Menntamál - 01.04.1944, Qupperneq 11

Menntamál - 01.04.1944, Qupperneq 11
MENNTAMÁL 89 orðin samtaka í þeim á samæfiilgum. Þá breytir kennar- inn til og kennir nemendunum tvær undirstöðuæfingar jafnvægisgangs. Jafnvægistækið er krítarstrik á gólfinu, en vegna skýringa kennarans verður það í vitund nem- endanna þvengmjór strengur yfir djúpa gjá. Lífið liggur við, að jafnvæginu sé haldið, og svo bætist sú þraut ofan á allt annað að leika ýmsar listir yfir hyldýpinu. 5—6 jafnvægisæfingar lærast þannig í leikformi. Við og við tekur kennarinn börnin út á göngu. Viss hluti göngunnar er helgaður gönguæfingum. Kennarinn brýnir fyrir börnunum að fylgjast í skrefum og ganga frjálsmannlega og djarflega og bera sig vel. Svo er hlaup- inn smásprettur, samtökunum haldið, hnjám lyft hátt og örmum sveiflað um axlir og horft hátt fram á við. Stökk yfir snúru eru æfð við og við. Atrennan höfð hæfileg og stöðvað, þegar niður úr stökkinu yfir snúr- una er komið. Útileikirnir eru frjálsir og bundnir. Kennarinn hefur sett sér að kenna skipulega 10 leiki yfir veturinn. Hann skýrir gang hvers leiks og leikreglur inni í kennslustof- unni. Nýr leikur vikulega. Þann leik leika börnin að minsta kosti í einum frímínútum daglega, og þá er kenn- arinn viðstaddur. Með þessu elur kennarinn upp samstillt leikjastarf meðal nemendanna. Nemendunum verður ljóst af reynslu sinni, er þeir hafa notið skipulegra leikja, að orð kennarans voru sönn: „Samstilltir einstaklingar skapa sigursæla heild.“ Kennari þessi hefur unnið þjóðfélagi sínu vel, með því að láta börnin sannprófa grundvöll lýðræðisins. Hann hefur alið upp virðingu fyrir settum reglum, til þess að fjöldinn geti notið sín, en ekki aðeins einn uppvöðslusamur yfirgangsseggur. 1 sambandi við heilsufræðikennsluna kennir þessi kenn- ari nokkur atriði í hjálp í viðlögum. Hann fer nákvæmlega út í lífgun úr dauðadái. Hann lætur börnin æfa lífgunar- tökin hvert á öðru. í sambandi við lífgunaraðferðina

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.