Vorið - 01.12.1940, Page 7

Vorið - 01.12.1940, Page 7
V O R I Ð friðar milli þjóða? Eru þá jólin ekkert annað en jarðnesk fagnað- arhátíð, án allrar verulegrar þýð- ingar, þegar stórviðburðir lífsins steðja að? Þegar við lásum kaflann úr 2. kap. Filippsbréfsins, byrjaði hann á orðunum: Verið með sama hug- arfari, sem Jesús Kristur var. Ef við myndum alltaf eftir þessum orðum og hlýddum þeim, þá væru jólin fyrir löngu ekki aðeins orð- in ljósanna hátíð og jarðneskrar gleði, heldur líka hátíð friðarips. Þetta litla barn í Betlehemsjöt- unni kom til þess að færa frið á jörðu. Og hann sýndi með lífi sínu og kenningu, hvernig sá frið- ur yrði fenginn. Hann sagði að æðsta boðorðið, sem maðurinn ætti að keppa að að uppfylla, væri það, að elska Guð af öllu hjarta og náungann eins og sjálfan sig. Sá, sem það gerir, trúir Guði og treystir honum. Þess vegna sættir hann sig við lífið og stjórn hans. Sá, sem það gerir, vill vera öðr- um góður. Þess vegna lifir hann í friði við alla menn. Sá, sem það gerir, breytir aldrei gegn eigin samvizku eða gerir það, sem hann veit að er gagnstætt vilja Guðs. Þess vegna öðlast hann frið í hjarta sínu. Þessa hafa mennirnir ekki gætt. Þess vegna eru énn styrjaldir og myrkur hryggðarinnar yfir mann- heimum. En ennþá koma jólin með sinn himneská boðskap: Frið- ?5 ur á jörðu með þeim mönnum, sem Guð hefir velþóknun á. Gæfi það Guð, að menn loks skildu, að leiðin til þessa friðar er, að vera með sama hugarfari og Jesús Kristur var. Þá yrði þess skammt að bíða, að jólasólin skini ekki lengur á blóði drifna jörð og tár- stokkið mannkyn. Það sé jólabæn okkar. GLEÐILEG JÓL! Ný barnastúka. Nýlega stofnaði Marinó L. Stef- ánsson, kennari á Akureyri, nýja barnastúku á Raufarhöfn með 60 félögum. Stúkan heitir „Norður- ljósið“ nr. 115. Er það myndarlega af stað farið. Gæzlumaður stúk- unnar er Aðalbjörg Guðmunds- dóttir, kennslukona. Er það gleði- legt, þegar börn vilja starfa sam- an í hollum félagsskap, undir leið- sögu góðra manna. „Vorið“ óskar gæzlumanni og börnunum til hamingju með hina rfýju stúku. 25 áru afinælí. íþróttafélagið „Þór“ á Akureyri átti 25 ára afmæli á þessu ári. Það hefur minnst afmælisins með veglegu samsæti og útgáfu á smekklegu afmælisriti. Félagið var stofnað 6. júní 1915. í fyrstu lögum félagsins var bindindi á tóbak og áfengi skilyrði fyrir fé- lagsvist. Nú eru í félaginu hálft þriðja hundrað félagar, og þar iðkaðar margar íþróttagreinar,

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.