Vikan


Vikan - 26.09.2000, Qupperneq 48

Vikan - 26.09.2000, Qupperneq 48
Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r fljótlega var hún orðin fyrir- vinna fjölskyldu sinnar. Hún var mikilvirkur höfund- ur og skrifaði einnig ljóð undir listamannsnafninu Flora Fairfi- eld og litlu síðar fór hún að skrifa melódramtísk leikrit undir nafninu A.M. Barnard. Hún þráði alla tíð sjálfstæði og ekki hvað síst fjárhagslegt sjálf- stæði og þegar bókin Yngis- meyjar, eða Little Women, kom út árið 1870 leit út fyrir að sá draumur hennar myndi rætast. Bókinni var strax tekið vel og Louisa var auk þess í föstu starfi um þessar mundir sem ritstjóri tímarits fyrir ungar stúlkur. Næstu bækur voru mjög í sama dúr og sú fyrri; Little Men, Eight Cousins og Jo's Boys byggðu allar á uppvexti Louisu og snerust að miklu leyti um March-fjölskylduna og þær per- sónur sem við kynntumst í Little Women. Kvenréttiiidakona sem bráði sjálfstæði Louisa hvatti alla tíð konur til að feta þær brautir sem hugur þeirra stæði til í lífinu. Hún var kvenréttindakona og barðist fyrir kosningarétti kvenna auk Rétt tyrir miðja öldina var Jo March, aðalsöguhetja Yng- ismeyja (Little Women), helsta fyrirmynd stelpna í Bandaríkjunum og víðar. Bókin naut mikilla vinsælda og hún var hýdd á ótal tungumál. Árið 1933 var svo gerð kvikmynd eftir bókinni, með Kathrine Hepburn í hlut- verki Jo Nlarch, sem naut gífurlegra vinsælda. Reynt var að endurtaka leikinn árið 1995 hegar Susan Sarandon lék móðurina og Winona Ryder lék Jo. Myndin var ágætlega gerð og naut velgengni, enda var um hessar mundir mjög í tísku að dusta rykið af gömlum bókum kvenrithöfunda og gera eftir heim kvikmyndir. (Þijár bóka Jane flustin voru kvikmyndaðar um svipað leyti og stuttu áður hafði kvikmyndin The Age of Inn- ocence verið gerð eftír sögu Edith Wharton.) Louisa May fllcott skrifaði um duglegar, bjartsýnar ungar konur sem olust upp f kærleiksríkri fjölskyldu. Jo March, sem allar stólkur vildu líkjast, var listamaður sem bráðí sjálfstæði og hað að finna sína eigin rödd. Almennt hefur verið talið að Louisa hafi byggt skrif sín á reynslu sinni af eigin æsku- heimiii en bar var ekki alit sem sýndist. að Louisa iMav Alcott Faðir Louisu var mikill hugsjónamaður og hann trúði á heim- spekikenningar Emer- sons og Thoreaus en þeir voru hugsæishyggjumenn sem lögðu áherslu á að innsæi fleytti mönnum oft lengra en mennt- un og rökhugsun. Alcott sagði sjálfur að Edensgarður væri að vakna í Nýja-Englandi og átti þar við heimili sitt og konu sinn- ar. Hann var kvenréttindamað- ur og trúði á afnám þrælahalds og dætur hans voru menntaðar á sama hátt og tíðkaðist að mennta karlmenn á þeim tíma. Hann var hins vegar afleitur fjármálamaður og heimilið var alltaf á vonarvöl. Louisa vann sem saumakona, heimilishjálp, kennari, leikari, ferðafélagi og hjúkrunarkona, allt til að reyna að ná endum saman, en jafnframt var hún farin að skrifa smásögur undir nafninu L.M. Alcott. Þar sem ritstjórar töldu L.M. Alcott væri karlmaður fékk hún borgað það sama og karlrithöfundar og 48 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.