Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 27
MENNTAMAL
225
SEXTUGUR:
Steinþór Guðmundsson
cand. theol.
Hann er fæddur aS Holti
í Ketildalahreppi í Barða-
strandasýslu 1. des. 1890,
sonur Guðmundar Eggerts-
sonar bónda, síðar í Kross-
dal við Tálknafjörð og
konu hans, Helgu Helga-
dóttur, Jónssonar bónda á
Öskubrekku í Ketildölum.
Steinþór lauk stúdents-
prófi 1911, las síðan um
hríð stærðfræði og efna-
fræði við fjöllistaskólann
í Kaupmannahöfn, hvarf
frá því námi og lagði stund
á guðfræði og lauk prófi
í þeirri grein við Háskóla
Islands 1917, var skóla-
stjóri Flensborgarskólans í forföllum Ögmundar Sigurðs-
sonar 1917—1918, skólastjóri barnaskólans á Akureyri
1918—1929, gjaldkeri Útvegsbankans á Akureyri 1930—
1932, kennari við Miðbæjarskólann í Reykjavík frá 1933
og síðar Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, var jafnframt
stundakennari við ýmsa framhaldsskóla í Reykjavík, t. d.
Menntaskólann og Kennaraskólann. Hann er mjög skýr og
hæfur kennari.
Steinþór er annálaður atorkumaður, og hefur hann jafn-