Vikan


Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 44

Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 44
 Ein af möppunum sem hún þurfti á að halda þurfti endilega að vera í hillunni sem merkt var A. Það var alveg dæmigert, hugsaði hún hæðnislega þegar hún gaut augunum upp eftir hill- unum. Efsta hillan virtist í óra- fjarlægð. Hún stóð ráðþrota og hafði ekki hugmynd um hvernig hún gæti náð upp í hilluna. Henni létti þegar hún kom auga á sam- anbrotinn stálstiga í einu horn- inu. Hann var fisléttur og auðvelt að opna hann. Hún vildi drífa í því að finna möppurnar og hefjast handa við lesturinn. Hún steig upp í neðsta þrepið og bölvaði sér í hljóði fyr- ir að vera í háhæluðum skóm og þröngu pilsi. Hún hafði alltaf ver- ið lofthrædd og sundlaði þegar hún uppgötvaði að til þess að ná upp í efstu hilluna yrði hún að standa í efsta þrepi stigans. Þar uppi í háloftunum hefði hún ekk- ert til að halda sér í nema hill- una sjálfa. Hún sá fyrir sér járnhillur, stál- stiga og möppur hvolfast yfir sig urn leið og hún snerti efstu hill- una. Hún ákvað að fara rólega og einbeita sér að því að halda jafn- væginu. Hún skimaði eftir möppunni sem hún þurfti á að halda og sá sér til mikillar skelfingar að hún hafði stillt stiganum á hilluna þar sem hún var merkt AM. Það gerði henni erfitt fyrir að ná til þess hluta sem merktur var AN. Þar var auðvitað mappan sem hún leitaði að. Þetta var henni líkt. Hún gat ekki einu sinni fundið skjala- möppur án þess að klúðra því. Hún teygði sig til hliðar, eins langt og hún komst, og bölvaði í hljóði þegar hún fann pilsið skríða upp eftir lærunum. Hún var næstum því búin að ná taki á möppunni. Henni tækist að ná henni ef hún aðeins gæti teygt sig nokkra sentímetra í viðbót. Þá losnaði hún við að fara aftur nið- ur tröppurnar, koma stiganum fyrir og klifra upp aftur. Hún hélt niðri í sér andanum, og teygði sig eins langt og hún gat. „Hvað í ósköpunum...?“ Henni brá þegar hún heyrði rödd Daniels Jeffersons. Hún sneri sér við til þess að horfa á hann og gleymdi öllu um við- kvæma stöðu sína í tröppunum. Stiginn sveiflaðist til og hún fann að hún var að missa jafnvægið. Éger að detta! hugsaði hún skelf- ingu lostin. En hún datt ekki. í stað þess að lenda eins og hrúga á gófinu fyr- ir framan fætur Daniels Jeffer- sons fann hún sér til skelfingar að hann teygði sig eftir henni og náði taki á henni. Nokkrum ógeðfelldum staðreyndum skaut upp í kollinum á henni. í fyrsta lagi að hún hefði gert sig að al- gjöru fífli og án efa staðfest þá skoðun hans að hún væri óhæf- ur starfskraftur. í öðru lagi að henni hafði tekist að taka nokkr- ar möppur með sér í fallinu og innihald þeirra lá nú í einni kös á gólfinu. Þriðja staðreyndin var ógeðfelldust af þeim öllum. Daniel hélt utan um hana og brjóstin á henni voru í augnhæð hans og það sem var enn verra; langir fótleggir hennar héngu í allri sinni dýrð niður úr stiganum. „Ekki vera hrædd. ég er með gott tak á þér,“ heyrði hún Dani- el segja rólega. Eins og hún vissi það ekki. Skilningarvit hennar voru í fullkomnu lagi og þau gáfu henni ekki eingöngu til kynna að hann hefði „gott tak á henni“ eins og hann orðaði það. Líkami hennar virtist á einhvern undar- legan hátt kunna vel við snerting- una við líkama hans. Sú hugsun var einfaldlega fá- ránleg. Hún þoldi ekki einu sinni manninn, hvað þá að ... Loft- hræðslan helltist yfir hana í sinni verstu mynd. Daniel tók utan um hana og kom henni heilu og höldnu niður stigann. Hún greip utan um handleggi hans og reyndi að sigrast á svimatilfinn- ingunni. „Ertu viss um að það sé allt í lagi með þig?“ spurði hann þeg- ar hún loksins fann gólfið undir fótum sér. „Þú hefðir getað slas- að þig. Hvað í ósköpunum varstu að gera?“ Hann sleppti af henni takinu og virti hana fyrir sér. Charlotte píndi sig til að útiloka tilfinning- arnar sem höfðu kviknað þegar hann hélt utan um hana. Henni leið illa, hana sundlaði og hún skammaðist sín niður í tær. „Ég hélt að það væri auðséð," svaraði hún og svaraði ekki fyrri hluta spurningarinnar. „Ég var að ná í möppu." Hún roðnaði þegar hann virti fyrir sér stigann sem hékk eins og dauðadrukkinn rnaður upp við hillurnar. ,,En hvers vegna notaðir þú þennan stiga? Hvers vegna not- aðir þú ekki hinn stigann? Við létum útbúa hann sérstaklega til þess að auðvelda okkur að ná upp í efstu hillurnar.“ Hinn stigann. Charlotte kyngdi og fann roðann brenna í kinnunum. Daniel gekk fram hjá henni og lokaði dyrunum. A veggnum við hliðina sá hún háan tréstiga. „Eins og þú sérð er hægt að krækja honurn utan um hillurn- ar til þess að koma í veg fyrir óhöpp.“ Charlotte kyngdi reiðinni og brann í skinninu eftir að benda honum á að hún hefði ekki misst jafnvægið ef hann hefði ekki komið henni að óvörum. „Þetta er nú einu sinni lög- mannsstofa," sagði hann glettn- islega. „Við eigendurnir erurn okkur þess meðvitaðir að starfs- fólk okkar hefur kunnáttuna til þess að fara í skaðabótamál við okkur ef það slasast í vinnunni." Herbergið var lítið og hann var svo stór, svo ... svo mikilfengleg- ur að allt í einu virtist herbergið algjörlega loftlaust. Hún átti erfitt með að ná andanum. Hún fann að Daniel virti hana fyrir sér. Hún leit snöggt á hann og sá sér til skelfingar að hann horfði beint á munninn á henni. Ósjálfrátt bleytti hún varir sín- ar með tungubroddinum. Hvers vegna? spurði hún sjálfa sig ösku- reið. Var hún að fullvissa sig um að þær væru þarna enn þá? Auð- vitað eru þær á sínum stað og þú ert að ögra honum með elsta bragði sem til er. Bragði sem ein- göngu þriðja flokks kvikmynda- leikstjóri gæti verið þekktur fyr- ir að nota. Ég hlýt að vera að missa vitið, hugsaði hún. Það hlaut að vera loftleysinu að kenna. Hún riðaði á fótunum og aftur heyrði hún Daniel spyrja hvort allt væri í lagi með hana. Hún opnaði munninn og ætl- aði að svara en orðin stóðu föst í hálsinum á henni. Hún gaf frá sér lágt, ógreinilegt hljóð. Hún leit á hann og starði í dökkgrá, tindr- andi augu. Hann hlýtur að ráða yfir einhverju dáleiðsluafli, hugs- aði hún. Hún gat ekki með nokkru móti slitið sig frá augna- ráði hans. Það var auðvelt að skilja vinsældir hans í hópi frétta- mannanna. Hann færi sennilega létt með að dáleiða sjónvarpsá- horfendur ekki síður en hana. Hún bölvaði sér í hljóði fyrir veikleika sinn. Hún lokaði aug- unum, sneri sér undan og dró djúpt að sér andann. Henni Ieið ekkert betur þegar hún opnaði aftur augun. En í þetta sinn gætti hún þess að horfa ekki í augun á honum. „Mér líður vel,“ svaraði hún stuttlega og gekk að dyrunum. „Það var leiðinlegt að þér tókst að grípa mig í fallinu. Ef þú hefð- ir ekki gert það hefði ég dottið á þig og slasað þig. Þá hefðir þú getað farið í skaðabótamál við mig.“ Henni til mikillar undrunar fór hann að skellihlæja og hún varð enn meira undrandi þegar hann sagði: „Ég er alveg klár á því að Lydia hefði elskað þig." Hún var með höndina á hurð- arhúninum þegar hann stöðvaði hana og tók varlega utan um handlegginn á henni. Hún sendi honum illilegt augnaráð og stífn- aði upp. „Hvað heldur þú eiginlega að þú sért að gera?“ Hann var enn þá brosandi en brosið varð kuldalegt þegar hann sagði: „Mér datt í hug að þú vild- ir laga þig aðeins til áður en þú færir fram.“ Hann gekk fram hjá henni og lokaði dyrunum á eftir sér. Hún eldroðnaði þegar hún leit niður og sá hvernig pilsið vöðlaðist um lærin á henni og afhjúpaði þau í allri sinni dýrð. Hún togaði reiði- lega í pilsið áður en hún hófst handa að tína skjölin upp af gólf- inu. 44 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.