Vikan - 22.02.2000, Side 21
dýrahringsins. „Heiðbláa fjólan
mín fríða“ má segja um Fiskinn
sem vekur hvarvetna athygli
fyrir mýkt í lit sem þó getur ólg-
að sem úfið haf.
Líkami og heílsa
Fiskurinn hefur mjúkar línur
og ávöl form og virðist ekki
sterkbyggður að sjá en er samt
óvenjulega lunkinn að smeygja
sér undan hnjaski og líkamleg-
um áverkum. Vatnið flýtur vel
um líkama hans og gerir hann
að hraustum einstaklingi með
blómlegt útlit, stundi hann úti-
veru að einhverju marki. Hangi
hann hins vegar mikið inni í
þurru loftslagi er hann stöðugt
hjá læknum til að fá lyf við
asma, ofnæmi, kvefi, bronkítis
eða hvað þetta heitir nú allt
saman sem hrjáir þann Fisk
sem gleymir að hann er vatna-
dýr.
Heimili, listir og menning
Þar sem Fiskurinn er úr vatni
runninn er hann afar hreinlátur
og snyrtilegur. Þetta sést vel á
heimili hans sem er ilmandi
hreint, glampandi fínt og vel
skipulagt. Litir eru vatnskennd-
ir og mjúkir, húsgögnin þægileg
og skrautmunir fagrir. Þeir sem
eiga Fisk að vini kannast við þá
tilfinningu að eiga í mesta basli
að komast heim úr kaffiboði,
hvað þá mat hjá Fiskinum.Yfir-
leitt heldur Fiskurinn sig á
grunnsævi í litavali en hann er
einnig djúpsjávar dýr og býr þá
heimili sitt í mettum, höfgum
stíl með dularfullum styttum og
tvíræðum myndum. Húsið sem
hann býr sér hefur notagildi og
þægindi ofar öðru og því eru
eldhúsið og baðið áberandi
miðjuhlutar, en út frá því eru
svo spunnin herbergi til að
njóta eins og annars í. Fiskurinn
getur verið mikið fyrir smáhluti
sem hann dreifir vítt og breitt
um húsið en þó á smekklegan
hátt og ef hann fær sér gæludýr
er það líklega fiskur eða annað
vatnadýr. Fiskurinn er listrænn
og listelskandi skepna sem ann
seiðandi klassískri tónlist eins
og þeirri sem Ravel og Debussy
sömdu.
Foreldrar og börn
Fiskinum er ekki lagið að ala
upp börn sín eftir fyrirfram
ákveðnum reglum um boð og
bönn enda er Fiskurinn Rudolf
Steiner frægur fyrir opnar að-
ferðir sínar í uppeldi. Heima
fyrir geta því börn Fiskanna
orðið að dekurdýrum sem fara
sínu fram hvað sem tautar og
raular, þrátt fyrir góðan vilja
Fisksins til að veita réttláta
leiðsögn og reyni einhver utan
hringsins að beina veginn verð-
ur Fiskurinn arfavitlaus og
kennir öðrum um sína van-
kanta. En með þvf að líta í eigin
barm og áhrif plánetanna getur
Fiskurinn orðið landsins besti
pabbi eða mamma sem veitir
barni sínu listrænt og gjöfult
uppeldi þar sem stundvísi og
áreiðanleiki skapa umgjörðina.
Litlu seiðin eru blómabörn
hvers tíma sem þola illa stífar
reglur og einstrengingslegan
hugsunarhátt. Skólinn sem þau
ganga í ætti að vera opinn, lif-
andi og skemmtilegur, þá „brill-
era“ þau í sögu og læra minnst
þrjú tungumál. Fái þau að
dansa og mála sér til yndisauka,
verða sporðaköstin sterk og
gefandi.
Vetur, vor og sumar 2000
Áramótin voru tími endur-
skoðunar og uppgjörs við gaml-
ar syndir, því Fiskamerkið
kvaddi sem herskandi merki
með þessurn tímamótum. Þú ert
því nú að endumeta stöðuna og
útbúa nýtt plan fyrir vorið.
Þetta vor og sumarið sem fylgir
verður þér meira gefandi og
skemmtilegra en tlest hin fyrri,
því á vordögum stígur nýr fisk-
ur út úr þínum gamla og lífið
tekur nýja stefnu. Þú ert ljón-
heppin þessa dagana og tæki-
færin berast þér í hrönnum,
gamla ástin endurnýjast og sú
nýja reynist sönn, í fjármálum
siglir þú á góð mið og vina-
hringurinn stækkar. Opinbera
lífið verður 48 stunda stfm við
að tína sem flest gullepli af M
2000 trénu sem menningarborg-
in Reykjavík reisti okkur til
góðs á því herrans ári.