Menntamál - 01.12.1950, Qupperneq 16
214
MENNTAMÁL
aratviksorð), skilyrðistengingar, afleiðingartengingar,
orsakatenging(ar, tilgangstengingar, tíðartengingar, til-
vísunartengingar, (tilvísunarfornöfn), og viðurkenningar-
tengingar — 9 flokka alls. —
Mundu svo eftir að læra vel (10. flokkinn), samanburðar-
tengingarnar og kommureglurnar, sem gilda um þær (sbr.
bls.3).
BJÖRN H. JÓNSSON skólastjóri:
Söfnun
kennslubóka.
Nokkuð virðist áhugi á íslenzkri bókfræði hafa aukizt
á síðari árum, og þeir eru orðnir margir — fleiri heldur en
almenning grunar, sem safna eldri, íslenzkum bókum. Er
það vel farið, að tíndar eru saman þær leifar, sem enn eru
við líði. Þar er reyndar ekki um auðugan garð að gresja
nú orðið, því að hvort tveggja er, að upplögin voru oftast
lítil, og svo hafa léleg húsakynni og hirðuleysi hjálpazt að
við eyðileggingarstarfið. Þó kemur alltaf ein og ein bók
og stundum fleiri saman fram í dagsljósið.
Ekki er mér kunnugt um, að gerð hafi verið tilraun til
að safna íslenzkum kennslubókum sérstaklega, nema það
sem fræðslumálaskrifstofan hefur safnað hin síðustu ár.
Nokkrir bókasafnarar eiga þó allmikið safn eldri kennslu-
bóka, t. d. Guðm. Gamalíelsson bóksali, Þorsteinn M. Jóns-
son skólastjóri, Þorsteinn Þorsteinsson sýslumaður o. fl.
Þegar undan eru felldar kennslubækur í kristnum fræð-
um, verður naumast sagt, að útgáfa námsbóka hafi byrjað
hér á landi fyrr en á síðari hluta átjándu aldar, og fáar
voru þær og strjálar allt fram undir síðustu aldamót. Sum-