Vikan


Vikan - 26.09.2000, Qupperneq 27

Vikan - 26.09.2000, Qupperneq 27
eigum allt eins von á því að konur muni frekar sækja þetta námskeið. Námskeiðið er þó ekki síður ætlað körl- um en konum. „ „Ætla má að það komi öll- um að gagni að skoða starfið sem þeir eru í og sjálfan sig,“ segir Anna. „Við vitum að ef tengsl eru milli áhugasviðs og starfsvals aukast líkur á því að fólk verði ánægt í starfi. En það eru fleiri þættir sem hafa áhrif. Sjálfsþekking er okkur öllum nauðsyn, þ.e. að þekkja styrkleika okkar og veikleika. Hvernig við getum byggt á styrk okkar og skoðað hvern- ig vinna megi með veikleik- ana, með öðrum orðum ástundað sjálfsuppeldi. Auk- in sjálfsþekking og starfsval byggt á slíkri þekkingu eru meginmarkmið skeiðsins.“ hersla íslenska skólakerfisins á bóklegt nám gerir einnig mörgum erfitt fyrir. Við telj- um að allir hafi getu til þess að læra. Mikilvægast er að finna hvar styrkur einstaklingsins liggur og hvert áhugi hans beinist. Innan sama starfsum- hverfis eru fjölmörg störf sem gera mismiklar kröfur til menntunar.“ „Vissulega eru margar hindranir sem mæta fólki,“ heldur Anna áfram. „Oft er það svo að fólk einblínir á ljónin í veginum eða er með svo stór og fjarlæg markmið að fyrirstöðurnar virðast óyf- irstíganlegar. Við reynum að hjálpa fólki að nálgast mark- ið með Siállsmynd nam fllltaf eitthueri val Þið talið um að áhugasvið og starfsval tengist og að hœgt sé að skoða hvaða starfs- vettvangur henti einstak- lingnum best út frá því. Nú eru margirsem vita vel hvert draumastarfið er en skortir menntun, hœfni eða eru einfaldlega þannig félagslega staddir að þeir geta ekki sóst eftir slíku starfi. Hvað þá? „Við hittum marga sem standa í þeim sporum,“ segir Hrafnhildur. „Sérstaklega finnst fólki sem er atvinnu- laust að það sé óraunhæf draumsýn að það geti fengið starf sem það er ánægt með. Það segir gjarnan: „Eg hef ekkert val.“ Félagsleg staða getur gert fólki erfitt fyrir og langt í frá að allir hafi frjálst val. Sömuleiðis er hópur á vinnumarkaði sem beðið hef- ur skipbrot í skólakerfinu og telur menntunarmöguleika sína litla sem enga. Ofurá- Þcssi hringur sýnir |iau svið sem náms- og starfsráðgjal'- ar vinna við til þess að að- stoða lolk við náms- og starl'sval. því að brjóta stóra markmið- ið niður í fleiri minni sem auð- veldara er að ná. Valmögu- leikar þeirra sem hafa mennt- un eru alltaf fleiri en hinna sem þurfa meiri hvatningar við til að sjá möguleika sína.“ „I nútímasamfélagi þykir sjálfsagt að skipta um starf og starfsvettvang einhvern tíma á ævinni," segir Þórdís. „Það þykir ekki lengur sjálfsagt að fá starf hjá traustu fyrirtæki og vinna þar í fimmtíu ár og fá gullúr þegar farið er á eft- irlaun. Vinnuumhverfið í dag gerir þær kröfur til starfs- manna að þeir séu stöðugt að tileinka sér nýja þekkingu.“ Öll menntun hefur gildi Þess er krafist af Islendingum að þeir velji sér ungir braut að feta í lífinu. Ohjákvœmilega hlýtur það að koma fyrir að menn velji sér fag, mennti sig í því en komist svo að því að þeim leiðist starfið og þegar svo er komið erþá ekki erfitt að skipta um staifog nýta sér ekki margra ára dýrt nám ? „Við segjum reyndar að öll menntun hafi gildi,“ segir Anna. „Menntun þroskar fólk og hefur því ákveð- ið yfirfærslugildi. Hún er brunnur sem ein- staklingurinn getur stöðugt sótt í og bætt við. En vegna þess hversu miklu | skiptir að menn séu ánægðir í starfi er nauðsynlegt að fólk skoði hug sinn vel og ígrundi starfsval sitt. En það eru fleiri þættir sem skipta máli í starfsleit- inni en menntunin sjálf. Sífellt meiri áhersla er lögð á félagslega hæfni. Sam- skiptahæfni er mjög mikil- væg, þ.e. hversu vel fólki gengur að vinna með öðr- um.“ „A vinnumarkaðnum í dag er ekki nægilegt að vera stundvís, duglegur og heiðar- legur,“ bætir Hrafnhildur við. „Til viðbótar við þessar kröf- ur er krafist samskiptahæfni, sveigjanleika, samstarfs- hæfni, getu til að vinna úr upplýsingum og að einstak- lingurinn sé tilbúinn til að bæta við þekkingu sína.“ Við viljiiin veita fólki tækifæri til þcss að staldra vió og ígrunda náms- og starfsval. Ánægður starfskraftur, góður starfskraftur Þeim verður tíðrœtt um mik- ilvœgi þess að einstaklingurinn sé ánœgður með starf sitt og starfsumhverfi. Getur maður í raun gert þá kröfu að starfið veiti manni ánœgju? „Það er engin spurning að ánægður starfskraftur nær betri árangri en sá sem er óá- nægður,“ segir Hrafnhildur. „Það er hagur fyrirtækisins að við gerum þá kröfu til starfs- ins að það veiti okkur ánægju. Það er því beggja hagur. Við verjum a.m.k. þriðjungi sólar- hringsins í vinnunni og ef okkur líður illa þar þá líður ekki á löngu þar til það hefur áhrif á líðan okkar annars staðar.“ Markmið námskeiðsins er að stuðla að aukinni sjálfs- þekkingu og markvissu starfsvali. Þær leggja áherslu á að á fleiru en því, sem hægt er að vitna um með vottorðum eða prófskírteinum, megi mann- inn marka. Mikil samskipta- hæfni og geta einstaklingsins til að vinna með öðrum sé ekki síður verðmætur kostur. Þær benda því á að öll hæfni geti komið mönnum til góða þegar verið er að leita sér að nýju starfi, galdurinn sé að- eins að kunna að vekja at- hygli á henni á réttan hátt. Vikan 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.