Menntamál - 01.12.1950, Side 8

Menntamál - 01.12.1950, Side 8
206 MENNTAMÁL frá námi trúlitlir á sjálfa sig. Og kennararnir mæddust yfir þeim í hverjum frímínútum og spurðu sig og aðra, hvaða erindi þetta fólk ætti í skóla. Sú spurning er afar eðlileg, þegar menn geta ekki hugsað sér skóla í annarri mynd en áður var á drepið, og þegar menn láta sér ekki til hugar koma, að skóli skuli haga starfi sínu eftir eðli og þörfum nemenda sinna. Það er víst og áreiðanlegt, að mikill hluti unglinga á lítið eða ekkert erindi í harðsvíraða bóknáms- skóla, enda var síður en svo til þess ætlazt af þeim, sem undirbjuggu fræðslulöggjöfina. Þá vík ég að öðrum þætti þessara hugleiðinga, hvort sá stakkur, sem 19. öldin skar skólum okkar, muni hæfa þeim að eilífu, hvort við kennarar séum einir allra stétta þeir lukkunnar pamfílar, að við getum að skaðlausu látið und- ir höfuð leggjast að leita nýrra leiða í starfsháttum, þótt það líf, sem við teljum skólana eiga að þjóna, hafi tekið svo algerum stakkaskiptum, að vart sé orðið þekkjanlegt. Mér hefur stundum til hugar komið, ef kynslóðir síðustu aldar mættu rísa upp úr gröfum sínum, mundu fáar starfs- stéttir þekkja sig jafnvel á vinnustöðvum sínum og kenn- arar, nema ef vera skyldu klerkar. Getur það til að mynda verið, að við þurfum ekkert til- lit til þess að taka, að nú er líf hvers manns knýtt ótölu- legum böndum við þjóðfélagið, í stað þess að áður lifðu fáir einstaklingar saman í hóp nærri því óháðir umheim- inum? Og nægir hraflkunnátta í nokkurum fræðigreinum til þess að tryggja það sem bezt má verða, að þetta marg- slungna samfélag megi vel takast. Reynslan sýnir, að þetta gengur svona nokkurn veginn, jafnvel þótt skólarnir hafi lítið sinnt því verkefni að búa æskulýðinn undir að lifa í slíku samfélagi. Hins vegar getum við ekki neitað því, að víða er vondur brestur í keri, sem tilveru lýðræðisþjóð- félags stendur ógn af. Gæti það því ekki verið nokkurs virði, að vaxandi kynslóð væri tamin við að virða og meta

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.