Vikan - 31.05.1999, Blaðsíða 24
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Langar þig að ræða
um kynlíf?
Kynlíf hefur lengi verið feimnismál í allri almennri þjóðfélagsumræðu. Endalausir kyn-
lífsbrandarar dynja á okkur. Margir hváðu á sínum tíma þegar íslensk kona kom fram I
fjölmiðlum og titlaði sig kynfræðing. Sumir líta undan þegar þeir sjá forsíðuna á
Bleiku&Bláu í biðröðinni í Hagkaup. Þjóðin stóð á öndinni þegar ungar íslenskar stúlk-
ur sáust naktar og í nautnalegum stellingum í hinu heimsþekkta karlablaði Playboy.
Svo ekki sé minnst á neyðarlegar kynlífsathafnir Bandaríkjaforseta.
Þegar ræða á um kynlíf
af einhverri alvöru
kárnar gamanið.
Konur tala um pillur, blæð-
ingar og brjóstastærð sín á
milli en þegar umræðan fer
að snúast um kynlíf þagna
margar þeirra. Karlar grín-
ast með tippastærðir og
hvað þeir hafa náð að sofa
hjá mörgum stúlkum. Um-
ræðan fer sjaldan út fyrir
þann ramma. Af hverju
Hefur einhver ykkar
prófað Viagra?
finnst okkur svona erfitt að
ræða um jafn sjálfsagðan
hlut og kynlíf?
Svarið virðist einfalt og
rökrétt. Við höfum vanist
því að ræða það ekki.
Skólabækurnar í gamla daga
sýndu myndir af eggjaleið-
urum og sáðrásum en upp-
lýsingar um hvernig fólk
naut þess að koma þessum
ólíku líffærum saman var
hvergi að finna.
Fyrir utan þá staðreynd að
kynlíf er eitt það helgasta
sem tvær manneskjur deila
og skiljanlega vilja margir
halda sínum einkamálum út
af fyrir sig.
Að sjálfsögðu
skiptir miklu
máli hvar í ver-
öldinni við
erum stödd þeg-
ar umræðuna ber á góma. í
löndum þar sem fólki er eðl-
islægt að tala um allt milli
himins og jarðar er kyn-
lífsumræðan ekki undanskil-
in. Sem dæmi má nefna eru
Ameríkanar mjög frá-
sagnaglaðir. Pví má alveg
búast við að amerísk kona
sem er sessunautur þinn í
flugvél, fræði þig um kynlífs-
athafnir sínar. Á íslandi
tíðkast nú ekki að ræða alla
hluti við Pétur og Pál en ís-
lenskar konur eru duglegar
að ræða við vinkonur sínar.
í fæstum tilfellum tala þær
við mæður sínar sem eru
kannski best til þess fallnar
að miðla af reynslu sinni.
Mörgum finnst einfaldlega
óþægilegt að ræða um þessa
hluti við foreldra sína og
ekki síður óþægilegt að
fræðast um kynlíf foreldra
sinna.
Islenskir karlmenn eiga
mjög erfitt með að ræða
málin á alvarlegum nótum.
Getur einhver ímyndað sér
að umræðuefnið á dæmi-
gerðum karlavinnustað sé:
Ég fæ það svo fljótt, strákar.
Hvað gerið þið í slíkri
stöðu? Hefur einhver ykkar
prófað Viagra? Og ef svo
er. Hvernig virkar það?
Ef storkasagan væri
sönn
Þegar kemur að því að
fræða börn og unglinga um
kynlíf geta foreldrar átt erf-
iðar stundir. Margir stikla á
stóru, óska þess heitast að
storkasagan væri sönn, þeg-
ar stór og blá barnsaugu
bíða eftir svari við spurning-
unni: „Hvernig varð ég til?"
Aðrir eiga auðveldara með
að útskýra fyrir börnum sín-
um hvernig hlutirnir ganga
raunverulega fyrir sig. Þeg-
ar nýr vinur er farinn að
eyða drjúgum tíma í her-
bergi elstu dótturinnar fara
að renna tvær grímur á for-
eldrana. Eru þau bara að
tala saman eða er barnið
mitt virkilega farið að sofa
Margir stikla á stóru, óska þess heitast að storka-
sagan væri sönn, þegar stór og blá barnsaugu bíða
eftir svari við spurningunni: „Hvernig varð ég til?"
eggrás
eggjastokkur
slima
voövalag
legháls
leggöng
leggangaop
}
leg
24 Vikan
þvagpípa frá blööru
sáöblaöra
blöðruhálskirtill
sáörás
þvagrás
eistnalyppa
kóngur
forhúö
eista
pungur