Menntamál - 01.12.1950, Síða 13

Menntamál - 01.12.1950, Síða 13
MENNTAMÁL 211 eldi æskulýðsins, og aðferðir þess, hið kerfisbundna lexíu- nám og yfirheyrslur, talsvert varhugaverðar. Þó getur þetta gengið skaplega, þegar um nemendur er að ræða, sem hafa innri skilyrði til þess að standast þær ströngu kröfur, sem skólinn gerir til þeirra. En það er að mínu áliti aðeins nokkur hluti hvers aldursflokks. Þegar þessir skólar eiga að taka við öllum unglingunum, eru þeir knún- ir til að leita nýrra leiða að minnsta kosti fyrir þá nem- endur, sem gamli skólinn hæfir alls ekki. Þetta verður ekki gert, nema sem flestir, sem að þessum málum vinna, leggi sig fram og þeim sé ljóst, hvaða verkefni bíður þeirra. í þessu sambandi skulum við gera okkur Ijóst, að skólar hljóta að vera einhverjar hinar kyrrstæðustu stofnanir þjóðfélagsins. Bóndinn, iðjuhöldurinn og útvegsmaðurinn keppa fast að því að bæta starfsháttu atvinnugreina sinna, ella eiga þeir á hættu að bíða lægra hlut í lífsbaráttunni. Það er sterkt afl, sem knýr þá til endurbóta, sjálf sjálfs- bjargarviðleitnin. Endurbætur á starfsháttum skóla vekja sjaldnast gróðavonir. Þær eru þjóðfélaginu kostnaðar- samar, og því hættir forráðamönnum þess að tregðast við þeim. Allur almenningur hefur ríka hneigð til þess að hugsa sér, að skólar eigi alla tíð að vera, eins og þeir voru í hans ungdæmi. Og við, kennarar, erum ekki nema menn, við græðum ekkert á umbótunum, þær kosta okkur fyrir- höfn, og okkur þykir minnkun að því að breyta til um starfsaðferðir og viðurkenna, að aðrir fari skynsamlegar að. En þó á vaxandi kynslóð það undir trúnaði okkar, að við gerum það, sem við getum bezt, henni til heilla. Og vissulega langar okkur ekki til að fá þann dóm, að fyrir svefnsemi okkar hafi íslenzkir skólar orðið að nátttröllum í nútíðinni. A. H.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.