Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 31
MENNTAMAL
229
smíðum. Ætla ég, að bezta afmælisóskin til hans muni vera
sú, að honum auðnist að færa í búning sem flestar af tón-
hugsunum sínum.“
Frá iðnskólunum.
Á aðalfundi Sambands iðnskóla ;i íslandi, er haldinn var í fyrra-
haust, var ákveðið að stofna bókaútgáfu, er annast skyldi útgáfu
kennslubóka handa iðnskólum landsins. Fram að þessu hafa iðnskól-
arnir nær eingöngti orðið að notast við erlcndar kennslubækur og
fyrirmyndir. í sumuin kennslugreinum hefur kennslan orðið að fara
cingöngu fram með fyrirlestrum, ]>ar sem engar bækur hafa verið fáan-
legar, og hefur þetta fyrirkomulag tafið mjög mikið fyrir kennslunni,
þar sem nemendur hafa orðið að skrifa allt niður, sem sagt er. For-
ráðamenn iðnskólanna hafa séð, að þetta gat ekki gengið öllu lengur
og hafa því ákveðið að hefja útgáfu kennslubóka á eigin forlagi.
Stjórn útgáfunnar skipa þeir:
Þorsteinn Sigurðsson, skólanefndarmaður, Reykjavík,
Bergur Vigfússon, skólastjóri, Hafnarfirði og
Björn H. Jónsson, skólastjóri, ísafirði.
Fyrsta bókin, sem væntanlcg cr frá forlaginu, er Rafmagnsfræði
eftir Magnús Magnússon verkfr. og kcinur hún út í desember n. k.
Næsta bók verður „Viðarfræði" fyrir trésmiði eftir Björn TT. Jónsson
skólastjóra.
Tieki til kennslu í eðlisfrædi.
Árið 1948 ræddi ég um það við fræðslumálastjóra, hvort ekki myndi
kleift að fá sntíðuð hér nokkur einföld tæki, sem nothæf væru við
cðlisfræðikennslu. Fræðslumálastjóri féllst á. að þetta væri reynandi.
og að skrifstofan hefði nokkurt veltufé, sent hann væri fús til að lána.
Sagði hann einnig, að honum fyndist að eini hugsanlegi staðurinn,
þar sem hægt væri að fá þetta smíðað, væri vinnuhælið að Reykjalundi.