Menntamál - 01.04.1944, Side 17
MENNTAMÁL
95
verða þar búningsherbergi og’ böð. Ætlast er til, að vor-
skólinn starfi þarna uppi og hefur hann til notkunar
breiðar svalir, sem eru fram af kennslustofunum, því að
þriðja hæðin nær ekki yfir allt húsið.
Fimleikasalur skólans er 10 sinnum 20 metrar á stærð.
Gert er ráð fyrir, að sundlaug með sólbyrgi verði byggð
við fimleikahúsið.
Leikvelbr skólans eru tveir. Er ætlast til, að yngri börn-
in haldi sig á öðrum leikvellinum, en þau stærri á hinum.
Sinn inngangur er fyrir hvorn flokkinn, svo að því er lík-
ast, sem þeir séu hvor í sínum skóla. Telur skólastjórinn,
Arngrímur Kristjánsson, að þetta fyrirkomulag muni
reynast vel og miklu auðveldara verði að koma á skipu-
legri leikjastarfsemi meðal barnanna í frímínútum með
þessu lagi heldur en hugsanlegt sé, þar sem börnum á öll-
um aldri verði að leika sér samtímis á tiltölulega þröng-
um leikvangi.
Þessu nýja skólahúsi er ætlað að geta tekið 1300—1400
börn, ef tvísett er í stofurnar, en þess ætti raunar hvergi
að þurfa. Gert er ráð fyrir, að 1200 börn sæki hann, og
ætti hann þá að geta létt töluverðu af hinum barnaskól-
unum í Jteykjavík, en húsnæði þeirra er alltof lítið eins
og nú er.
Gagnfrœðashólinn í Vestmannaeyjum
hefur sent Menntamálum skýrslu um starfsemi sína árin 1930—43.
Á þeim árum hefur nokkru meira en hálft fjiírða hundrað manns
stundað nám í skólanum, auk þeirra, sem sótt hafa námskeið þau,
er skólinn liefur gengizt fyrir, en það hafa verið matsveinanámskeið
haustin 1937 og 1938 og vinnuskóli mánaðartíma vorið 1938. Þorsteinn
Þ. Víglundsson hefur verið skólastjóri gagnfræðaskólans allan tímann.
Alþýðublaðið
liirti dagana 16. og 17. marz s.l. grein Stefáns Júlíussonar „Heim-
sókn í skóla", sem kom í febrúarhefti Menntamála.