Vikan


Vikan - 06.06.2000, Blaðsíða 59

Vikan - 06.06.2000, Blaðsíða 59
Eitt áttu dansarnir þó allir sam- eiginlegt og það var að þeir voru afburða illa dansaðir. Orkan ent- ist þeim fram eftir kvöldi en þá fór vínið að segja til sín og þau Bæði táruðust af sjálfsuorkunn og uan- líðan Begar bessar erfiðu minningar uoru rifjaðar upp. komust á trúnaðarstigið. Við fengum að heyra ævisögur þeirra beggja allt frá einelti og afskipta- leysi bekkjarfélagana í æsku og upp í samskiptaörðugleika þeirra sem fullorðinna einstaklinga í vinnunni og í einkalífinu. Bæði táruðust af sjálfsvorkunn og van- líðan þegar þessar erfiðu minn- ingar voru rifjaðar upp en gestir þeirra voru bráðfegnir því að þau voru svo þvoglumælt að fæstar sögurnar skildust almennilega. Það var enda óþarft að skilja nokkuð því hjónunum nægði al- veg að við kinkuðum kolli eða tautuðum „enn agalegt“ með reglulegu millibili. Klukkan var farin að ganga tvö þegar gestgjafar okkar sofnuðu loks og okkur tókst að laumast burtu. Tveim dögum seinna héld- um við heim og dauðadrukkin kysstu þessi hjón okkur í kveðju- skyni í Flugstöð Leifs Eiríksson- ar og hvöttu okkur endilega til að hafa samband og koma í heim- sókn. Það þarf sennilega ekki að taka það fram að af einhverjum óútskýranlegum ástæðum höfum við aldrei haft tækifæri til að verða við þeirri bón. hann dró okkur inn fyrir. Grímudansleikur! Kvöldið var svo hræðilegt að mig skortir orð til að lýsa því al- mennilega. Konan dró upp úr pússi sínu ýmiss konar grímur, allt frá pappírsgrímum sem not- aðar eru í barnaafmælum upp einhverjar hræðilegar afrískar af- skræmingargrímur sem hún sagði þau hafa fengið á útimarkaði í næsta nágrenni við hótelið. Þau heimtuðu að við settum upp ein- hverjar grímur og mikið var nú býsnast yfir því hvað við værum fúl þegar treglega gekk að fá okk- ur til að hlíta því. Þau voru vel drukkin þegar við komum og blandað var ótt og títt í glösin eft- ir það. Það minnkaði heldur hægar í okkar glösum en til að sýna gest- risni sína bætti húsbóndinn rausnarlegur óblönduðu vodka í glösin okkar í hvert sinn sem hann blandaði í glösin handa þeirn. Þetta varð auðvitað til þess að drykkirnir okkar urðu alger- lega ódrekkandi; ekki það að okkur langaði mikið í þá undir þessum kringumstæðum. Við reyndum hvað eftir annað að fara en aldrei var við það komandi. Við vorum dregin frá hurðinni og endilega beðin að sitja ögn leng- ur. Við sátum því eins og dauða- dæmd í sófa í herberginu meðan hjónin létu öllum illum látum. Þau reyndu grímurnar hverja af annarri og dönsuðu fyrir okk- ur dansa sem þau töldu hæfa hverri og einni. Það var allt frá virðulegum valsi að hoppum og skoppum upp og niður úr rúmun- um sem átti að vera afrískur dans. Lesandi segir Steingerði Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þinu? Þér er vel- komið að skrífa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. Ileitnilisfan^ifl er: Vikau - ..I.ífsreynslusaca", Sel j:ls eym 2, 1(11 Keykjasík, Nellany: vikaii@l'rofii.is Vikan 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.