Vikan - 11.06.1998, Page 36
SOLRIKUR
SKOKKUR
OG JAKKI
Upplýsingar um hvar
Tinnugarnið fæst í síma: 565-4610
mandarin
V /00%*
/00% &6*nutl
Stærðir: 2 4 6 ára
Yfirvídd á kjól: 58 66 74 sm
Sídd: 45 50 55 sm
Handvegur: 11 13 14 sm
Yfirvídd á jakka: 91 sm 75 8 3
Sídd: 27 32 36 sm
Ermalengd: 6 7 8 sm
Handvegur: 16 16 16 sm
M. CLASSIC, 100% egypsk bómull
Gultnr.715 6 8 10 d
Ljósgrænt nr. 788 1 2 2 d
Grænt nr. 796 1 dokka í allar stærðir
Bleikt nr. 754 1 dokka í allar stærðir
Hvítt nr. 7011 dokka í allar stærðir
Einnig er hægt að nota SMART
ADDI PRJÓNAR FRÁ TINNU:
Mælum með BAMBUSPRJÓNUM
60 sm hringprjónar nr. 3 og 3.5
Sokkaprjónar nr. 2.5 (handvegsl.)
Heklunál nr. 3
Tala á jakkann : 1 stk.
Góðir fyigihlutir:
Merkihringir, prjónanælur,
þvottamerki fyrir garnið.
PRJÓNFESTA:
22 1. í sléttu prjóni á prj. nr. 3.5 = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf ffnni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
Skokkur
Fitjið upp með ljósgrænu á hringprjón nr. 3,
180-198-216 lykkjur. Prjónið 2 prjóna brugð-
na í hring (kantur). Skiptið yfir í gult og
hringprjón nr. 3.5. Prjónið munstur A, en á
síðasta prjóni eru teknar úr 16 lykkjur með
jöfnu millibili = 164-182-200 lykkjur. Setjið
merki í báðar hliðar með 82-91-100 lykkjur á
hvoru stykki. Prjónið áfram slétt í hring og
takið úr 1 lykkju báðum megin við
hliðarmerkin með 3-3-3.5 sm millibili 9 sin-
num = 64-73-82 lykkjur á hvoru stykki.
Prjónið áfrani þar til mælast 34-37-41 sm.
Skiptið nú við hliðarmerkin og prjónið hvort
stykki fyrir sig.
Bakstykki: Prjónið fram og til baka og fellið
jafnframt af fyrir handvegi í byrjun prjóns í
báðum hliðum 4-5-5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur
1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni =
44-51-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til
mælast 40-44-48 sm. Nú er komið að
hálsmálinu. Fellið af 14-15-18 lykkjur í
miðjunni og prjónið hvora hlið fyrir sig.
Fellið af í byrjun prjóns við hálsmálið 3
lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-
2-2 sinnum = 9-11-14 lykkjur á öxl. Prjónið
áfram þar til handvegurinn mælist 11-13-14
sm og öll síddin er 45-50-55 sm. Fellið af.
Prjónið framstykkið eins.
HANDVEGSLÍNINGAR:
Saumið axlir saman.
Prjónið upp í handveginum með ljósgrænu á
sokkaprjóna nr. 2.5, 65-69-73 lykkjur.
Prjónið 2 hringi brugðna. Fellið af með
brugðnum lykkjum.
HÁLSLÍNING:
Byrjið við hægri öxl og heklið 1 umferð af
fastapinnum með ljósgrænu í kringum
hálsmálið. Heklið þá takka.
Takki: * 4 loftlykkjur, stingið heklu-nálinni í
fyrstu loftlykkjuna af þessum 4 og heklið 1
fastapinna, hoppið yfir 1 fastapinna og heklið
1 fastapinna í næstu lykkju *. Endurtakið frá
* - * allan hringinn.
Saumið kirsuber með prjónsaumi á fram-
stykkið, munstur B hægra megin og munstur
C vinstra megin við hálsmálið. Saumið
þvottamerki innan í skokkinn.
BOLUR:
Fitjið upp með ljósgrænu á hringprjón nr. 3,
165-183-201 lykkju. Prjónið 1 prjón brugðinn
= réttan + 1 prjón sléttan á röng-unni.
Skiptið yfir á hringprjón nr. 3.5 og gult.
Byrjið að prjóna við örina fyrir jakkann og
prjónið munstur A2 fram og til baka, mun-
strið byrjar og endar eins.
Prjónið síðan slétt prjón þar til bolurinn
mælist 11-16-20 sm. Skiptið í hliðum með 83-
91-101 lykkju á bakstykki og 41-46-50 lykkjur
á hvoru framstykki. Prjónið hvert stykki fyrir
sig.
Bakstykki: Prjónið áfram slétt prjón fram og
til baka þar til mælast 27-32-36 sm. Fellið af
26-30-33 lykkjur á öxlum, en setjið lykkjurnar
í hálsmálinu á nælu.
Framstykkin: Prjónið eins og bakstykkið, en
þegar mælast 23-28-31 sm er komið að
hálsmálinu. Fellið af í byrjun prjóns við
hálsmálið 5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 2 sin-
num, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum og 1 lykkju 2-1-2
sinnum = 26-30-33 lykkjur á öxl. Prjónið
áfram þar til framstykkin mælast jafnlöng og
bakstykkið. Fellið af.
ERMAR:
Fitjið upp 75 lykkjur með ljósgrænu á hring-
prjón nr. 3 á öllum stærðum. Prjónið eins
kant og á bolnum. Skiptið yfir á hringprjón
nr. 3.5 og gull. Prjónið munst-ur A2 fram og
til baka og byrjið við örina á jakkanum.
Prjónið síðan slétt prjón þar til ermin mælist
6-7-8 sm. Fellið af.
HÁLSLÍNING:
Saumið axlir saman. Prjónið upp í háls-
málinu með ljósgrænu á hringprjón nr. 3, 75-
79-83 lykkjur. Prjónið slétt til baka á röngun-
ni og síðan 1 prjón brugðinn á rétt-unni.
Fellið af með sléttum lykkjum á röngunni.
Saumið ermarnar saman og í handveginn.
Saumið kirsuber (munstur B) á hægra fram-
stykkið.
LISTAR:
Heklið með ljósgrænu meðfram á köntunum
á boðungunum fastapinna og takka eins og í
kringum hálsmálið á kjólnum.
Ef vill má hekla hneslu efst á hægra fram-
stykkið og festa tölu á móti.
Munstur á jakka
t
*
1
A2
Endið hér * 1 munstur (18 lykkjur) B jið hér
endurtekið ■' J
Tákn fyrir niunstur A og A2
0=1 slétt kantlykkja (á jakkanum).
]] = Slétt á réttu, brugðið á röngu.
| | = Sláið bandi upp á prjóninn.
U = Takið 1 lykkju óprjónaða
fram af, prjónið 2 sléttar saman,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Munstur á skokk
"
0 £ £ 3 £ :c
Q 2 Q Q £ c
—
£ £ Q £ £ Q
0 I D o £ D
ö I £ c< í ö
0 £ RBKnn
I
Q £ 0 □
\
1 munstur (18 lykkjur)
endurtekið
Byrjið hér
Tákn fyrir munstur B og C
I I = Gult nr. 715
g] = Bleikt nr. 754
g = Hvítt nr. 701
|^| = Grænt nr. 796
0 = Ljósgrænt nr. 788