Menntamál - 01.12.1933, Síða 3

Menntamál - 01.12.1933, Síða 3
MENNTAMÁL i3J þakinn dökkum greniskógi, uns blánandi sjóndeildarhringurinn lokast umhverfis ofurlitla fagra, norræna veröld út af fyrir sig. Náás er mjög gamall staöur, a. m. k. 400 ára. Fyrstu áreih- anlegar sagnir um sta'Sinn eru i skjölum Gustavs Vasa frá r529. Haldið er aS Kristján II. hafi átt Náás skömmu áöur. og notaö höllina fyrir veiSiskála. Siöar átti fjölskyldan Oksen- .stjerne eignina og ýmsir fleiri. En þaö er Gyöingurinn August Abrahamson og systursonur hans Otto Salomon, sem hafa gert garöinn frægan í nútíöinni. Ahrahamson var aí fátækum foreldrum kominn. Þeir flutt- ust meö piltinn til Svíþjóöar frá Þýskalandi. Meö dugnaði og nægjusemi vann drengurinn sig upp, gerö- ist kaupmaöur, og varð loks einn af mestu stóreignamönnum Gautaborgar. Keypti hann þá herragaröinn Náás áriö 1S68 og flutti þangaö meö konu sinni, senr hann missti eítir eins árs <lvöl ]rar. Þá tók hann til sín systurson sinn O. Salomon, sem áöur haföi gengiö í tekniska háskólann i Gautaborg, en breytti nú til og fór í búnaöarskóla, til þess að búa sig undir jarö- ræktina á Náás. Abrahamson var mannvinur, og hugur hans hneigðist aö uppeldismálum. Hann haföi aöeins dvaliö rúmt ár á Náás, er hann bauö sveitarstjórninni aö1 kosta sjálfur smiöa- skóla, ef hún vildi láta reisa hann þar. Þó varö ekkert veru- lega af framkvæmdum fyr en 1872, aö Abrahamson setur •á stofn handavinnuskóla sinn fyrir pilta og gefur 25000 kr. til hans. Þaö flýtti líka fyrir, aö um þessar rnundir vaknaöi mikill áhugi fyrir heimilisiönaöi í Sviþjóö. Fyrsta áriö voru aðeins 16 nemendur. Vinnutíminn var ákv. 7 st. daglega, og svo hefir jafnan veriö síðan. Auk þess var þá 3 st. bók- legt nám. Skjótt óx skólinn. Nýtt hús var hyggt og stúlk- ur teknar. Fjölbreytni námsins óx lika; auk smíða kom út- skurður, teikning, leöurvinna o. fl. Þessi skóli var fyrir börn og unglinga og starfaði aö vetrinum. Abrahamson kenndi ekki sjálfur, en fól frænda sínum Salo- mon skólastjórn þegar í upphafi. 1 hans 35 ára stjórnartiÖ óx og dafnaði skólinn. og varð voldug og viöþekkt stofn-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.