lögð en ekkert lík fannst. Al-
mennt var talið að John Sto-
nehouse hefði drukknað.
En John Stonehouse hafði
ekki drukknað. “Dauði”
hans var einfaldlega loka-
skrefið í stórkostlegri svika-
myllu.
Á “dauðastundinni” gekk
hann eftir stöndinni að
ónýtri byggingu nálægt
Fontainbleau hótelinu. Þar
sótti hann ferðatösku sem
hafði að geyma fatnað, pen-
inga, ferðatékka, kreditkort
og vegabréf - allt á nafni Jos-
eph Markham. Þaðan hélt
hann til San Francisco.
Nokkrum dögum síðar
hófst ferðalag til Ástralíu
með viðkomu á Hawaii. í
Melbourne naut „Joseph
Markham” þess að liggja og
slappa af í sólinni, ráðgera
endurfundi við hjákonuna
og óska sjálfum sér til ham-
ingju með fullkomnasta svik
aldarinnar - að því er hann
hélt.
METORÐAGIRNDIN
MEIRIEN
HÆFILEIKARNIR
John Thomson Stonehouse
hafði alltaf verið hrokafullur.
Hann átti fáa vini en það
skipti hann litlu.Hann hugs-
aði um það eitt að klifa met-
orðastigann í stjórnmálum og
fyrirtækjarekstri. Hann þráði
að verða milljónamæringur
en endaði í skuldahafi. Hann
þráði að verða forsætisráð-
herra, en endaði sem fangi.
Stonehouse var fyrst kjör-
inn þingmaður Verkamanna-
flokksins árið 1957 og gegndi
fljótlega nokkrum ábyrgðar-
stöðum. Þegar Verkamanna-
flokkurinn missti völdin árið
1970 fékk hann aðeins valda-
lausa stöðu innan flokks-
ins.Hann afþakkaði hana og
ákvað að nýta sér tengiliði
sína úr stjórnmálunum til að
komast í viðskiptaheiminn
og græða milljónir.
Hann stofnaði 20 fyrirtæki
á fimm árum, meðal þeirra
banka. Eitt á fætur öðru
lentu fyrirtækin í kreppu og
litla veldið hans Stonehouse
stóð jafn lengi og hann gat
leikið þann leik að flytja
peninga milli fyrirtækjanna.
I hvert skipti sem von var á
endurskoðanda eins fyrir-
tækjanna flæddu peningar
inn í það, en það fyrirkomu-
lag gat ekki gengið enda-
laust. Stonehouse skuldaði
yfir 1 milljón sterlingspunda
og bankar og kreditkortafyr-
irtæki kröfðust 375 þúsund
sterlingspunda strax. Sjálfur
hafði Stonehouse skrifað
upp á persónulegar ábyrgðir
fyrir hundruð þúsunda
punda - skuldbindingar sem
hann gat á engan hátt staðið
við.
SA MHERJINN
Stonehouse varð ljóst árið
1974 að rannsókn viðskipta-
ráðuneytisins var óhjákvæm-
leg. Sú rannsókn myndi
svipta hulunni af honum,
sýna þann lygara og svika-
hrapp sem hann í rauninni
var og verða þess valdandi
að fyrirtæki hans myndu
hrynja eins og spilaborg. Það
myndi síðan leiða til per-
sónulegra endaloka hans
sjálfs og hann ætti á hættu að
verða sóttur til saka fyrir
svik. Þá sneri hann sér að
eina samherjanum sem hann
þóttist geta treyst fullkom-
lega - hjákonunni.
Frú Buckley var tuttugu
árum yngri en elskhuginn.
Hún hafði unnið sem einka-
ritari Stonehouse þegar hann
var aðstoðarráðherra í
tæknimálaráðuneytinu. Hún
var vinsæl og eftirsótt meðal
karlmanna, enda var þessi 22
ára fegurðardís með svart,
sítt hár, tindrandi augu og
fallegar varir. En hún sá eng-
an nema yfirmann sinn. Nú
lögðu þau á ráðin til að
bjarga því sem eftir var af
fyrirtækjum Stonehouse.
Markmiðið var að koma
undan um eitt hundrað þús-
und sterlingspundum í banka
í Sviss og Ástralíu, svo parið
gæti byrjað nýtt líf með ný
16