Vorið - 01.12.1940, Blaðsíða 14

Vorið - 01.12.1940, Blaðsíða 14
82 V O R I Ð Gamli hirðirinn á Ararat Langt uppi á fjalli milli tveggja kletta lá dálítill kofi. Hann var grár að lit eins og fjallið um- hverfis, því að hann var hlaðinn úr grjóti. Yfir hann var reft með stórum, þungum hellum — ann- ars mundi þakið fjúka, því að oft æðir stormurinn yfir kofann. Ararat er tindur í Kákasus- fjöllunum. Drunurnar frá snjó- flóðunum, og kuldinn frá jöklun- um fyllir loftið. Brekkurnar neðar í fjallinu glitra þó í blómskrúði og safa- miklu grængresi. Það vaxa vínber og aðrir gómsætir ávextir, og fólkið yrkir þar jörðina. Hirðarnir þess, að Jörgen fékk alla spari- peningana sína aftur, og auk þess barzt bréf frá Jóhannesi frænda. Hann skrifaði, að hér eftir skyldi hann sjá um, að þau gætu haft Karen litlu hjá sér. Þau skyldu ekki þurfa að missa af henni aftur. Þvílík jól! Þótt sárt væri að hafa ekki pabba líka, þá kom þó jólagleðin inn í þetta fátæklega heimili með litlu stúlkunni þeirra, sem þau áttu nú að fá að hafa hjá sér framvegis. Og aldrei mundi Jörgen eftir að hann hefði lagst glaðari til hvíldar en þetta jóla- kvöld. (Þýtt úr norsku). n, i m. ráku sauðfé sitt og geitur upp í fjallið, og í lága grjótkofanum bjó gamall maður, sem gætti húsdýra sinna, mjólkaði þau og bjó til osta úr mjólkinni. En hvað vindurinn hamaðist í kvöld! Gamli hirðirinn sat við brak- andi eldinn á arninum og hitaði sér eftir erfiði dagsins. í stórum potti sauð hann kvöldgrautinn, og hitaði mjólk í öðrum potti. Á leir- fati hafði hann fallegan ostbita. — Hann hafði farið úr geita- skinnsfeldinum, en var kyrr í sauðskinnsfeldinum og sneri ull- inni út. Hann hafði strengt belti um mittið og við það hékk stór skeiðahnífur. Honum hitnaði fljótt og svitinn rann af enni hans. Huíhuíohhh! hvein í vindinum úti. „En það veður — en það veð- ur“, tautaði öldungurinn. „Gott er að vera innan dyra, og vita um skepnurnar í húsunum“. Huíhuíohhh! heyrðist aftur. „Þetta er voðalegt“, sagði hann og stóð upp til að hræra í pottin- um. En samstundin hrikti svo hátt í hurðinni, að hann sneri sér við. „Það er naumast“, sagði hann, eins og hann væri að tala við vindinn. Það brakaði aftur í hurðinni. Hann varð að vita, hvað þetta væri. „Getur það verið skepna, sem hefir sloppið út?“ hugsaði h#n*i.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.