Vikan


Vikan - 11.06.1998, Side 48

Vikan - 11.06.1998, Side 48
f/(cíiic/aoiiina o<£ji/caý&&Áctfeui' Texti: Þórunn Stefánsdóttir Myndir: Sigurjón Ragnar Sigurjónsson TJÁNING í BÚTUM Ha n d a - vinna af öllu tagi er aftur í tísku eft- ir nokkra lægð.Til marks um það eru vinsældir búta- saumsins. Jó- hanna Viborg, sem starfar hjá Frú Bóthildi, verslun sem sér- hæfir sig í öllu sem viðkemur búta- saumi, segir hóp kvenna hittast í versluninni einu sinni í mánuði. „í hópnum eru um það bil 100 félagar, víðsvegar að af landinu. Konurnar koma hingað til að hittast og sýna það sem þær eru að fást við. Við höfum farið tvisvar sinnum út á land í helgarferðir, þar höfum við verið með ákveðna dagskrá, setið saman og saumað. Það var mjög vel mætt í þessar ferðir, í fyrra skipt- ið mættu 44 konur og 60 konur í seinni ferðina. En bútasaumskonurnar ætla að leggja í lengra ferðalag á næstunni. „í haust ætlum við til Hou- ston í Texas, á International Quilt Festival. Þangað koma konur frá öllum heimshornum. Þar er stór sýning á bútasaumi, sölumarkaður þar sem hægt er að kaupa efni og alls konar varning og einnig eru haldin námskeið.” Bútasaumur er upprunninn í Evrópu en Evr- ópubúar fluttu með sér þekkinguna til Amer- íku og Ástralíu. „í ferðinni ætlum við að heim- sækj a Amish-fólkið, en eins og kunnugt er held- ur það fólk nrjög í gamlar hefðir, bútasaumur þeirra er mjög fallegur, unninn eftir sérstökum mynstrum og eingöngu eru notaðir sérstakir lit- ir.” Bútasaumurinn hefur tekið tæknina í sína þjónustu því margir bútasaumsklúbbar notfæra sér Internetið til að ná til áhugamanna um all- an heim. „Þar er vinsælt svokallað „Mystery- Quilt”, eða Óvissuverkefni, eins og við köllum það. Gefið er upp hvaða efni og liti á að nota og smátt og smátt einu sinni í mánuði, eru gefn- ar upplýsingar um hvað í raun og veru er ver- ið að sauma. íslenski klúbburinn hefur tekið þátt í þess konar verkefni.” Vikan óskar búta- saumskonunum góðrar ferðar til Texas. ' a 1 • i V-: —^ ^SSSaaj.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.