Menntamál - 01.12.1950, Síða 17
MENNTAMÁL
215
ar þessara námsbóka eru orðnar svo sjaldgæfar, að ekki er
vitað um nema örfá eintök, sem vitanlega liggja ekki á
lausu. Stafrófskverin er einna erfiðast að fá. Þeim hefur
flestum verið slitið upp til agna.
Fræðslumálaskrifstofan og S. I. B. þurfa að leggjast á
eitt um að safna því, sem enn kann að vera til af gömlum
námsbókum í landinu. Ef kennarar vildu sýna áhuga á
málinu og leggja sig fram, ætti að vera hægt að smala
nokkurn veginn sauðlaust. Er þá fyrst að vita, hvers er að
leita. I því skyni hef ég tekið saman lista yfir eldri kennslu-
bækur, sem mér er kunnugt um.
Mjög oft á það sér stað, að titilblöð vantar á gamlar bæk-
ur, þó þær séu sæmilega heilar að öðru leyti. Má þá oft
sjá, um hvaða bók er að ræða, með því að athuga blaðsíðu-
fjölda bókarinnar og hef ég því látið hann fylgja, þar sem
mér er kunnugt um hann.
Ekki má slá hendi við neinu, jafnvel þó ekki séu nema
nokkur blöð úr gamalli bók. Það getur verið hægt að nota
þau til að fylla upp í eyðu í aðra bók sömu tegundar.
Fræðslumálastjóri og aðrir, sem ég hef átt tal við og
telja má, að málið sé skylt, hafa látið í ljósi áhuga og lofað
fylgi. Treysti ég því, að kennarastéttin öll sýni máli þessu
fullan skilning og ljái lið, svo takast megi að koma upp
safni þeirra námsbóka, sem gefnar hafa verið út á íslenzku
frá upphafi og fram á þennan dag. Þetta er fremur hirðu-
semi og fyrirhöfn heldur en kostnaður og mun verða metið
og þakkað af óbornum. Fræðslumálaskrifstofan mun taka
þakksamlega við því, sem henni kann að berast af þessum
gömlu bókum.
Reikningsbækur.
1. Edward Hatton: Lijted agrip Vmm þaer Fioorar Species I Reikn-
ings Konstenne, Þa undan eru geinginn Numeratio edur Talann.
]. Additio edur Tillags Talann. 2. Subtractio edur afdraatar
Talann. 3. Muliplicatio Margfjþlgande Tala. 4. Divisio Skipta
edur Sundurdeilinga Talann. Flanda bændum og Börnum ad