Vikan - 31.05.1999, Blaðsíða 21
ðjr guttarJ
Aron og
Hreiftar Örn
eru gallharðir í
golfinu
F wi ■/
W ■ /^Ki 1 11 V1 1 ■ i
J11 i
H 1
\u£r m 9Bp
Vikan brá sér á golfvöll
Golffélags Reykjavík-
ur að Korpúlfsstöðum
á uppstigningardag í þeim til-
gangi að hafa uppi á golfurum.
Það var úrhellisrigning þenn-
an vordag og við áttum ekki
von á fjölmenni sökum veð-
urs. En golfáhugamenn láta
íslenskt veðurfar sannarlega
ekki aftra sér og nutu augljós-
lega golfsins til hina ýtrasta.
Menn voru klæddir í samræmi
við veður í skjólgóðum regn-
fötum og með ýmis skemmti-
ieg höfuðföt og munduðu kylf-
urnar fagmannlega, rjóðir í
kinnum. Við rákum upp stór
augu er við rákumst á tvo
unga stráka þarna á vappi sem
aðspurðir sögðust vera miklir
áhugamenn um golf og vera
daglega á golfvellinum. Þetta
eru bræðurnir Aron Svansson,
átta ára og Hreiðar Örn
Svansson, 11 ára. „Hvers
vegna fenguð þið áhuga á
golfi?" Aron verður fyrir
svörum: „Við eigum heima
hérna rétt hjá golfvellinum og
vorum bara forvitnir. Afi okk-
ar í Þorlákshöfn spilar líka
golf svo við vissum um hvað
málið snýst. Við drifum okkur
því hingað á golfvöllinn til að
kanna aðstæður og við vorum
mjög fljótir að fá æði fyrir
golfinu. Við erum búnir að
fjárfesta í golfsetti sem við eig-
um saman. Settin eru dálítið
dýr þannig að við látum okkur
nægja að vera með eitt sett
núna, en draumurinn er að
eignast sitt hvort seinna.
Hreiðar Örn segir okkur að
það sé mjög gaman að spila
golf og ekki skemmi fyrir hvað
starfsmenn golfvallarins séu
hressir og vinsamlegir. „Við
erum hálfgerðir heimalningar
hér á golfvellinum og starfs-
fólkið tekur okkur mjög vel og
leiðbeinir okkur ef á þarf að
halda. Við erum farnir að
þekkja næstum alla sem
stunda golf hér og sjáum strax
ef einhverjir nýir bætast í hóp-
inn." Hreiðar bendir út á
golfvöll þar sem kona í
skærrauðum regnstakk er að
spila undir leiðsögn. „Þessi
kona er til dæmis ný og John
er að kenna henni. Það er
hægt að fá einkakennslu ef
maður á nógan pening."
Þeir bræður segjast þó
ekki þurfa neina einka-
kennslu, þeir reddi sér sjálfir
og gengur það hreint ágæt-
lega. „Við lærum mikið af því
að fylgjast með vönu golfurun-
um og verðum örugglega góð-
ir í framtíðinni. Við byrjuðum
svo snemma í þessu og æfingin
skapar meistarann, ekki satt?"
segja þeir hlægandi með
stríðnisglampa í augum. Þeir
bræðurnir fara líka í sund á
hverjum degi og má því með
sanni segja að þeir séu miklir
útivistarmenn og til fyrir-
myndar. Það var gaman að
fylgjast með ungu köppunum
á golfvellinum og greinilegt að
spilað var af áhuga og kapp-
semi.
Golf er ákaflega vinsæl
íþrótt sem hefur stöðugt verið
að sækja í sig veðrið hér á
landi og hefur þá sérstöðu að
sameina útivist fjölskyldunnar
ásamt því að vera afar
skemmtileg íþrótt. Góðir
golfvellir eru víða í Reykjavík
og nágrenni. Sumarið er einn
besti tíminn til að njóta golf-
íþróttarinnar og því er um að
gera að dusta nú rykið af kylf-
unum og drífa sig í fjörið á
vellinum.
Vikan 21