Vorið - 01.12.1940, Blaðsíða 19

Vorið - 01.12.1940, Blaðsíða 19
V O R I Ð 87 Það er dýrt, sagði kóngurinn. Þú ert svo ríkur, sagði drottn- ingin. Nei, ég er bláfátækur, sagði kóngurinn. En ég verð að fá nýja kórónu, sagði drottningin. Þú verður bara að notast við þá gömlu, sagði kóngurinn. Nei, sagði drottningin. Jú, sagði kóngurinn. Ég reiðist, sagði drottningin. Þú um það, sagði kóngurinn. Ég hætti að hafa yfirumsjón með stjórn matreiðslunnar, sagði drottningin. Það er mér alveg sama um, sagði kóngurinn. Ég verð alveg óhuggandi, sagði drottningin. Gerir ekkert til, sagði kóngurinn. Þú ert harðstjóri, sagði drottn- ingin. Býsna gott veður í dag, sagði kóngurinn. Svei, sagði drottningin og skellti hurðinni um leið og hún fór, svo að allar myndir duttu niður af veggjunum. Drottningin hugsaði málið. Hvað átti hún að gera til þess að fá nýja kórónu? Hún kallaði á hirðmeyjarnar. Hirðmeyjar, sagði hún, komið hérna og grátið með mér. Ha? sögðu hirðmeyjarnar. Grátið hátt svo að það heyrist, sagði drottningin. Er einhver dáinn, spurðu hirð- meyjarnar. Nei, sagði drottningin, en þið er- uð óhuggandi. Er það satt? spurðu hirðmeyj- arnar. Já, sagði drottningin. Finnum við til? spurðu hirð- meyjarnar. Já, afskaplega, sagði drottning- in, sorgin bítur hjarta ykkar. Bítur hún fast? spurðu hirð- meyjarnar. Já, voðalega fast, sagði drottn- ingin. Ég gæti bezt trúað, að mér væri farið að líða hálf illa, sagði ein hirðmeyjan. Það er auðvitað, sagði drottn- ingin. Ég finn til verkjar, sagði önnur. Vesalingurinn, sagði drottningin. Ég kvelst, sagði sú þriðja. Það er ósköp eðlilegt, sagði drottningin, því við erum allar svo sorgbitnar, og nú skulum við gráta, einn, tveir, þrír, og drottn- ingin og hirðmeyjarnar 40 ráku upp skerandi angistarvein allar í senn, þær grétu svo hátt, að þær fengu allar hellur fyrir eyrun, gráthljóðin bárust út um glugg- ann og allir fuglarnir flýðu úr hallargarðinum. Kóngurinn kom inn hallargang- inn og heyrði óskaplegan hávaða inni í herbergi drottningar. Hann gekk að dyrunum og hlustaði. HvaS er þetta, hugsaði hann, þær

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.