Vikan - 23.05.2000, Blaðsíða 40
FflLLEG PEYSA MEÐ
GATAMIINSTRI
Gott að eiga:
Merkihringi, prjónanælur, prjónamál,
þvottamerki fyrir KITTEN MOHAIR.
Upplýsingar um hvar Tinnugarnið fæst
í síma 565-4610.
(XS) S (M) L (XL)
Stærðir á flíkinni sjálfri:
Yfirvídd: (98) 105 (112) 120 (127) sm.
Sídd: (60) 62 (64) 66 (68) sm.
Ermasídd: (49) 50 (50) 51 (51) sm.
Kitten Mohair
Fjöldi af dokkum í peysuna:
Appelsínugult nr. 3308: (5) 5 (6) 6 (7)
ADDI prjónar frá Tinnu.
Við mælum með Bambus prjónum.
60 sm hringprjónar nr. 4 og sokkaprjón-
ar nr. 3 og 4.
j - slétl á rétlunni. brugóib á rongunni
Oj » bandinu brugfcló einu sinm á prjóninn
|Aj - 3 lykkjur pr|ónabar sletl saman
Prjónfesta á KITTEN MOHAIR:
19 lykkjur með sléttu prjóni á prjóna nr.
4 = 10 sm.
17 lykkjur með gatamunstri á prjóna nr.
4 = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
B0LUR:
Fitjið upp á hringprjóna nr. 4 (168) 180
(192) 204 (216) lykkjur. Prjónið gata-
munstur í hring og fylgið forskriftinni.
Þegar stykkið mælist (36) 37 (38) 39 (40)
sm eru felldar af fyrstu 3 lykkjurnar á
hringnum. Prjónið munstur eins og áður
yfir næstu (81) 87 (93) 99 (105) lykkjur
= framstykkið, fellið síðan af næstu 3
lykkjur og prjónið munstur yfir þær (81)
87 (93) 99 (105) lykkjur sem eftir eru =
bakstykkið. Prjónið nú upp hvorn hluta
fyrir sig.
Bakstykkið: Haldið áfram að prjóna
munstur en prjónið nú fram og til baka.
Þegar stykkið mælist (21) 22 (23) 24 (25)
sm frá skiptingunni eru felldar af (17)
19 (21) 23 (25) lykkjur á miðju stykkinu
fyrir hálsmál. Prjónið upp axlastykkin
sitt hvorum megin og takið áfram úr fyr-
ir hálsmálinu á öðrum hverjum prjón, 3
lykkjur 3 sinnum = (23) 25 (27) 29 (31)
lykkja er eftir á hvorri öxl. Þegar stykk-
ið mælist (24) 25 (26) 27 (28) sm frá
skiptingunni í hliðunum, er fellt af á öxl-
unum.
Framstykkíð: Haldið áfram að prjóna
munstur og prjónið fram og til baka.
Þegarstykkið mælist (14) 15 (15) 16(17)
sm. frá skiptingunni eru felldar af (9) 11
(11)13(15) lykkjur á miðju stykkinu fyr-
ir hálsmál. Prjónið hvort axlastykki fyr-
ir sig og haldið áfram að taka úr á öðr-
um hverjum prjón: (4,2,2,2,1,1,1)
4.2.2.2.1.1.1 (4,2,2,2,1,1,1,1) 4,2,2,2,1,1,
1.1 (4,2,2,2,1,1,1,1) lykkjur. Fellið af á
öxlunum þegar stykkið mælist (24) 25
(26) 27 (28) sm frá skiptingunni í hlið-
unum.
ERMAR:
Fitjið laust upp á sokkaprjóna nr. 4, 52
lykkjur fyrir allar stærðir. Prjónið gata-
munstur í hring eftir forskriftinni. AT-
HUGIÐ að síðasta lykkjan í umferðinni
er alltaf prjónuð brugðin = merkilykkja.
Sitt hvorum megin við hana er aukið í 1
lykkju með u.þ.b. (2 1/2) 2 1/2 (2 1/2) 2
(2) sm millibili, í allt (82) 86 (90) 92 (96)
lykkjur. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar
inn í munstrið. Þegar ermin hefur náð
fullri lengd er fellt af.
FRÁGANGUR:
Saumið saman á öxlunum.
Hálskantur: Prjónið upp í kringum hálsinn
með prjónum nr. 3, u.þ.b. 4-5 lykkjur á
hverja 2 sm, eina umferð með sléttu
prjóni. Haldið áfrarn og prjónið slétt
prjón í hring. Þegar kanturinn mælist 3
sm er fellt laust af. Brjótið kantinn tvö-
faldan inn á rönguna og saumið fastan.
Saumið ermarnar í. Saumið þvottamerki
fyrir KITTEN MOHAIR inn í flíkina.
40 Vikan