Vorið - 01.12.1940, Page 8

Vorið - 01.12.1940, Page 8
' 76 V O R I Ð Jólin nálgast. Kvöldsins klukkur óma, og Kristur sjálfur gistir vora jörð. í hverjum glugga jólaljósin Ijóma og loftið fyllir eilíf þakkargjörð. Menn slíðra sverðið — fyllast friði sönnum, — en friðurinn er mannsins œðsta þrá. Nú verðum vér að meiri og hetri mönnum og myrkrið hverfur hugum vorum frá. Ó, milda nótt, sem frelsi og fögnuð gefur og færir öllum lýðum helgan sið. Ó, stöðva þú það stríð, er geisað hefur, lát staðna hjá oss þinnar náðar frið. Ó, milda nótt, sem fagrar vonir vekur og veitir gleðistraum um jarðarból. Hér finnst ei neinn, sem ekki er eitthvað sekur, leyf öllum þó að lifa farsœl jól. Axel Ben.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.