Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 34
232
MENNTAMÁL
Kristjana Jónsdóttir fimmtug.
5. ágúst s. 1. átti frú Kristjana Jónsdóttir kennari að Sólheimum
í LandbfOti fimmtugsafmæli. Hún lauk kennaraprófi 1925, og 20 ár
samfleytt hefur hún verið kennari í Kirkjubæjarhreppi. Til minningar
um þetta starfsafmæli frú Kristjönu héldu hreppsbúar henni samsæti
í lok síðasta skólaárs og gáfu henni minjagrip í viðurkenningarskyni
fyrir dyggilega unnin störf.
Frú ICristjana er gift Magnúsi Auðunssyni bónda að Sólheimum, og
eiga ])au hjón 2 börn, son og dóttur.
IJm kennslustörf frú Kristjönu e'r m. a. svo að orði komizt í afmælis-
grein í Tímanum 5. ágúst s. L:
„Hin bóklegn fræði kennir Kristjana af áhuga og krefst á því sviði
góðrar uppskeru. Munu fáir kennarar komast þar Iram úr með árang-
ur af starfi. Hitt er þó sýnu merkilegra, hve mikla rækt hún hefur
lagt við handavinnukennslu í skólanum — og má það kalla umfram
skyldu.
Við hver skólaslit mætir fjöldi foreldra in. a., og ekki sízt til að
skoða haudavinnu barnanna. Er þá skólastofan öll svo hlaðin munum,
scm börnin hafa gcrt, að livergi sér til veggja að heitið geti. Tilbreytni
er alltaf nokkur frá ári til árs, þó að verkefnin sétt þau sömu að
mestu Ieyti. A borðum eru munir ýmiss konar, útsagaðir eða skornir,
en veggir ertt þaktir blýants- og vatnslitamyndum, saumaskap og prjón-
lesi. Handavinnan hcftir jöfnum höndum miðazt við hýbýlaprýði og
gagnsemi. Margar ungar húsmæður hafa m. a. átt í búið kaífidúka,
sem þær saumuðu í barnaskólanum, auk ýmissa listmuna, sem heimili
prýða. Mun mörgum ókunnugum ótrúlegt þykja, að hér væri um
barnavinnu að ræða. En Kristjana cr vandlát og lætur taka verkið
upp að nýju, unz því er skilað fagurlega."
ÚTGEFANDI: SAMIiAND ÍSEENZKRA HARNAKENNARA OG
LANDSSAMHAND FRAMHALDSSKÓLAKENNARA.
Úlgáfustjórn:
Arinnnn Halldórsson ritstj., Helgi Þorláksson og Jón Krislgeirsson. \
AfgreiðslumaÖur: Þórður J. Pálsson.
Prentsmiðjan ODDI h.f.
J