Vikan - 11.06.1998, Blaðsíða 17
Stonehaus á blaðamannafundi eftir að hann
hafði verið fundinn sekur.
skilríki í Nýja Sjálandi.
En fyrst varð John Sto-
nehouse að “deyja”....
Fyrsta skrefið var að finna
einhvern sem var í rauninni
látinn, svo John gæti orðið sá
maður. Þar sem hann hafði
verið þingmaður í Staffords-
hire gat hann útvegað sér
gögn um látna menn á sama
aldri og hann var, með því að
segjast þurfa að afhenda
ekkjum þeirra peninga og
framkvæma í leiðinni könn-
un. Spítalinn lét hann fá tvö
nöfn.
Hann notaði þessa aðferð
þegar hann heimsótti frú
Jean Markham og sagði
henni hversu sorgmæddur
hann væri vegna dauðdaga
hins 41 árs eiginmanns henn-
ar, Joseph. Frá eiginkonunni
náði hann öllum þeim upp-
lýsingum sem hann þurfti á
að halda en það sem kom
honum best var þó það að
Joseph Markham hafði
aldrei farið út fyrir land-
steinana og hafði því aldrei
átt vegabréf.
Sama leikinn lék John við
frú Mildoon, en eiginmaður
hennar hafði einnig látist á
sjúkrahúsinu. Stonehouse
útvegaði sér dánarvottorð
mannanna tveggja og sótti
um vegabréf á nafni Joseph
Markham. Hann lét taka af
sér mynd þar sem hann bar
stór gleraugu og brosti
glannalega.
Hann undirritaði myndina
með nafni Neil McBride,
þingmanns. Stonehouse vissi
að McBride var dauðvona af
krabbameini. Hann lést
tveimur mánuðum síðar.
2. ágúst 1974 var gefið út
vegabréf númer 785965 á
nafni Joseph Arthus Mark-
ham. Stonehouse var orðinn
nýr maður.
Til að gera tilvist Mark-
hams enn trúlegri bjó John
Stonehouse til heimilisfang
og fyrirtæki á nafni hans, á
litlu, ódýru hóteli í London.
Hann stofnaði bankareikn-
ing á nafni Markhams, lagði
inn dágóða fjárhæð og milli-
færði svo peningana yfir á
annan bankareikning á nafni
Markhams í öðrum banka.
Hann flaug til Sviss og lagði
stórar upphæðir inn á reikn-
ing á nafni Markhams og
fékk sér kreditkort á nafni
hans.
í nóvember 1973 átti Sto-
nehouse 27 bankareikninga í
eigin nafni í 17 bönkum, auk
þess sem níu reikningar voru
á nafni Markhams eða
Mildoon. Grunnurinn að
hvarfinu hafði verið lagður.
En eitt mikilvægt var enn
eftir.
Þann 6. nóvember flaug
Stonehouse til Miami, að
sögn til að ræða við fjárfesta.
A ströndinni ræddi hann við
frú Fleming. Hann ferðaðist
undir nafninu Markham og
greiddi fyrir flugmiðann með
kreditkorti á nafni Mark-
hams. Engan grunaði neitt.
Tíu dögum síðar var hann
aftur kominn til Miami í síð-
ustu viðskiptaferðina - í
þetta sinn á eigin vegabréfi -
og það var þá sem hann lék
leikinn til enda. Degi síðar
hafði lögreglan á Miami
samband við bresku lögregl-
una: John Stonehouse er
álitinn látinn.
Og John Stonehouse hefði
verið talinn látinn áfram ef...
ATHUGULL GJALDKERI
Daginn eftir komuna til
Ástralíu hringdi Stonehouse
í banka í Melbourne. Þar
fékk hann staðfest að 24.000
sterlingspund hefðu verið
millifærð af reikningi sama
banka í London á nafni
Markhams. Hann tók út
21.500 pund og fór í anna
banka þar sem hann kynnti
sig sem Donald Mildoon.
Hann sagðist ráðgera flutn-
ing til Nýja Sjálands og
óskaði eftir að leggja inn
21.500 pund sem hann hafði
meðferðis í reiðufé.
Gjaldkerinn, sem hann
rétti peningana, var Bryan
King, 22ja ára. Síðar þegar
King var að koma úr hádeg-
isverði sá hann herra
Mildoon koma út úr banka í
miðbænum. Grunsemdir
vökuðu hjá unga gjaldkeran-
um. Hann sagði yfirmanni
sínum af þeim og sá hringdi í
bankann,sem Stonehouse
hafði komið úr. ”Nei,” var
honum svarað, “hér er eng-
inn viðskiptavinur að nafni
Mildoon. Hins vegar er einn
viðskiptavina okkar nýað-
fluttur Breti að nafni Mark-
ham. Hann hefur tekið út
stórar fjárhæðir í reiðufé.”
Bankinn tilkynnti þetta til
lögreglunnar og frá þeirri
stundu var fylgst með
Stonehouse-Markham-
Mildoon. Lögreglan þurfti
ekki að bíða lengi. Næsta
dag fór Stonehouse með
flugvél frá Melbourne til
Kaupmannahafnar, til leyni-
legs fundar við hjákonu sína,
Sheilu Buckley.
ELDSPÝTNABRÉFIÐ
Hann var kominn aftur til
Melbourne 10. desember.
Þegar hann fór í bankann
var gerð húsleit heima hjá
honum af John Coffey
leynilögreglumanni. Hann
fann ekkert glæpsamlegt en
hins vegar sá hann eld-
spýtnabréf. Það var af hóteli
sem hann þekkti: Fontaine-
bléau í Miami.
Coffey lét fylgjast með Sto-
nehouse allan sólarhringinn.
Hann vakti engar grunsemd-
ir. Það eina sem hann gerði
reglulega var að kaupa The
Times og lesa það vandlega
úti á gangstétt. Coffey keypti
sér eintök af blaðinu til að
17
í