Vikan


Vikan - 16.02.1984, Side 20

Vikan - 16.02.1984, Side 20
SMAAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA VID GETUIi IETT l>ER SPORIN OG AUDVELDAD ÞÉR FYRIRHÖFN • Afsöl og sölutilkynningar bifreiða • Húsaleigusamningar (löggiltir) • Tekiö á móti skriflegum tilboðum Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi virka daga kl. 9—22 OPIÐ: laugardaga 9—14 sunnudaga kl. 18—22 Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17. SÍMIIMN ER 27022. ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111, SÍMI 27022. þeir. Það hafði verið skýrt tekið fram strax frá byrjun aö starfið væri aðeins til bráöabirgða, sögðu þeir. Það fékk ekki mikið á mig þá. Ég var of dösuð yfir hinum missinum í lífi mínu. Ég taldi upp leiðindi mín: sár fótur, höfuöverkur, blautur botn eftir bekkinn í garðinum, atvinnu- leysi, einmanaleiki, þak sem lak. Það hefði átt að koma mér til að hlæja, þetta var svo hræðilegt. Ég reyndi aö segja sjálfri mér að brátt kæmi vor. Þá mundu páskaliljur og ný, græn laufblöð blómstra og yfirmenn yrðu bjart- sýnir og byðu skrifstofustúlkum roknalaun. En fóturinn á mér var oröinn mjög stífur og það var farið að dimma svo ég hélt heimleiðis. Klukkan var orðin sex þegar ég náöi heim. Skjálfandi í ganginum niðri teygði ég mig inn í litla skápinn þar sem ég skil lykilinn minn alltaf eftir. Hönd mín snerti tóma hillu. Enginn lykill. Ég settist í stigann og tæmdi töskuna mína. Ég reyndi að vera róleg. Mín eina von var sú að ég hefði ekki læst. Stundum gleymdi ég að setja la^singuna á. Ég haltraði upp þrjá stiga og fann blóð streyma úr skurðinum á fætinum á mér. Ég kom að hurðinni minni, ýtti á hana og, guði sé lof, dyrnar opnuðust! Ég grét af gleði. Það hljómar frámunalega en gleðin yfir því aö vera fyrir innan í staöinn fyrir að vera læst úti var svo ákaflega mikil — og dagurinn hafði veriö svo hræðilegur. Þegar ég stóö grátandi rétt fyrir innan dyrnar kom vinur minn úr eldhúsinu, gekk til mín stórum skrefum og tók mig í fang sér. Hann fór með mig aö sófanum, lét mig hvíla fót- inn, braut upp gallabuxurnar mín- ar og skoðaði sárið. „Sögðu þeir þér ekki að þú ættir ekki að ganga um allan daginn? ” ,,Ég hélt að ég hefði læst mig úti!” „Hvað varð um aukalykilinn og hinn aukalykilinn ? ’ ’ „Týndi þeim!” Hann bjó til te og kom og sat á hinum enda sófans, hélt um fótinn á mér og horfði á mig með kunnug- legum reiðisvip yfir brúnina á bollanum. Það var löng þögn. „Hvers vegna komstu hingað í dag?” „Elsie sagði mér hvað hafði gerst. Hún sagði: „Þessi klikkaða vinkona þín, sem var alltaf að hringja, kom inn í dag. Varö fyrir bíl. Ljótur skurður á fætinum á henni.” Svo ég varö að koma og sjá hvort það væri allt í lagi með þig.” Ég kinkaði kolli og þaö var hræðilegur kökkur í hálsinum á mér vegna þess að þetta var aöeins góðsemi. Einskær, hræði- leg, ástlausgóðsemi! „Jæja? Eralltílagi meðþig?” Ég hristi höfuðið. „Ekki mig heldur. Ég vinn alltof mikið. Ég hlæ aldrei. Það er eng- inn til að stoppa mig, til að trufla mig og láta mig borða eða draga mig út í göngutúr eða bara draga hugann frá náminu svo að þegar ég byrja aftur er ég endurnærður og get einbeitt mér. Enginn til að spyrja þegar ég skildi ekki það sem ég var að reyna aö læra og koma til aö trufla mig svo ég þyrfti ekki að viðurkenna það fyrir sjálfum mér. Enginn til að vekja áhuga minn á biluðum hlut- um, stífluðum niðurföllum, brotn- um vösum og sprungnum dekkj- um á reiðhjólum... ” „Seldihjólið! Missti vinnuna! ” Hlæjandi, grátandi, það er sami léttir. Næstum því ómögulegt að trúa því að hann sé hér aftur, nálægt mér, andlit hans nálægt mínu. Ég hafði gleymt svo mörgu í fari hans. Eftir dálitla stund sagðist hann ætla að búa til kvöldmat handa mér. Hann gekk flautandi inn í eldhús. Þegar hann kom aftur til baka og hélt hreykinn á matar- bakka var ég svo upptekin af að horfa á andlit hans og reyna að trúa því aö hann væri virkilega hér að ég gleymdi vatnsfötunni undir lekanum og hann sá hana aldrei... Tómatsúpan flaut framhjá mér, skálarnar lentu á hvolfi á teppinu- Sama var að segja um ostabrauð- ið. Það er ótrúlegt hvað tómat- súpa getur sullast langt þegar hún dettur úr hæð. Ég hafði gleymt því hvað hann getur orðið reiður yfir kjánalegum litlum atvikum og ég gat ekki hætt að hlæja. Það gerði hann enn reiðari. „Þetta er bara svona dagur, sagði ég við hann. Hann var ekki reiður lengi. Við þurrkuðum upP sulluganginn, létum 'fötuna aftur undir lekann og fórum út að borða í staöinn. Gærdagurinn var bara svona dagur sem kemur einu sinni a lífstíð. 20 Vikan 7. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.