Menntamál - 01.12.1933, Qupperneq 13
MENNTAMÁL
141
ins. Úrvinnslunni var hagaö á þann veg, a'ö prófgögn öll i
lestri og reikningi voru fyrst flokkuö eftir aldri barna, sem
prófuö voru. Meö sanianbur'öi var reynt að bæta úr, ef próf-
blað var ónákvæmt útfyllt — sem allmikil brögð voru að,
eins og áður er drepið á. Þá var reiknuð út meöaltalseinkunn
allra barna í hverjum aldursflokki í hverju skólahéraði og sið-
an í hverjum skólaflokki. Þessar niðurstöður voru svo færð-
ar á yfirlitsskýrslu þá, er fer hér á eftir.
Að þessu sinni verða ekki birtar niðurstöður prófa fulln-
aðarprófsbarna í lesgreinum. Aðalástæðan til þess er sú, að
i sumum skólahéruðum eru ekki nema 1 eða 2 fullnaðarprófs-
börn og er þá ófært að bera þau saman við önnur skóla-
héruð, þar sem um mörg fullnaðarprófsbörn er að ræða, svo
sem í kauptúnum og kaupstöðum, þvi að það væri undir
hendingu komið, hvort þetta eina barn — þar sem um að-
eins eitt er að ræða — væri afburða duglegt eða afarlélegt,
og væri þá ekki rétt að dæma fræðsluástand skólahéraðsins
eftir því. Þessara sönni annmarka gætir að vísu nokkuð í sam-
anburði milli skólaflokka og skólahéraða, vegna mismunandi
fjölda prófaðra barna, en sá samanburður gefur þó réttasta
hugmynd um fræðsluástand hvers skólahéraðs i þeim grein-
um, þar sem þar er um öll skólaskyld og prófskyld börn
skólahéraðsins að ræða.
Um prófin í lesgreinunum (landafræííi, náttúrufræöi og
sögu) er það aö segja, að víöast hvar hefir tala rétt leystra
verkefna orðið meiri en við var að búast, og það enda þótt
komið hafi í ljós, að ekki hafi í öllum skólahéruðunum unn-
ist tími til þess að komast yfir allt það námsefni, sem kraf-
ist er til fullnaðarprófs.
Eftir öllum prófunum að dæma, er ástæða til þess að brýna
fyrir hlutaðeigendum að leggja enn meiri áherslu á kennslu
í móðurmáli og reikningi, enda eru þær námsgreinar undir-
stöðuatriði alls frekara náms, hvort sem barn sí'Öar meir
hneigist að bóklegu eða verklegu starfi. Af lesprófum 10
ára barna má sjá, að allmikið mun skorta víða á það, að