Menntamál - 01.12.1950, Síða 28
226
MENNTAMAL
framt kennslunni unnið feiknmikil störf í félagsmálum
m. a. fyrir góðtemplararegluna, Sósíalistaflokkinn t. d.
átt sæti í miðstjórn hans lengi, verið bæjarfulltrúi fyrir
hann og fræðsluráðsmaður, svo að fátt eitt sé talið. Þá
hefur hann fengizt allmikið við málefni síldarútvegsins. f
samtökum kennara hefur hann og tekið virkan þátt, var
t. d. formaður stéttarfélags barnakennara í Reykjavík
1936—1938 og formaður byggingarsamvinnufélags kenn-
ara í Reykjavík frá stoínun þess félags.
Steinþór kvæntist 1917 Ingibjörgu Benediktsdóttur, Sig-
mundssonar bónda á Bergsstöðum í Hallárdal. Eiga þau
fjögur börn uppkomin.
Á. H.
Fræðslumálastjóri og fræðslufulltrúi Reykjavíkur
sátu fund fræðslumálastjóra Norðurlanda, sem haldinn var í Gauta-
Ijorg í okt. s. I. Hefur fræðslumálastjóri haft góð orð um það að
skýra leséndum Menntamála frá fundi þessum, þegar honum hafi
borizt samþykktir hans. Verður það væntanlega í næsta hefti.
Leiðrétting.
Þau lciðu rriistök urðu frá prentsmiðjunnar hálfu, er gengið var frá
síðasta hefti Menntamála, að ekki var alls kostar rétt skýrt frá útgef-
anda og útgáfustjórn. Þar átti að standa: Utgefandi: Samband fslenzkra
barnakennara og Landssamband framhaldsskólakennara. Útgáfu-
stjórn: Ármann Halldórsson ritstj., Helgi Þorláksson og Jón Krist-
geirsson. Afgreiðslumaður: Þórður J Pálsson. Enn fremur gleymdist
að prenta kort, sem átti að fylgja grein Björns Guðfinnssonar prófess-
ors. Þessi mistök eru þess eðlis, að úr þeim er ekki hægt að bæta, eftir
að þau eru orðin. Getur prentsmiðjan |)ví ekki annað gert en harmað,
að þau skyldu koma fyrir, og beðið þá, sem hlut eiga að máli, fyllstu
velvirðingar.
Virðingarfyflst
Prentsmiðjan ODDI h. f.
llaldur Eyþórsson.