Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 30
228
MENNTAMAL
„Friðrik Bjarnason er eitt af vinsælustu tónskáldum
landsins. Hann er fyrir löngu þjóðkunnur fyrir tónsmíðar
sínar. Hann hefur samið lög fyrir karlakór og blandaðan
kór, barna- og æskulýðssöngva, einsöngslög, og orgellög.
Ýms af lögum hans eru fyrir löngu orðin almennings eign.
— Hin þýða laglína, hnitmiðaða framsetning og hóflegi
búningur hefur aflað þeim vinsælda, sem virðist aukast við
nánari kynni. Af kórlögum hans nefni ég aðeins „Hóla-
dans“, „Huldur“, „Hrím“, „Fjallabyggð“ og „Abba labba
lá“, en þessi upptalning gæti auðvitað orðið lengri. Af
barna- og æskulýðssöngvunum vil ég einkum benda á „Fyrr
var oft í koti kátt“, „Hafið bláa hafið“, „Nú er Gyða á
gulum kjól“ og „Gönguvísu“.
„Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á fram-
tíðarvegi“. Friðrik hefur gefið æskulýð landsins góðar og
dýrmætar gjafir og þeim hefur verið tekið tveim höndum.
Naumast er hægt fyrir tónskáld að kjósa sér betra hlut-
skipti.
Enn er þess að geta að Friðrik hefur gefið út margar
skólasöngbækur, ýmist einn eða í félagi við aðra. Hann
gaf um skeið út söngmálablaðið „Heimir“ í félagi við Sig-
fús Einarsson. Þar örlar á því, sem kunnugir vita, að hann
er með fróðustu mönnum í sönglistarsögu, og ann reyndar
öllum sögufróðleik og ættfræði.
Friðrik er kvæntur Guðlaugu Pétursdóttur frá Grund í
Skorradal, mestu afbragðskonu, sem býr yfir ríkri list-
hneigð, sem kemur m. a. fram í Ijóðum þeim, sem hún
hefur ort. Hún hefur t. d. ort erindin um Hafnarfjörð, sem
Friðrik hefur samið lag við og nú er orðið héraðssöngur
Hafnfirðinga. Gætu önnur byggðarlög öfundað Hafnar-
fjörð af þessum héraðssöng, sem uppfyllir svo vel þær
kröfur sem gera verður til þess háttar söngva. Frú Guð-
laug fæst einnig við að mála og teikna.
'Friðrik hefur nú látið af organleikarastörfum, en hann
er ekki hættur störfum fyrir því. Hann vinnur nú að tón-