Menntamál - 01.12.1933, Blaðsíða 28

Menntamál - 01.12.1933, Blaðsíða 28
MENNTAMÁL 156 og viö sjó, einum kennara í hverjum skóla. Jafnframt voru kennurununi send bréf frá okkur og frá fræöslumálastjóra, þar sem ])eir voru vinsanilega beönir að greiða fyrir ritinu, og veita svör um undirtektir sínar sem fyrst. Allmargir kenn- arar brugöust vel og drengilega viö og hjálpuðu Sunnu af hinni mestu prýði, og þökkum við þeim hér með sem best veitta aðstoö. — En þvi miður svaraði töluvert meira en helm- ingur kennara bréfi okkar engu — skiluðu ekki einu sinni eintökum þeim, af 1. hefti, er þeim voru send í fullu trausti. Leiðir af því, að 1. hefti má nú heita gengið til þurðar, og geiir það birgðir ]iær, sem til eru. af öðrum heftum, verð- minni en ella. Við fengum ekki nauðsynlega kaupendatölu að Sunnu, svo að tjón okkar á 1. árgangi er 1400 kr., auk útlagðrar vinnu okkar. Hér að auki eru 400 kr. útistandandi hjá kennurUm, fyrir eintök, sem þeir hafa pantað og fengið, en ekki greitt. Við mégum ekki við slíku tjóni, og hættum því útgáfunni •— sárnauðugir þó — i haust er leið. Er annað tveggja, að við höfum „fallið“ á prófi þvi, er við gengum undir, er við hóf- um útgáfu barnarits, er ætti skilið að lifa; eða kennarastétt- in hefir „fallið“ á prófi því, er tilraun okkar var á álmga hennar. Vrö þökkum öllum þeim, er reynst hafa Sunnu vel á ein- hvern þátt, og börnunum, sem lásu hana, eigi sist. Biðjurn við kennara að skila ]rví þakklæti. Þakkir okkar ná einnig til þeirra, sem hér eftir greiða skuldir sínar við Sunnu, eða endursenda óseld eintök af 1. hefti hennar. Utanáskrift út- gefenda er: Pósthólf 406, Reykjavík. Reykjavík, 31. janúar 1934. Aðalsteinn Sigmundsson. Gunnar M. Magnúss. Til kaupendanna. Samtímis ]æssu tölubl. Menntamála er kaupendum send póstkrafa fyrir andvirði yfirstandandi árgangs Menntamála. Nokkrir kaupendur eiga enn ógreiddan siðasta árgang og er póstkrafa þeirra þeim mun hærri. Menntamál. Vcr'ð 5 kr. árg. Afgr. i Arnarhvoli. Sími Arnarlivoll. FélagsprentsmiSjan.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.