Menntamál - 01.12.1950, Page 14
212
MENNTAMÁI,
FRIÐRIK HJARTAR skólastjóri:
Samtengingar. — Kommureglur.
(Nokkur aðalatriði.)
gr. 112 Samtengingar eru smáorð. (Sjá gr. 34).
Sumar þeirra eru aðeins eitt orð, t. d. og, ef, eða, þegar,
og nefnast þá einyrtar samtengingar. Aðrar eru fleiri en
eitt orð hver, t. d. þó að, svo að, af því að, og nefnast fleir-
yrtar samtengingar.
Nokkrar fleiryrtar samtengingar
t. d. bæði— og, hvorki — né, eru fleygaðar af öðrum orð-
um og nefnast fleygaðar samtengingar. Dæmi: Ég vil
hvorki kaupa Faxa né Grána. Hesturinn er bæði fljótur
og viljugur.
gr. 113 Samtengingar skiptast í tvo aðalflokka: aðal-
tengingar og aukatengingar.
AÐALTENGINGAR:
1. en, heldur, enda: alltaf komma á undan;
2. og, eða, ellegar: komma eða punktur, þegar báðar
setningarnar eru sjálfstæðar, annars ekki;
3. fleyguðu tengingarnar: bæði — og, hvorki — né,
annaðhvort — eða, hvort — eða, ýmist — eða: eklci
komma í milli.
AUKATENGINGAR:
1. Slcýringartenging: að: alltaf komma á undan.
2. Spurnartengingar: hvort, hvort — eða, hvort sem —
eða: alltaf komma á undan setningum.
3. Skilyrðistengingar: ef, nema, svo framarlega sem:
alltaf komma á undan.